Síða 1 af 1

[Build Log] - 60% Gingham lyklaborð

Sent: Þri 28. Jan 2020 21:53
af Njall_L
Sælir Vaktarar

Langaði að deila nokkrum myndum af sunnudagsföndrinu fyrir áhugasma. Var að setja saman 60% Gingham lyklaborð sem ég er búinn að vera að týna íhluti í upp á síðkastið. Sá mynd af svona borði síðastliðið haust og varð strax dolfallinn. Allir íhlutur á borðinu eru "trough hole" á prentplötunni en ekki "surface mount" eins og venjan er í dag. Einnig eru allir íhlutirnir staðsettir undir plexiglerplötu á toppnum á borðinu svo þeir eru vel sjáanlegir, mjög flott lúkk að mínu mati.

Partalistinn endaði sem eftirfarandi:
Base: Gingham 60%
Rofar: Cherry MX Silent Red
Stabilizers: Cherry MX Board mount
Lube: Super Lube PTFE
Hnappahattar: Sérprentaðir ABS hattar með íslensku letri, bláir og hvítir
Kapall: Sérsmíðaður Mini USB, blá snúra með hvítu sleeving

Er ennþá að leika mér aðeins með að búa til firmware eftir mínu höfði til að fá FN-layer með öllu því sem mig langar en þar sem borðið notar open-source QMK firmware þá er ekkert mál að breyta og bæta, nóg til af upplýsingum um það á netinu.

Fyrir mína parta þá er borðið mjög solid, ánægður með hvernig það kom út útlitslega séð og mjög þæginlegt að skrifa á það. Læt fylgja með nokkrar myndir af borðinu komið saman og í samsetningarferlinu

Mynd5.JPEG
Mynd5.JPEG (489.78 KiB) Skoðað 3221 sinnum

Mynd6.JPEG
Mynd6.JPEG (556.48 KiB) Skoðað 3221 sinnum

Mynd1.jpeg
Mynd1.jpeg (819.41 KiB) Skoðað 3221 sinnum

Mynd2.jpeg
Mynd2.jpeg (524 KiB) Skoðað 3221 sinnum

Mynd3.jpeg
Mynd3.jpeg (1.37 MiB) Skoðað 3221 sinnum

Mynd4.jpeg
Mynd4.jpeg (1.33 MiB) Skoðað 3221 sinnum

Re: [Build Log] - 60% Gingham lyklaborð

Sent: Mið 29. Jan 2020 09:07
af chaplin
Djöfull er þetta geggjað verkefni!

Re: [Build Log] - 60% Gingham lyklaborð

Sent: Mið 29. Jan 2020 14:51
af Nariur
Hvar fékstu hattana?

Re: [Build Log] - 60% Gingham lyklaborð

Sent: Mið 29. Jan 2020 14:59
af Njall_L
Nariur skrifaði:Hvar fékstu hattana?

Hannaði þá sjálfur og fékk síðan WASD til að prenta fyrir mig - https://www.wasdkeyboards.com/

Re: [Build Log] - 60% Gingham lyklaborð

Sent: Mið 29. Jan 2020 18:50
af jojoharalds
Þetta er flott!!
moddaðir þú stabilizerana ?
Bandade mod klippt og lube?

Re: [Build Log] - 60% Gingham lyklaborð

Sent: Mið 29. Jan 2020 20:41
af Njall_L
jojoharalds skrifaði:Þetta er flott!!
moddaðir þú stabilizerana ?
Bandade mod klippt og lube?

Akkúrat núna eru stabilisers eins og þeir koma beint af beljunni með smá lube en band-aid mod er á dagskrá. Þarf bara að kaupa plástra fyrst

Re: [Build Log] - 60% Gingham lyklaborð

Sent: Fim 30. Jan 2020 08:03
af Jón Ragnar
Þetta er kúl dæmi!