Síða 1 af 1

34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 09:43
af blitz
Ég er að gæla við að prófa að henda mér á 34" skjá - líklegast einn af þessum þremur:

Gigabyte G34WQC
Acer Nitro XVO Series XV340CK
MSI Optix MAG342CQRV

Þeir koma allir vel úr prófunum (m.v. verð og mixed use)

MSI og Gigabyte eru báðir 1500r sem er nokkuð aggresíft curve á meðan Acer skjárinn er flatur.

Ég sit c.a. 100 cm frá skjánum og þetta er hugsað sem "mixed use" - sörf, vinna og gaming.

Einhver með reynslu sem getur komið með input?

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 09:56
af brynjarbergs
Ég hef sagt það áður - og segi það aftur.

Ég er með þetta eintak og er brjálæðislega sáttur so far!

https://mii.is/collections/hljod-og-myn ... monitor-34

Var ekki með curved en þetta var hrikalega fljótt að venjast :-)

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 10:50
af g0tlife
Ég var að fjárfesta í https://elko.is/gaming/leikjaskjair/sam ... g75tqsuxen

Fyrsti curved skjárinn og þetta er gargandi snilld.

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 10:56
af Dr3dinn
g0tlife skrifaði:Ég var að fjárfesta í https://elko.is/gaming/leikjaskjair/sam ... g75tqsuxen

Fyrsti curved skjárinn og þetta er gargandi snilld.


Keypti eimmit þenann líka í síðustu viku og bíð enn... :)

Margir með hann í vinnunni og gefa honum topp einkunn... :)

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 11:01
af hagur
Þegar þú ert komin í skjá af þessari stærð þá myndi ég alltaf velja curved fram yfir flatann.

Curved sjónvörp = Algjört rugl, nema þú sitjir alveg ofan í sjónvarpinu og sért alltaf einn fyrir framan það.
Curved tölvuskjáir = Hrikalega þægilegir

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 11:14
af oskar9
Sammála, er með 35" BenQ 3440x1440 21:9 hann er vel beygður og ég sit frekar nálægt, finnst það alveg sturlað :D.
Er mun sáttari við stóran UltraWide en að hafa farið í 16:9 4K skjá

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 11:47
af Viktor
Mæli með curved í þessari stærð.

En alls ekki nauðsynlegt. Bæði bara mjög fínt.

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 12:28
af osek27
Xiamoi skjarinn er klikkaður. Er með MSI 32 tommu curved og bíð eftir að geta fengið mér xiaomi næst.

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 12:43
af blitz
Fer þá í curved.

Gigabyte líklegast fyrir valinu - hann er um 20.000 ódýrari en Xiaomi og virðist almennt fá örlítið betri dóma - sami panell samt!

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 13:47
af Jón Ragnar
blitz skrifaði:Fer þá í curved.

Gigabyte líklegast fyrir valinu - hann er um 20.000 ódýrari en Xiaomi og virðist almennt fá örlítið betri dóma - sami panell samt!


Hvar er sá skjár til sölu?

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Mið 09. Des 2020 14:03
af blitz
Jón Ragnar skrifaði:
blitz skrifaði:Fer þá í curved.

Gigabyte líklegast fyrir valinu - hann er um 20.000 ódýrari en Xiaomi og virðist almennt fá örlítið betri dóma - sami panell samt!


Hvar er sá skjár til sölu?


B&H Photovideo

Edit: Spurning samt hvort að munurinn sé þess virði að eltast við, bíða til 11. janúar og fá frá þeim. Mii er með þetta á lager :megasmile

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Sun 27. Des 2020 02:36
af Skizzo
@blitz

Hvorn skjáinn endaðiru á að fá þér? Ég er einmitt í skjápælingum líka. Ætlaði bara í 27" fyrst en margir að reyna sannfæra mig í stærra. Er því að browsa skjáþræði og þætti gaman að heyra þína reynslu.


Er með 3070 kort, eru G-Sync vs. FreeSync big deal í dag?

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Sun 27. Des 2020 03:19
af Bourne
Fékk Alienware AW3420DW í jólagjöf frá konunni, alveg sick skjár.
Eccóa það sem fyrr hefur komið fram, smá curve er næs.

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Sun 27. Des 2020 09:25
af blitz
Skizzo skrifaði:@blitz

Hvorn skjáinn endaðiru á að fá þér? Ég er einmitt í skjápælingum líka. Ætlaði bara í 27" fyrst en margir að reyna sannfæra mig í stærra. Er því að browsa skjáþræði og þætti gaman að heyra þína reynslu.


Er með 3070 kort, eru G-Sync vs. FreeSync big deal í dag?


Ég fór í hundrað hringi og endaði á MSI MAG342CQRV en gafst að lokum upp á því að bíða eftir því að hann kæmi og færði mig í ViewSonic VX2758-2KP-MHD en konan vildi á endanum 2 skjái frekar en einn 21:9.

Re: 34" 21:9 - flat eða curved?

Sent: Sun 27. Des 2020 09:49
af jonsig
Einhver reynslu af þessum ? Maður er vanur 27" spurning hvort maður verði úteygður af svona stórum skjá ?

https://kisildalur.is/category/18/products/1835