Síða 1 af 1

dauður pixel á 4k skjá

Sent: Þri 01. Maí 2018 21:24
af emil40
Sælir félagar.

Mér sýnist vera kominn 1 dauður pixel á skjáinn hjá mér, á ekki söluaðili að taka hann aftur í ábyrgð ef þetta gerist innan 2 ára ?

Re: dauður pixel á 4k skjá

Sent: Þri 01. Maí 2018 21:32
af GuðjónR
emil40 skrifaði:Sælir félagar.

Mér sýnist vera kominn 1 dauður pixel á skjáinn hjá mér, á ekki söluaðili að taka hann aftur í ábyrgð ef þetta gerist innan 2 ára ?

Nærðu að sjá svona lítinn punkt? Er ekki líklegra að það séu nokkrir dauðir í hóp?
Ég myndi tala við söluaðilann.

Re: dauður pixel á 4k skjá

Sent: Mið 02. Maí 2018 09:33
af Hauxon
Ertu búinn að prófa að þrýsta (létt) með fingrinum á svæðið þar sem dauði pixellinn er? Ég keypti einhverntíman skjá með 4 dauðum pixlum og gat losnað við þá alla með þessari aðferð.

Re: dauður pixel á 4k skjá

Sent: Mið 02. Maí 2018 09:58
af Njall_L
Sumir söluaðilar, t.d. Tölvutek, eru með 100% pixlaábyrgð fyrstu tvær vikurnar eftir að skjárinn er keyptur. Þá geturðu fengið honum skipt út ef þú finnur dauðan/fastan pixel innan þess tímaramma.

Eftir það taka yfirleitt við skilmálar frá framleiðanda. Oftast gera þeir kröfu um að það þurfi að vera X margir pixlar dauðir/fastir á fertommu á panelnum til að skjánum sé skipt út. Þessi fjöldi þarf yfirleitt að vera fleiri en 1 pixell nema í allra dýrustu skjánum.
Getur séð Asus skilmálana hérna: https://www.asus.com/us/Commercial-Moni ... _Warranty/

Re: dauður pixel á 4k skjá

Sent: Mið 02. Maí 2018 11:00
af Gassi
þetta er bilun, þetta er raftæki, það er 2 ára ábyrgð á ÖLLUM raftækjum á íslandi skv. lögum.