Síða 1 af 1

Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Þri 24. Nóv 2020 15:57
af Farcry
Sælir

Hvað er sniðugt að kaupa í leikjamús og lyklaborði

Ég hef ekki verið að spila mikið af leikjum undanfarið og er ekki mikil spilari
enn þráðlausa Logitech Mx-3 og Mx keys er ekki allveg að gera sig í leikjaspilun

Hvernig er þessi mús , eða er eitthvað ódýrara sem virkar svipað
https://tolvutek.is/Leikjadeild-Tolvute ... 934.action

Svo spurning með lyklaborð ?

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Þri 24. Nóv 2020 16:05
af pepsico
https://www.coolshop.is/vara/logitech-g ... ck/AG3E4Z/
Þessi með lithium AA batterýi (léttara og endingarbetra) eru ansi góð kaup.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 00:03
af skari10
Þessi frá Glorious sem þú sentir er geðveik. Mæli með Matt týpuni eins og þú sentir.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 08:28
af Njall_L
Ég myndi skoða Ducky þegar kemur að lyklaborðum. Mekanískir rofar, snyrtilegt útlit en hægt að fá RGB samt sem áður og ábrenndir íslenskir stafir.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 09:03
af nonesenze
corsair k100 OPX ef það er ekkert limit á verði

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 09:06
af GuðjónR
Skil ekki af hverju allir eru að missa sig yfir þessari ljótu glimmer Páll Óskar Fabulous/Glorious mús?
Myndi mæla með Logitech G502 Lightspeed ef vinstri rofinn væri ekki króníkst ónýtur á þeim.
Sammála Njáli með Ducky lyklaborðin, nota svoleiðis og Apple lyklaborð.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 09:18
af Mondieu
Ég á bæði Glorious Model O og Model O-. Þær eru mjög þægilegar fyrir FPS-leiki, léttar, góður skynjari og fínt verð samanborið við svipaðar mýs. Annars eru flestar mýs með það góða skynjara í dag að þetta snýst mest megnis um þyngd og lögun músarinnar. Ég mæli með því að kíkja bara í einhverja búð og þukla aðeins á þeim til að finna hvað hentar.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 09:45
af Lexxinn
Ég var í smá budget setupi um daginn - keypti mér þessa hjá Kísildal og er í sjokki hvað ég er ánægður með hana. Fyrir aðeins 4500 mæli ég með að láta reyna á hana frekar en að setja 13þ í mús eins og margar kosta orðið. Er að spila CSgo og warzone með henni, disableaði dpi takkann. Talaði við kærustuna um hvað ég væri sáttur í 2 daga fyrir þetta verð og hún hefur engan áhuga á tölvudóti.

Svo er auðvitað alltaf klassíska mx518 - allra ódýrust hjá coolshop; https://www.coolshop.is/vara/logitech-m ... rn/AN6C2F/

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 09:46
af k0fuz
Hef verið með þessa mús lengi, lang best að mínu mati og endingargóð:
MX518 - https://elko.is/logitech-g-mx518-leikjamus
Var svo loks að skipta út 15 ára gömlu logitech lyklaborði fyrir þetta, mjög sáttur:
G213 - https://elko.is/logitech-g213-leikjalyklabordj

algert rugl að vera eyða 30k í lyklaborð líka :D

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 10:01
af GullMoli
Ein pæling varðandi þessa glorious mús, er þetta ekki bara safnbaukur fyrir húð/ryk? Fullt af holum til þess að grípa örugglega allt frá höndinni þinni :D

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 10:07
af Viktor
Prófaðu þráðlausa leikjamús og þú munt aldrei vilja sjá þessa snúru aftur :D

https://www.coolshop.is/vara/logitech-g ... se/AK9UH4/

https://www.coolshop.is/vara/logitech-g ... se/AC69NE/

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 10:41
af oliuntitled
Ég er búinn að vera með Logitech G903 í 4 ár núna og er mjög sáttur, ótrúlega góð mús.
Bætti við powerplay músamottunni til að fullkomna setupið og þarf þar af leiðandi aldrei að hlaða músina sérstaklega.
https://www.logitechg.com/en-us/product ... 00109.html

Næsta verk verður að finna mér þráðlaust mekanískt lyklaborð, á von á því að fara í logitech þar líka á endanum allavega en þarf ekki að endurnýja þar á næstu 2 árum allavega.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 10:46
af Einsinn
Búinn að keyra á logitech g502 lightspeed með powerplay musamottu seinasta árið og gæti ekki verið sáttari ekkert batteris vesen þar sem powerplay mottan glaður músina þráðlaust.

https://www.coolshop.is/vara/logitech-g ... se/AD8N9E/

https://www.coolshop.is/vara/logitech-g ... em/AG2B6F/

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 12:28
af Hausinn
Ef þér er saman um aukaeiginleika eins og ljós eða macros get ég mælt með Zowie EC2. Mjög þægileg mús.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 19:51
af Farcry
Takk fyrir svörin , ekki stendur á svörum þegar maður er í vanda.

Profaði þessa í kisildal í dag https://kisildalur.is/category/19/products/1550. Ég og sölumaðurinn vorum sammála um að hún væri of litil fyrir mínar hendur ☹️

Á eftir að máta Glorious PC Gaming Race Model O í tölvutek

Ætla að skoða þessar mýs sem er búið að stinga upp hér fyrir ofan

Í sambandi við lyklaborð þá nota ég dagsdaglega logitech mx keys. og MX master 3 mús. algjör snilld er með 3 tölvur tengt við það
https://www.logitech.com/en-gb/products ... ml?crid=27
Vantar eitthvað fyrir leikina.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 20:33
af netkaffi
Var að prófa Mx Master 3. Mest Smooth og advaced mús sem ég hef á ævi minni prófað.

Edit sá þú sagðir "Logitech Mx-3 og Mx keys er ekki allveg að gera sig í leikjaspilun"; hvernig lýsir það sér?

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 21:01
af Viktor
netkaffi skrifaði:Edit sá þú sagðir "Logitech Mx-3 og Mx keys er ekki allveg að gera sig í leikjaspilun"; hvernig lýsir það sér?


Mýs sem eru ekki hannaðir fyrir tölvuleiki ráða ekki við hraðar hreyfingar. Ef þú hreyfir músina of hratt, þá hreyfist bendillinn ekki.

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 21:07
af netkaffi
Sallarólegur skrifaði:Mýs sem eru ekki hannaðir fyrir tölvuleiki ráða ekki við hraðar hreyfingar. Ef þú hreyfir músina of hratt, þá hreyfist bendillinn ekki.


Ó. Hva, er það þess vegna sem ég er ekki betri í tölvuleikun en ég er. Ég veit ekki. Það voru ekki til neinar spes leikjamýs þegar ég var unglingur held ég..... bara MS 3.0, "fyrsta lasermúsin", eru mýs s.s. orðnar betri í dag og geta hreyfst meira m.v. hraðar hreyfingar, eða gat MS 3.0 þetta?

Mynd

Eða var MS 3.0 kannski fyrsta leikjamúsin svona, eða var það Mx518 eða kom þetta enn seinna?

Re: Hvað skal kaupa Leikjamús og lyklaborð

Sent: Mið 25. Nóv 2020 22:37
af Farcry
netkaffi skrifaði:Var að prófa Mx Master 3. Mest Smooth og advaced mús sem ég hef á ævi minni prófað.

Edit sá þú sagðir "Logitech Mx-3 og Mx keys er ekki allveg að gera sig í leikjaspilun"; hvernig lýsir það sér?


Sælir

Auðvitað er allveg hægt að spila með þessu setupi , var reyndar i veseni með að missa samband við unify sendirinn , komið i lag núna og mikið skára að spila núna

Þetta er nátturulega bara della i manni að sækjast eftir einhverju sem maður á ekki :megasmile