Síða 1 af 1

Ný samsettning --- Hvað finnst ykkur?

Sent: Mán 22. Jún 2020 09:13
af The-Spanish-Fly
Sælir meistarar...

Takk fyrir svörin í fyrri þræði! Það hjálpaði heilmikið að fá ykkar álit sem varð til þess að ég endurskoðaði allt upp á nýtt :sleezyjoe
Ég er búinn að versla tölvu og langaði að sýna og fá ykkar ómetanlegt álit á þessum dýrgrip ;)


Svona til gamans :arrow: Hvað mynduð þið giska á að ég hafi borgað fyrir þennan pakka - Allt nýtt út úr búð :?:

my-pc-2020.JPG
my-pc-2020.JPG (130.81 KiB) Skoðað 700 sinnum

Re: Ný samsettning --- Hvað finnst ykkur?

Sent: Mán 22. Jún 2020 09:38
af Dropi
Ég veit ekki hvað kom fram í síðasta þræði, en vonandi ertu með einhver plön um að uppfæra skjákortið á næstu árum sé þetta leikjavél en ekki mulnings vinnugræja :)

Annars er þetta auðvitað mjög future proof platform, X570 og 3800X ættu að endast þér töluvert, þó hefði ég sennilega horft á B450/550 og 3600X parað með þessu skjákorti nema þú sért með plan um að uppfæra skjákortið eftir 1-2 ár. Ekki hafa of miklar áhyggjur af áliti manna eins og mér, þú ert kominn með splunkunýja vél! Til hamingju með hana og reyndu að njóta vel ;)

Re: Ný samsettning --- Hvað finnst ykkur?

Sent: Mán 22. Jún 2020 09:58
af The-Spanish-Fly
Dropi skrifaði:Ég veit ekki hvað kom fram í síðasta þræði, en vonandi ertu með einhver plön um að uppfæra skjákortið á næstu árum sé þetta leikjavél en ekki mulnings vinnugræja :)

Annars er þetta auðvitað mjög future proof platform, X570 og 3800X ættu að endast þér töluvert, þó hefði ég sennilega horft á B450/550 og 3600X parað með þessu skjákorti nema þú sért með plan um að uppfæra skjákortið eftir 1-2 ár. Ekki hafa of miklar áhyggjur af áliti manna eins og mér, þú ert kominn með splunkunýja vél! Til hamingju með hana og reyndu að njóta vel ;)


Takk fyrir svarið - Hef reyndar ekki spilað tölvuleik í yfir 10-15 ár og verður þessi vél einungis notuð til að vinna í Adobe CC. Premier Pro og After Effects verður líklega það þyngsta sem ég keyri. Skjákortið er mjög Adobe vænt og er CUDA compatible.

Takk takk ég held ég verði nokk sáttur þegar ég fæ hana í hendurnar og búinn að uppfæra skjáinn hjá mér \:D/

Re: Ný samsettning --- Hvað finnst ykkur?

Sent: Mán 22. Jún 2020 11:26
af Dropi
The-Spanish-Fly skrifaði:Takk fyrir svarið - Hef reyndar ekki spilað tölvuleik í yfir 10-15 ár og verður þessi vél einungis notuð til að vinna í Adobe CC. Premier Pro og After Effects verður líklega það þyngsta sem ég keyri. Skjákortið er mjög Adobe vænt og er CUDA compatible.

Takk takk ég held ég verði nokk sáttur þegar ég fæ hana í hendurnar og búinn að uppfæra skjáinn hjá mér \:D/


Þá gleypi ég athugasemdirnar um skjákortið, þú ert í góðum höndum með þessa vél!