Síða 1 af 1

Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Þri 13. Nóv 2018 19:17
af Gunnar
Er á spáni og keypti mér lenovo legion y520 fartölvu hérna.
i7 7700, 1050 gtx, 8gb vinnsluminni, 1 tb hhd, 15.6".

Gerist sirka 1x á dag að ég er kannski að horfa á kvikmynd, á youtube, skoða mbl. bara skiptir ekki hvað ég er að gera.
En tölva allt í einu kemur bara upp á skjánum "shutting down...."
Ekkert sem ég get gert nema leyfa henni að slökkva á sér og ræsa hana aftur og halda áfram. kemur ekki upp neitt villuboð eða neitt.
Buinn að prufa að upfæra tölvuna og það gerið ekkert nema að uppfæra hana. Heldur áfram að slökkva á sér sirka einusinni á dag.

Dettur einhverjum hér i hug hvað gæti verið að?
Frábær tölva fyrir utan þetta og að það er eins og hún frjósi af og til í 1-2 sec þegar ég er að horfa á myndband og er kannski að hoppa á milli i eitthvað annað. Hdd að bottleneck-a vinnsluna í því kannski? Hef verið með ssd frá 2010 líklegast svo ég man ekki hversu hægvirkur hdd er.

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Þri 13. Nóv 2018 19:25
af Viktor
Hljómar eins og Windows update

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Þri 13. Nóv 2018 19:26
af Moldvarpan

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Þri 13. Nóv 2018 19:31
af Viktor


Ef tölvan segir “shutting down” þá er Windows að slökkva á tölvunni.

Þessir þræðir eiga ekki við.

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Þri 13. Nóv 2018 19:50
af Moldvarpan
Sallarólegur skrifaði:


Ef tölvan segir “shutting down” þá er Windows að slökkva á tölvunni.

Þessir þræðir eiga ekki við.


Fyrir mér hljómar þetta meira eins og tölvan sé að verja sig, s.s. eh protection í gangi. En fyrst myndi ég skoða power management, power plan.

Mögulega protection við of miklum hita eða örgjörvin að throttla sig vitlaust.

En best væri fyrir hann að athuga að það sem hann getur athugað í fljótu bragði, ef ekkert virkar að hafa samband við þann aðila sem þetta er keypt af áður en hann fer heim.

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Þri 13. Nóv 2018 19:53
af Viktor
Kemur þetta "Shutting down" eða eitthvað annað?

Mynd

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Þri 13. Nóv 2018 21:59
af Gunnar
Sallarólegur skrifaði:Kemur þetta "Shutting down" eða eitthvað annað?

[img]https://win10faq.com/wp-content/uploads/2017/11/shutdown.jpg.eeb8a2adb9dc03eac731f9be7b42b1ba.jpg[img]

sæll já þetta kemur.
Þetta er ekki ofhitunarvandamál. spilaði cs:go og hún slökkti ekki á sér.
fann á google eitthvað um "fast startup". prufaði að afvirkja það, sjáum til hvort það geri eitthvað, læt vita á næstu dögum. svo erfitt að bilanagreina þegar "bilunin" kemur 1x á dag :face :lol:

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Fös 16. Nóv 2018 19:15
af Gunnar
Tók eftir því i dag að þetta gerist alltaf á sama tíma. það hefur verið sett inn i schedule að slökkva á tölvunni alltaf kl 8 þegar búðinni var lokið. Fékk sýningareintakið því það var seinasta eintakið eftir og það sá ekki á henni.

https://superuser.com/questions/1030610 ... ent-reason

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Fös 16. Nóv 2018 22:36
af worghal
Gunnar skrifaði:Tók eftir því i dag að þetta gerist alltaf á sama tíma. það hefur verið sett inn i schedule að slökkva á tölvunni alltaf kl 8 þegar búðinni var lokið. Fékk sýningareintakið því það var seinasta eintakið eftir og það sá ekki á henni.

https://superuser.com/questions/1030610 ... ent-reason

ok, þetta er pínu fyndið :lol:

Re: Ný fartölva slekkur á sér óumbeðin 1x á dag

Sent: Fös 16. Nóv 2018 23:35
af Gunnar
worghal skrifaði:
Gunnar skrifaði:Tók eftir því i dag að þetta gerist alltaf á sama tíma. það hefur verið sett inn i schedule að slökkva á tölvunni alltaf kl 8 þegar búðinni var lokið. Fékk sýningareintakið því það var seinasta eintakið eftir og það sá ekki á henni.

https://superuser.com/questions/1030610 ... ent-reason

ok, þetta er pínu fyndið :lol:

hahaha þegar ég hugsa út í það þá er það rétt pínu fyndið :lol:
stóð samt fyrir aftan stelpuna á meðan hún hreinsaði allt af tölvunni og ég fékk tölvuna þannig að ég byrjaði á að velja tungumál og allt þetta í upphafi á w10. hélt að allt hefði hreinsast út