Síða 1 af 1

Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:10
af Einar Ásvaldur
Góða kvöldið er að pæla hvort það sé ekki hægt að festa verða á allgenum hlutum sem eru að seljast, meina þá til að geta verið með eitthvað við mið.
Fynnst sjálfur (og er örgl ekki sá eini) leiðinlegt þegar það er alltaf verið að prútta svo mikið niður þannig maður þarf oft að setja verðið 5-12% hærra en maður er sáttur við.
Er Btw sjálfur sekur um að prútta en eiginlega eina ástæðan fyrir því er að það er prúttað svo mikið hjá öllum svo ef það væru bara föst verð myndi þetta ekki ganga betur?
Hvað segja stjórnnendur er ágætlega nýr hérna en held að þetta gæti hentað öllum og væri mjög sniðugt, væri hægt að gera pole til að sjá hvað fólk myndi vilja borga fyrir áhveðna hluti.

Vona að þetta meigi vera hérna inna :megasmile

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:19
af einarhr
Ertu ekki að misskilja tilgang Vaktarinnar ?

Edit
Ps. það er enginn að neyða þig að selja vörur á verði sem þú vilt ekki

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:19
af Einar Ásvaldur
einarhr skrifaði:Ertu ekki að misskilja tilgang Vaktarinnar ?

Hvað meinaru?

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:21
af Einar Ásvaldur
einarhr skrifaði:Ertu ekki að misskilja tilgang Vaktarinnar ?

Er eitthver staður sem ég get farið á hérna inni og sé hvaða verð ég á að setja á íhlutina mína?
Er ég kanski bara ekki búinn að leita nógu vel? :shock:

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:24
af einarhr
Einar Ásvaldur skrifaði:
einarhr skrifaði:Ertu ekki að misskilja tilgang Vaktarinnar ?

Hvað meinaru?

Verðvaktinn er upprunalega nafnið á þesari síðu þar sem flestir notendur reyna að stuðla að sangjörnum verðum. Hver á að sjá til þess að notaðir íhlutir séu verðlaggðir á ákveðnar krónur? VIltu að Adminar geri það eða notendur hér sem hafa verið að kaupa og selja íhlti í fleiri ár og hafa nokkuð góða yfirsýn hvað hlutir fara á í dag. Svo er alltaf hægt að skoða erlendar síður til að fá samanburð

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:27
af Einar Ásvaldur
einarhr skrifaði:

var meira svona að pæla að vera með "skjal" hérna inná sem væri með helstu hluti og sæmilegt verð á þeim fyrir seljandann og kaupandan bara svo það sé hægt að ganga í það "skjal" og sá hvað verðið ætti svona sirka að vera fyrir hlutinn

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:28
af einarhr
AFsakið repost en þetta er ekki ílla meint en kannsk ílla orðar hér fyrir ofan. ´

Hér eru yfirleitt verð á íhlutum nokkuð on the spot en það eru margri sem Prútta en það er þú sem ákveður þitt verð og það er allt í lagi að einhver setji út á það ef það er of hátt að hans mati. Svo má sjá hér td þráð þar sem var reynt að hafa verð á notuðum Skjákortum þetta árið en það gerist allt svo fljótt þetta árið hjá AMD og Nvidia að verðin hrynja

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:33
af Alfa
Í stuttu máli, ef einhver kemur með bull verðlagningu þá fær hann vanalega að heyra það strax ! Það er ástæðan fyrir að fólk kýs að kaupa hluti hér frekar en Bland eða facebook, það er sjaldan eða aldrei sem fólk er stiffað hérna ! En eins og í öllum viðskiptum snýst þetta um supply og demand !

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:35
af Einar Ásvaldur
einarhr skrifaði:AFsakið repost en þetta er ekki ílla meint en kannsk ílla orðar hér fyrir ofan. ´

Hér eru yfirleitt verð á íhlutum nokkuð on the spot en það eru margri sem Prútta en það er þú sem ákveður þitt verð og það er allt í lagi að einhver setji út á það ef það er of hátt að hans mati. Svo má sjá hér td þráð þar sem var reynt að hafa verð á notuðum Skjákortum þetta árið en það gerist allt svo fljótt þetta árið hjá AMD og Nvidia að verðin hrynja

Mér hefur samt funndist smá erfit að fynna verð á hlutum þannig maður setur bara á "óska eftir tilboði" og þá fær maður eitthver 5k boð fyrir hlut sem ætti kanski að seljast á 20-25k

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:43
af Alfa
Einar Ásvaldur skrifaði:Mér hefur samt funndist smá erfit að fynna verð á hlutum þannig maður setur bara á "óska eftir tilboði" og þá fær maður eitthver 5k boð fyrir hlut sem ætti kanski að seljast á 20-25k

Það er ekkert mál að spyrja kannski t.d. í pósti ....

Hvað er verð á t.d notuðu MSI 1070 Gaming X í dag ? (hjálpar að gefa upp tegund og model).

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:45
af machinefart
Það væri erfitt að halda svona lista. Sérstaklega í íhlutum og tölvu dóti sem er svona það algengasta hér leyfi ég mér að fullyrða. Verðið á mörgu af þessu breytist (lækkar) svo hratt. Svo er ég ekki viss um að það gagnist þér nokkuð að benda á eitthvað verð í skjali þegar þú ert að reyna að selja eitthvað sem engann vantar og enginn því tilbúinn að borga markaðsverð.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Mið 16. Des 2020 23:59
af Frussi
Einar Ásvaldur skrifaði:
einarhr skrifaði:AFsakið repost en þetta er ekki ílla meint en kannsk ílla orðar hér fyrir ofan. ´

Hér eru yfirleitt verð á íhlutum nokkuð on the spot en það eru margri sem Prútta en það er þú sem ákveður þitt verð og það er allt í lagi að einhver setji út á það ef það er of hátt að hans mati. Svo má sjá hér td þráð þar sem var reynt að hafa verð á notuðum Skjákortum þetta árið en það gerist allt svo fljótt þetta árið hjá AMD og Nvidia að verðin hrynja

Mér hefur samt funndist smá erfit að fynna verð á hlutum þannig maður setur bara á "óska eftir tilboði" og þá fær maður eitthver 5k boð fyrir hlut sem ætti kanski að seljast á 20-25k

Þegar maður óskar eftir tilboði þá eru gerð tilboð. Ef þér finnst tilboðið lágt þá ertu augljóslega með verð í huga. Ef það verð er 20-25k, settu það þá sem verðhugmynd...

Svo er alltaf hægt að óska eftir tilboðum en áskilja sér rétt til að hafna þeim sem eru of lág. Að því sögðu þá er fátt meira pirrandi en sölupóstar með engum verðum (þó ég hafi alveg gerst sekur um það sjálfur :lol:)

Ef maður er alveg lost með verðgildi hlutanna þá kallar maður bara á verðlöggurnar!

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 00:11
af Heidar222
Ég held að skjalið með þessum verð upplýsingum myndi nánast breytast vikulega þessa dagana þar sem mikið af nýjum búnaði er að koma á markað.
Mig minnir að í bókhaldi afskrifast 10-15% af virði tækja á hverju ári.
Svo missa hlutir svona ca 10% virði við það að labba úr búðinni (óopnað ástand) þannig mér þætti ekki óvenjulegt að sjá 1árs gamalt skjákort hér á vaktinni fyrir 75% af nývirði.
En þetta er mín skoðun en reynslan hefur sýnt sig að þetta er svona rúmlega eins og gengur og gerist hér á vaktinni.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 00:28
af mjolkurdreytill
Drasl til sölu

verð er x, verð er fast

Svona er málið leyst, oft notað.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 03:49
af daremo
Ég hef selt og keypt mikið hérna og sjaldan lent í prútti.
Bara einstöku sinnum frá nýjum notendum. Svara þeim aldrei.

Prútt á heima annars staðar. Hérna á vaktinni vitum við hvað hlutirnir kosta :)

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 09:00
af Daz
daremo skrifaði:Prútt á heima annars staðar. Hérna á vaktinni vitum við hvað hlutirnir kosta :)

Prútt er eðlilegur partur af sölu á notuðum vörum. Seljandi þarf að þola það að aðrir meti hlutinn ekki jafn verðmætann og hann sjálfur og kaupandi þarf að þola að sagt sé nei við tilboðunum hans (eða þau hunsuð).

Varðandi verð á notuðum vörum, þá hefur það komið nokkuð skýrt fram hér að það er aldrei hægt að búa til "fast og eðlilegt" verð á notuðum tölvuvörum. Sumt er mikið framboð af, af sumu er mikil eftirspurn og svo öfugt. Sanngjarnt söluverð er það verð sem seljandi og kaupandi komast að samkomulagi um. Stundum sagt að sanngjarn samningur sé sá sem hvorugur aðilinn er ánægður með en báðir sætta sig við.

Ég miða oft við 75-90% af nývirði vöru ef hún er nýleg (ársgömul ish) annars svona 50-75% af nývirði sambærilegrar (nýrrar) vöru. Það getur verið fín þumalputtaregla, svo þarf bara að skoða hvert tilfelli fyrir sig hvort eðlilegt verð sé hærra eða lægra.
Svo eldast hlutir misvel, tölvukassar slitna ekki af aldri, þar er slitið sjáanlegt. Meðan kísilflögur og diskar sýna engin ummerki en geta verið komin á síðastu viku nothæfni.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 09:15
af Rafurmegni
Daz skrifaði:

Rétt verð hlutar er það verð sem einhver annar er tilbúinn að greiða fyrir hlutinn. Annars verður ekki af viðskiptunum og verðið er því ekki raunverulegt. Svo einfalt er það nú mínir kæru Vaktarar!

kv, Rafurmegni

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 09:53
af bigggan
Þú selur hlutir a þvi verði sem fólk er tilbúið að borga svo einfalt er það, og það a við i báðum áttum.

Sem sést vel á nýju skjakortin sem fer á herra verði en þau voru ķeypt á. Það kallar eg ekki scalper, ef gæiji úti bæ náði að næla sér í 3080 og reyni að græða á því, finnst mér það vera í finu lagi.
Hinsvegar ef einhver kaupir tugir eða hundruðum skjákortum með bara einn tilgang og reynir að græða á því í atvinnuskyni, það finnst mér hinsvegar ekki í lagi.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 12:15
af jericho
Það væri samt mjög gagnlegt ef hægt væri að safna saman upplýsingum um hvað hlutirnir voru faktískt seldir á. En auðvitað er hægt að skoða "gangverð" á notuðum hlutum á erlendum síðum og nota það til hliðsjónar.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 12:25
af blitz
Reynslan mín af Vaktinni er ágæt, yfirleitt er maður ekki að fá svona bullboð eins og maður lendir í á bland eða Facebook. Ef þú ert með nokkuð "rétta" verðlagningu þá ertu yfirleitt að fá það verð sem þú vilt.

Yfirleitt nenni ég ekki að svara þessum trúðum sem bjóða 25% af uppsettu verði - þó er ég alveg sekur í því að setja 10-20% meira á vöru á bland eða Facebook af því að þú færð yfirleitt ekki uppsett verð, ekki nema þá á sérhæfðari söluhópum.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 12:31
af Njall_L
Þetta hefur verið reynt, sjá þennan þráð: viewtopic.php?f=9&t=83391&p=712457&hilit=Skj%C3%A1kort+ver%C3%B0+%C3%A1+notu%C3%B0um+skj%C3%A1kortum#p712457

Ég er sammála því að framtakið og hugmyndin séu góð en yfirsýn og umsjón með svona lista væri mjög mikil vinna. Verðþróanir eru stöðugar, sérstaklega á notuðu dóti auk þess sem taka þarf tillit til mjög margra þátta.

Sem dæmi þarf GTX1070 sem aðili A er að selja ekki að vera sambærilegt við GTX1070 sem aðili B selur, og þar af leiðandi ekki hægt að verðleggja þau eins. Mér finnst þættir eins og aldur, ástand, ábyrgð og fleiri oft vega mjög mikið í kaupum á notuðu dóti.

Þegar ég er að verðleggja notað dót skoða ég yfirleitt eldri auglýsingar með sambærilegum hlutum og set verðhugmynd sem mér finnst sanngjörn en er opinn fyrir tilboðum, notaður hlutur er aldrei meira virði en það sem einhver er til í að borga. Ef ég fæ síðan engin viðbrögð við auglýsingu eða mikið af lágum tilboðum er ég kannski að ofmeta verðhugmyndina hjá mér. Á sama tíma ef margir hafa strax samband var ég greinilega að vanmeta verðið.

Re: Festa gott Verð sem allir væru sattir við?????

Sent: Fim 17. Des 2020 19:11
af gRIMwORLD
Þetta er ágætis tillaga en myndi falla um sjálft sig að því leiti að verð gætu þá hugsanlega verið "fest" í stað þess að kaupendur gætu einn daginn gert "uber díl" og að sama skapi gæti seljendur einnig gert góðan díl fyrir sig. Of mikið af sambærilegum vörum en samt svo ólíkum að það væri hægt að segja að þessi týpa ætti að kosta ca bara svona.

Vaktin er hérna bæði fyrir kaupendur og seljendur, verðhugmyndir fyrir opnum tjöldum í söluþráðum í stað PM er að öllu óbreyttu skynsamlegasta leiðin. Hvort seljendur vilji svo kannski gera eitthvað extra transparency og pósta endanlega söluverðið á hlutum þegar þeir loka þráðum er svo alveg annar spjallþráður.

Sem kaupandi er það á þína ábyrgð að skilja við það magn af peningum sem þú ert tilbúinn að greiða fyrir notaða vöru, og sem seljandi er það á þína ábyrgð að vera ekki doucebag og rukka okurverð, enginn að segja samt að seljendur megi ekki reyna að fá gott fyrir sinn snúð. Ef seljandi setur upp mjög lágt verð fyrir einhverja vöru, þá græðir kaupandi, ekki þar með sagt að aðrar eins notaðar vörur eigi að skyndilega að lækka í verði. Allt byggist þetta á framboði og eftirspurn.

Svo erum við líka með vaktara sem halda uppi mjög active aðhaldinu hérna í söluþráðum þannig að besta fyrir þig er að drilla þig í gegnum söluþræði bæði hér og annarsstaðar til að gera upp við þig sjálfur hvað er sanngjarnt verð :)