Síða 1 af 1

vantar Cooler Master 4-in-3 Device

Sent: Mið 02. Feb 2005 18:32
af urban
hefur einhver ykkar séð svona græju hér á íslandi ???

ég var nefnilega að pæla í að kaupa mér svona og gat svo svarið fyrir það að ég sá svona græju selda á einhverri síðu tölvuverslana en finn þetta bara enganvegin aftur...

ég er búinn að googla þetta og finn það samt sem áður ekki og einnig (að ég held) búinn að skoða flestar síður

veit einhver hvar ég get fundið þetta??

og ef þið sem eigið svona græju sagt mér hvort það heyrist mikið í þessari viftu sem er á þessu

Sent: Mið 02. Feb 2005 19:26
af Dust
Er þetta ekki bara viftan sem er verið að selja á svona HDD sleða sem eru í kassanum fyrir :oops: ég er allavegana með svona á Dragon kassanum mínum, þú veist þar sem er hægt að smella viftu á sleðana sem eru fyrir HDD :roll:

Sent: Mið 02. Feb 2005 19:43
af MezzUp
Nei, þetta er allt unit'ið á myndinni.

Annars minnir mig líka að það hafi verið talað um þetta hérna um daginn, og linkur gefinn á íslenska tölvubúð.

Sent: Mið 02. Feb 2005 20:45
af urban
jæja ég fann þetta eftir mikla leit

en fyrir þá sem eru að pæla í þessu þá fæst þetta hjá @tt og kostar einungis 1750 kr

en getur einhver svarað því hvað heyrirst mikið í þessu ???

Sent: Mið 02. Feb 2005 21:04
af Dust
láttu þá bara plögga því inn áður en þú kaupir og leyfa þér að heira, allavegana ÆTTI ekki að vera mikið mál....

Sent: Mið 02. Feb 2005 21:25
af urban
það getur verið smá vandamál fyrir mig að heyra það þar sem ég er í vestmannaeyjum

Sent: Mið 02. Feb 2005 23:06
af hahallur
Það heyrist eiginlega ekkert í þessu

Sent: Fim 03. Feb 2005 00:24
af MezzUp
urban- skrifaði:það getur verið smá vandamál fyrir mig að heyra það þar sem ég er í vestmannaeyjum
Jamm, en ef að þú heyrir í því útí eyjar geturðu verið nokkuð viss um að það er frekar hávært :P

Sent: Fim 03. Feb 2005 02:07
af urban
MezzUp skrifaði:
urban- skrifaði:það getur verið smá vandamál fyrir mig að heyra það þar sem ég er í vestmannaeyjum
Jamm, en ef að þú heyrir í því útí eyjar geturðu verið nokkuð viss um að það er frekar hávært :P


hmm já þá hugsa ég að ég sleppi því að kaupa þetta ef það er það hávært... en ég hugsa að ég skelli mé a´svona græju

Sent: Fim 03. Feb 2005 12:38
af Ice master
jamm ég er með 3 svona þetta fæst hér já en það er buið núna þeira eiga von að fá nýja sendingu soon.

Sent: Fim 03. Feb 2005 12:48
af CraZy
vinnuru fyrir att icemaster ?

Sent: Fim 03. Feb 2005 13:57
af Ice master
hehe nei akkuru helduru það ?......... en þeira eiga þetta i att og tölvulistann þetta kælir mjög vel að minu mati :8) .. http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1352
hérna er þetta hjá att það er cheaper þar en i tölvulistann kostar hjá þeim 2000 eitthvað

Sent: Fim 03. Feb 2005 14:35
af kristjanm
Cheap = Ódýrt
Cheaper = Ódýrara

Sent: Fim 03. Feb 2005 15:37
af Ice master
:o jámm þú segjir ekki

Sent: Fim 03. Feb 2005 16:11
af CraZy
Ice master skrifaði:jamm ég er með 3 svona þetta fæst hér.

hélt að þú meinaðir hér= att

Sent: Fim 03. Feb 2005 23:51
af Ice master
Hehe oki. :wink: