Vandamál með Asus p4p800


Höfundur
No Name
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Mán 12. Maí 2003 22:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vandamál með Asus p4p800

Pósturaf No Name » Mán 09. Jún 2003 20:07

Hefur einhver lent i vandmáli með Asus P4p800 móbo.
Ég var að fá mer p4p800 2,8 ghz 800mhz örg. og kingstone hyperx ddr400 minni. buin að vera alla helgina að setja saman og ekkert gengur.
Restartar í tima og ótima og hendir manni út úr öllum forritum.


Kveðja No Name

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Þri 10. Jún 2003 01:09

Ég held ég hafi séð einhversstaðar um daginn, að DualDDR config með DDR400 kubbum sé ekki að virka sem skyldi, ef þú ert með þetta í DualDDR setuppi, prófaðu að slökkva á því =)



Skjámynd

halanegri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 955
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
Reputation: 0
Staðsetning: Err Vaff Ká
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf halanegri » Þri 10. Jún 2003 02:08

Eða að keyra minnið á lægri hraða, þ.e.a.s < 400mhz




zooxk
Fiktari
Póstar: 87
Skráði sig: Fim 01. Maí 2003 01:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf zooxk » Þri 10. Jún 2003 15:39

AHHHH!!!
Ég er að fara setja dual ddr og 800 fsb 2.8 ghz örgjörva upp á EFTIR!

Hjálp.
Vonandi virkar það betur á Fis2r!!!




AntonSigur
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mán 05. Maí 2003 16:10
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Ég...

Pósturaf AntonSigur » Þri 10. Jún 2003 17:49

Ég er með ASUS P4C-800 og 2.4Ghz 800FSB
2x 512 400 DDR frá samsung (gæða samsung, ekki sama og er á computer.is)

Þetta virkaði ekki strax - málið er að var með ASUS 4200Ti skjákort, og það virkar ekki (9820TD) :?: fékk mér ASUS 4200Ti super fast, (9820S) og þá small þetta.

ERGO: prófaðu annað skjákort áður en þú heldur áfram!


- Alveg Anton