Laptop tray á borðfestingu fyrir skjái

Skjámynd

Höfundur
Skaz
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Lau 14. Sep 2013 01:48
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Laptop tray á borðfestingu fyrir skjái

Pósturaf Skaz » Mán 26. Okt 2020 10:10

Sælir,

Nú á covid tímum netfunda og heimavinnu. Þá er lappinn farinn að þurfa að vera opinn og uppi við meira og meira. (var lokaður og tengdur með usb c dokku þar sem að hann var ekki fyrir.)

Og þetta er að taka of mikið pláss á skrifborðinu og er ekki beint í þægilegri hæð til þess að vinna með hinum tveim skjáunum og ég nenni ekki að integrata vefmyndavél í setupið mitt ef að ég þarf þess ekki. Og ég er ekkert mótfallinn þriðja skjánum ;)

Þannig að ég fór að leita að VESA bakka fyrir fartölvu sem að ég gæti sett á borðfestingu sem að ég á og er að safna ryki. En það virðist ekki vera mikið um það hér á klakanum sem að ég gæti platað vinnuveitendann til að borga fyrir ;)

Er að leita í einhverju í ætt við þetta:
https://www.amazon.com/HumanCentric-Laptop-Monitor-Notebook-Secures/dp/B07RJZJVHF

Einhver sem að hefur rekist á þetta hérlendis?



Skjámynd

kusi
has spoken...
Póstar: 189
Skráði sig: Mið 29. Apr 2009 23:17
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Laptop tray á borðfestingu fyrir skjái

Pósturaf kusi » Mið 28. Okt 2020 11:27

Þetta er kannski ekki einmitt það sem þú ert að leita að en var mín lausn á sama vanda.

Ég skellti mér í IKEA um daginn og fékk mér Vivalla spjaldtölvustand undir fartölvuna:
https://www.ikea.is/products/596967
Fartölvan tekur núna minna pláss á borðinu og skjárinn og vefmyndavélin eru kannski ekki í kjörhæð en þó í mun betri hæð. Vefmyndavélin er nánar tiltekið núna í ca. 41cm hæð frá borðplötunni. Ég hafði smá áhyggjur af því að tölvan myndi ekki haldast í dokkunni (er með Thinkpad T480s í USB-C Thinkpad Ultra Docking Station) en það er ekkert vandamál.

Svo splæsti ég líka í Sigfinn undir skjáinn. Hann er reyndar frekar plássfrekur en það er til bóta að hafa skjáinn svolítið hærri.
https://www.ikea.is/products/601700