Síða 1 af 1
AMD Ryzen 3600XT, 3800XT og 3900XT
Sent: Mán 25. Maí 2020 14:53
af Templar
AMD að taka síðasta jaðarvígið frá Intel í leikjum í 1080p, nýir XT með 200-300MHz hærra core clock og betra boost.
Sé þetta rétt hefur staðan snúist við, Intel er ekki í vandræðum, þeir eru í meiriháttar vandræðum en nýjasta 10th gen. er algert vindhögg.
https://www.techradar.com/news/amd-ryze ... -lake-cpus
Re: AMD Ryzen 3600XT, 3800XT og 3900XT
Sent: Mán 25. Maí 2020 15:02
af Njall_L
Áhugavert og spennandi útspil frá AMD, ég bjóst við að þeir myndu ekkert gera fyrr en Ryzen 4000 línan yrði kynnt. En þetta er góð leið til að brúa bilið, vonandi þýðir það samt ekki að það sé eitthvað lengra í Ryzen 4000 heldur en undir lok þessa árs eins og búist var við.
Re: AMD Ryzen 3600XT, 3800XT og 3900XT
Sent: Mán 25. Maí 2020 16:24
af jonsig
Auðvitað viku eftir að maður kaupir 3900x þá kemur eitthvað spennó í fréttirnar
Re: AMD Ryzen 3600XT, 3800XT og 3900XT
Sent: Mán 25. Maí 2020 16:37
af Templar
Frábær kaup Jonsig, verði þetta að veruleika er þetta eingöngu til að taka þetta niche í 1080P gaming sem Intel hefur. Myndi ganga sáttur frá kaupum af 3900X, þú átt ekki eftir að finna neinn mun, snýst um þessi gröf sem menn eru að elta í testum og þröngan hóp af hörðum leikjaspilurum.
Mér finnst reviews vera frekar einhæf og slöpp orðin, allt eins og fyrir 15 árum í raun. Það vantar 1440p og 2060p gaming með t.d. micro drop gröfum og 0.1fps greiningu. Ekki að segja að hrá frammistaða í 1080p eigi ekki að vera þarna en það vantar hitt því þeim sem spila í 1440p, 3k eða 4k hefur farið mjög fjölgandi. Spila t.d. Red Dead 2 í D3D, lægra peak FPS en hærra low FPS.
Re: AMD Ryzen 3600XT, 3800XT og 3900XT
Sent: Mán 25. Maí 2020 19:23
af emil40
Ég er með 3900x og hann er alveg geðveikur og mun duga mér næstu árin

Re: AMD Ryzen 3600XT, 3800XT og 3900XT
Sent: Mið 27. Maí 2020 10:49
af Templar
Ný Benchmarks sem hafa "lekið" á netið sýna Ryzen 3800XT og 3900XT með hærri single core hraða í CineBench en 10900K. Reynist þetta rétt er útlit fyrir að þessir örgjörvar verði bestu fyrir leikina, Intel er búið að tapa þarna seinasta víginu.
Við skulum verða svo glaðir að sjá þessa tvo turna þarna berjast um að veita neytendum betri vöru á hverju ári, svona virka samkeppni þó svo að það sé fákeppni.