Síða 1 af 1

spurning um skjákort

Sent: Þri 15. Sep 2020 14:05
af OBG
Kannski heimskuleg spurning en stráknum mínum er boðið þessi vél hér sem hefur AMD Radeon HD 6350 , ég á til GTX 960 4GB sem var í vélinni hjá mér. Gæti ég notað það í þessa vél og væri það betra?

Re: spurning um skjákort

Sent: Þri 15. Sep 2020 14:09
af Harold And Kumar
Sko þessir partar vinna alveg vel saman, en ég hef áhyggjur af power supplyinu. Ef þetta psu er nógu gott, þá væri þetta mögulega góð hugmynd.

Re: spurning um skjákort

Sent: Þri 15. Sep 2020 14:59
af jonsig
Þetta kemur vel út, þú ert með 9.5% bottleneck á skjákortinu.

Held að það sé 240 eða 320W Psu hjá þér, það gengur varla upp því þú þarft að lágmarki 400W fyrir 960 kortið.
Ef þú heldur þessu 320W psu og eitthvað springur, þá var amk búið að vara þig við.

Re: spurning um skjákort

Sent: Þri 15. Sep 2020 15:18
af Mossi__
Þyrftir að setja stærra power supply í.

En, sá í hinum þræðinum að hann er ekki að spila GPU intense leiki, þannig að það er spurning hvort að Radeon kortið dugi ekki bara :)

Re: spurning um skjákort

Sent: Þri 15. Sep 2020 15:26
af OBG
Mossi__ skrifaði:Þyrftir að setja stærra power supply í.

En, sá í hinum þræðinum að hann er ekki að spila GPU intense leiki, þannig að það er spurning hvort að Radeon kortið dugi ekki bara :)


Jà datt það í hug líka, hef ekki mikið vit á þessu. Veit samt að hann hefur mikinn áhuga, gæti þá verið gaman fyrir hann að fá að prufa að skipta þessu út seinna sjálfur, bæði psu og kortinu það er. En byrjum á þessu svona bara.

Taka fyrir svörin.

Re: spurning um skjákort

Sent: Þri 15. Sep 2020 16:34
af Eythor87
Klárlega skipta út þessu standard 320w PSU fyrir 400w+ og setja 960 kortið í vélina + stækka vinnsluminnið og þá ertu góður!
(mæli klárlega ekki með þessu radeon korti, það er 512mb. Sem er varla nóg í að rista brauð í dag) :D