Síða 1 af 1
					
				Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Lau 13. Jan 2018 18:42
				af appel
				Ég er að skoða með að stilla hraða á viftum í þeim tilgangi að lágmarka hljóð.
(cpu fan, kassavifta aftan og kassavifta að framan)
Hvað er öruggt að stilla þetta í?
			
		
				
			 
- 1.png (78.72 KiB) Skoðað 1337 sinnum
 
			
		
				
			 
- 2.png (78.35 KiB) Skoðað 1337 sinnum
 
			
		
				
			 
- 3.png (78.58 KiB) Skoðað 1337 sinnum
  
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Lau 13. Jan 2018 18:49
				af jonsig
				Eina sem gerist eftir þessum gröfum hérna að ofan er að tölvan er fljótari að detta í hærri hraða á viftunum. Þetta er alltof kröpp kúrfa, þannig að þú verður var við revið á viftunni upp og niður.
Þú ert með 60% hraðabreyingu á 10c° , þetta yrði áhugavert á 7700k (hjá mér)
			 
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Lau 13. Jan 2018 20:13
				af littli-Jake
				Finnst pínu findið að rpm lækkar frá 90% í 100% hjá þér  
 
 Annars er kannski svolítið til í þessu hjá jonsig. Þessum örgjörva líður sjálfsagt ekkert illa í 60° hita. Spurning um að færa 100% snúning í 65-70°
 
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Lau 13. Jan 2018 20:19
				af appel
				Þetta eru bara presets stillingar, ekkert búinn að eiga við þetta.
			 
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Lau 13. Jan 2018 21:39
				af jonsig
				Það er erfitt að segja til um þetta. Ertu með crappy 800rpm 90mm viftu eða ertu með 30W server grade viftu? Hvernig heatsink ?  Cpu?
Þetta gengi ekki upp á minni tölvu, 7700k með noctua kælingu. Ég hef lágmark 60% allan tíman til að hafa hemil á hitasveiflum, annars færi þetta upp og niður á fullu hjá mér.
			 
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Lau 13. Jan 2018 21:45
				af appel
				Örgjörvakæling: Arctic Cooling Freezer 33 eSports
i5-7600k örgjörvi
https://tolvutaekni.is/collections/kael ... 1-am4ryzenCorsair Carbide 400q kassa (með stock viftunum)
http://www.corsair.com/en-us/carbide-se ... tower-case 
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Lau 13. Jan 2018 22:04
				af littli-Jake
				jonsig skrifaði:
Þetta gengi ekki upp á minni tölvu, 7700k með noctua kælingu. Ég hef lágmark 60% allan tíman til að hafa hemil á hitasveiflum, annars færi þetta upp og niður á fullu hjá mér.
Þetta hljómar eitthvað furðulega. Hlítur að vera einhver villa í monitor forritinu eða bios.
 
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Mán 15. Jan 2018 17:09
				af jonsig
				7700k hjá mér er hangandi í 60-70° við load, þannig að hann væri upp og niður endalaust. Þú sérð hvað 60-70°sviðið hjá honum er bratt. skv mynd.
			 
			
					
				Re: Stilla hraða á viftum - hvað er öruggt?
				Sent: Mán 15. Jan 2018 20:14
				af littli-Jake
				jonsig skrifaði:7700k hjá mér er hangandi í 60-70° við load, þannig að hann væri upp og niður endalaust. Þú sérð hvað 60-70°sviðið hjá honum er bratt. skv mynd.
Þar sem þetta eru tveir ásar þá mundu þeir alltaf mætast einhverstaðar. Við ákveðið mikla vinnslu Y þarf ákveðið mikla kælingu X. Þessi ásar krossa einhverstaðar. Frávikin væru örfáar gráður móti nokkrum auka rpm.