Síða 1 af 1

Hjálp! Skjár blikkar í tölvuleikjum

Sent: Mið 04. Apr 2018 01:02
af gummi9
Góðan dag.

Þegar ég kveiki á Football Manager, NBA 2K18 og stundum LoL þá fer skjárinn minn að blikka.
Ég náði að laga þetta í Lol með því að fara úr borderless yfir í fullscreen.
En þetta gerist ennþá í FM og 2K18.

Ég prófaði að googla þetta og þar segir að slökkva á game DVR (sem ég held ég hafi náð að gera) og nokkra hluti í viðbót sem ég gerði en samt virðist þetta ekkert lagast.

Veit eh hvað vandamálið er eða hefur lent í þessu?

Re: Hjálp! Skjár blikkar í tölvuleikjum

Sent: Mið 04. Apr 2018 11:00
af olihar
Ertu að nota HDMI kapal?

Re: Hjálp! Skjár blikkar í tölvuleikjum

Sent: Mið 04. Apr 2018 11:12
af GuðjónR
Ég lenti í þessu einu sinni á 2013 iMac (bootcamp) þegar ég setti upp Spore, það lagaðist þegar ég breytti upplausn og aftur þegar ég setti upp PUBG í borderless, það lagaðist með "full screen".
Mig grunar að þetta hafi eitthvað með drivera að gera.

Re: Hjálp! Skjár blikkar í tölvuleikjum

Sent: Mið 04. Apr 2018 11:51
af gummi9
olihar skrifaði:Ertu að nota HDMI kapal?


Já á einum skjánum, hinn er displayport. En leikurinn heldur áfram að "blikka" þrátt fyrir að ég færi hann á hinn skjáinn.

Re: Hjálp! Skjár blikkar í tölvuleikjum

Sent: Mið 04. Apr 2018 11:51
af gummi9
GuðjónR skrifaði:Ég lenti í þessu einu sinni á 2013 iMac (bootcamp) þegar ég setti upp Spore, það lagaðist þegar ég breytti upplausn og aftur þegar ég setti upp PUBG í borderless, það lagaðist með "full screen".
Mig grunar að þetta hafi eitthvað með drivera að gera.

Já okei, ég náði samt í latest Nvidea driver update í gær og ekkert breyttist.

Re: Hjálp! Skjár blikkar í tölvuleikjum

Sent: Mið 04. Apr 2018 11:54
af olihar
gummi9 skrifaði:
olihar skrifaði:Ertu að nota HDMI kapal?


Já á einum skjánum, hinn er displayport. En leikurinn heldur áfram að "blikka" þrátt fyrir að ég færi hann á hinn skjáinn.


Prufaðu að nota bara annan skjáinn og sjáðu hvort hann heldur áfram að blikka, s.s. prufaðu báða staka.