Síða 1 af 1
					
				Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fim 02. Mar 2017 08:55
				af Hizzman
				Getið þið stungið upp á prentara?
Þarf að vera litalaser með duplex og wifi. Er til létta heimilisnota. Þarf einnig að vera hagstæður í rekstri, má einnig ekki vera stór eða mjög þungur..
			 
			
					
				Re: Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fim 02. Mar 2017 09:07
				af Njall_L
				
			 
			
					
				Re: Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fim 02. Mar 2017 09:16
				af Klemmi
				Þetta eru engar smá kröfur, litalaser með duplex sem má ekki vera stór eða þungur?
Veit ekki hvort slík græja er til.  Annars hafa bleksprauturnar verið að koma sterkar inn í hagkvæmni ef ekki er verið að prenta rosalegt magn, en þær eru sjaldnast duplex.
			 
			
					
				Re: Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fim 02. Mar 2017 09:48
				af Hizzman
				Klemmi skrifaði:Þetta eru engar smá kröfur, litalaser með duplex sem má ekki vera stór eða þungur?
Veit ekki hvort slík græja er til.  Annars hafa bleksprauturnar verið að koma sterkar inn í hagkvæmni ef ekki er verið að prenta rosalegt magn, en þær eru sjaldnast duplex.
já ég veit, ég er að meta hvort ég á að fara í svona, eða bara lítinn einfaldan laser, eina ósveigjanlega krafan er wifi
 
			
					
				Re: Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fim 02. Mar 2017 15:42
				af Halli25
				Hizzman skrifaði:Klemmi skrifaði:Þetta eru engar smá kröfur, litalaser með duplex sem má ekki vera stór eða þungur?
Veit ekki hvort slík græja er til.  Annars hafa bleksprauturnar verið að koma sterkar inn í hagkvæmni ef ekki er verið að prenta rosalegt magn, en þær eru sjaldnast duplex.
já ég veit, ég er að meta hvort ég á að fara í svona, eða bara lítinn einfaldan laser, eina ósveigjanlega krafan er wifi
 
Tek undir með Klemma, myndi skoða Epson WorkForce t.d.
 
			
					
				Re: Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fim 02. Mar 2017 22:19
				af nidur
				Þessi hérna er yfirleitt sá vinsælasti í könnunum hjá Lifehacker t.d.
Hætti með bleksprautu og fór í þennan sé ekki eftir því, virkar alltaf þegar ég ýti á prent, alveg sama hvað er langt á milli prentana.
Hann er líka með sæmilega stóru tray, og tónerinn er ekkert hrikalega dýr í hann.
https://tolvutek.is/vara/brother-hl-l2365dw-geislaprentari-wifi 
			
					
				Re: Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fim 02. Mar 2017 23:02
				af rapport
				http://optima.is/product/ricoh-sp-c340d ... tari-liturÞessi tekur líka 500 blöð í skúffuna = heilan pakka = minna umstang að geyma blöð.
Held að þetta sé þrusu prentari m.v. verð.
Fyrir 10þ. minna = 
https://okbeint.is/hpbeint/ui/vorur/view.do?id=B4A22A 
			 
			
					
				Re: Vantar hugmyndir um prentarakaup
				Sent: Fös 03. Mar 2017 09:44
				af Hizzman
				er jafnvel farinn að slaka á kröfunni um að þetta verði að vera laser.
wifi, duplex og litur skal það samt vera
sumir af bleksprautuprenturunum virðast geta verið þokkalega hagstæðir í rekstri. sérstaklega ef það er mögulegt að nota 3.party blek
Þeir eru einnig minni, léttari og ódýrari
Hvað segja menn um Canon eða Brother?