Síða 1 af 1

Input lag hjálp

Sent: Fim 09. Mar 2017 23:18
af siggibk
Eftir að ég keypti mér nýja mús finnst mér eins og ég sé með input lag þegar ég spila cs, er búinn að prófa að skipta yfir í gömlu og samt það sama. Er búinn að googla mig til í 2 daga og næ ekkert að laga þetta. Endaði með að ég formattaði tölvuna í gær og er ennþá í sama veseni. Þetta er ekki mikið en mér finnst crosshairinn ekki vera að hreyfa sig eins og hann á að vera þegar ég hreyfi músina. Eins og hann sé smá eftirá og þetta er rugl pirrandi. Einhver sem hefur lennt í þessu ? Gæti þetta verið að móðuborðið sé í ruglinu og usb portin séu að valda þessu ?

Re: Input lag hjálp

Sent: Fim 09. Mar 2017 23:39
af loner
Ertu með músina tengdt ií rétt usb port .
Mig minnir að það sé ákveðið usb port sé tileinkað mús og annað lyklaborði?

Re: Input lag hjálp

Sent: Fim 09. Mar 2017 23:47
af siggibk
Búinn að prufa nokkur port, sama vandamál.

Re: Input lag hjálp

Sent: Fim 09. Mar 2017 23:58
af loner
Spurningin er hvort þú þurfir að þrífa músina.
Ég lendi stundum í því að þurfa að nota eyrnapinna í laser portið á músinni.

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 00:02
af siggibk
Þetta er glæný mús og er búinn að prófa á annari líka, eitthvað annað að.

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 00:07
af arons4
Búinn að tékka á mouse acceleration?

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 00:22
af loner
Hvað Windows ertu að nota?

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 00:35
af siggibk
Jáb ekkert mouse acceleration, windows 10

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 00:39
af loner
Ég hef einmitt heyrt um þetta á Windows 10.

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 00:41
af loner
Er tölvan sett upp með Win 10 eða uppfærð í Win 10.

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 01:06
af siggibk
uppfærð

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 01:08
af loner
Þetta þarf ekki að vera sérstaklega mouse-lag, þó það komi þannig fram, margar aðrar ástæður geta verið fyrir því.
Eitthvað í uppsetningu Windows gæti verið að ræða, prufaðu að renna yfir þessa síðu.

https://www.tenforums.com/tutorials/724 ... -10-a.html

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 17:59
af Haflidi85
Ég myndi skoða alla drivera vel og uppfæra biosinn, en ég myndi akkurat byrja á að fara yfir listan sem loner er með þarna. Ef ekkert gengur prófa þá windows 7 :D

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 19:46
af Snorrlax
Það var/er eitthvað vandamál með xbox gaming appið á windows 10 og CS GO. Prufaðu að slökkva á því. Herna eru offical leiðbeiningar frá Valve

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 20:20
af Hnykill
Ok komdu nú með nafnið á músinni svo við getum betur unnið okkur úr þessu.

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 21:00
af Tonikallinn
Hnykill skrifaði:Ok komdu nú með nafnið á músinni svo við getum betur unnið okkur úr þessu.

'' er búinn að prófa að skipta yfir í gömlu og samt það sama.''

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 22:22
af agust1337
Ertu með raw input á eða af?

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 22:45
af siggibk
zowie ec2, er með raw input á

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 22:49
af Hnykill
ég á Zowie ec-1 og hún er smooth as fuck. það er ekkert að músunum sjálfum greinilega. þetta er eitthvað software vandamál bara :/

Re: Input lag hjálp

Sent: Fös 10. Mar 2017 23:58
af loner
Þetta er Windows vandamál, ég er að muna eftir því núna.
Ég Windows Insider, og ég man að eftir eina uppfærslu, þar sem músin varð hæg, ekki lagg heldur bendillinn ferðaðist hægar yfir skjáinn.
En ég hef skrifað þetta á óhreinindi í laser portinu á músinni, sem eftir hreinsun hefur virkað betur, en þetta er ekkert að há mér.
Á vefnum hljóta að finnast lausnir við þessu vandamáli.