Síða 1 af 1

feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Mán 27. Mar 2017 20:15
af J1nX
nú var ég að skoða verðvaktina eins og ég geri oft, tók eftir þessu á vinnsluminnum hjá Tölvutækni..

http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=3033

http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2797

það er ódýrara að kaupa 2x efri linkinn heldur en 1x neðri linkinn en samt kemur það út á sömu stærð í vinnsluminni? (og nákvæmlega sömu minni)
er ég eitthvað að misskilja þetta eða eru þeir að feila?

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Mán 27. Mar 2017 20:35
af Fumbler
Já, meinar, það eru líka ekki bara nokkrar krónur heldur 14.900 2stk af 8gb vs 17.900 parað 2 stk af 8gb = 3.000 kr
En minni seld saman eru sérstaklega prófuð saman af framleiðanda, gæti líka munað á innkaups tíma á þessum íhlutum krónan er búinn að vera að styrkjast...

En fyrir þig of felsta þá er bara að taka ódýrara möguleikan stór efast að þú munir einhvertíman sjá mælanlegan mun og kaupa svo Pizzu og gos fyrir afganginn.

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Mán 27. Mar 2017 20:42
af Haukursv
Ég myndi taka það sem ódýrara er en myndi þó spyrja þá útí þetta, þeir veita fína þjónustu almennt.

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Mán 27. Mar 2017 20:52
af J1nX
ég er notabene ekki að leita mér að vinnsluminnum, kíki bara á verðvaktina stundum þegar mér leiðist :P

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Mán 27. Mar 2017 23:17
af Fungus
Ég geri ráð fyrir að verðmunurinn liggi í single v.s. dual channel minni

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Þri 28. Mar 2017 09:47
af Klemmi
Munurinn liggur líklega bara í innkaupsverðum. Getur verið að þeir hafi tekið inn mikið af 2x8GB settum en verðin hafi í kjölfarið lækkað og/eða þeim hafi boðist að kaupa 1x8GB kubba á sérstaklega góðu verði.

Sem neytandi þá myndi ég ekki hika við að kaupa tvo staka kubba, það eru litlar líkur á að þú munir finna eða sjá einhvern mun :)

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Þri 28. Mar 2017 14:40
af linenoise
Dual channel ætti alveg að virka án vandræða ef þetta eru eins spekkaðir kubbar frá sama framleiðanda. Maður ætti samt að vera viss um að það sé sama revision á þeim báðum. Veit að Corsair hafa skipt um kubbaframleiðanda á milli revision númera.

Svo kannski best að keyra memtest til að vera viss..

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Þri 28. Mar 2017 14:42
af GuðjónR
J1nX skrifaði:....kíki bara á verðvaktina stundum þegar mér leiðist :P
Eins og allir gera þegar þeim vantar eitthvað skemmtilegt til dundurs.

Re: feill í verðlagi hjá tölvutækni?

Sent: Þri 28. Mar 2017 19:33
af I-JohnMatrix-I
GuðjónR skrifaði:
J1nX skrifaði:....kíki bara á verðvaktina stundum þegar mér leiðist :P
Eins og allir gera þegar þeim vantar eitthvað skemmtilegt til dundurs.


Maður er náttúrulega orðinn fíkill á háu stigi. Ég get ekki farið að sofa né byrjað að læra fyrr en allir þræðir á forsíðunni hafa verið opnaðir :megasmile