Síða 1 af 2

tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 14:40
af emil40
Hérna er tölvan mín.

Tölvan mín og fylgihlutir ....
28 tommu 4k asus skjár
7700K kabylake @ 5 ghz
Z270x-ultra gaming móðurborð
240 gb ssd undir stýrikerfi og annað dót.
19 tb geymslupláss
Razer chroma mús
nocthua dh15 kæling
2 gb skjákort og 8 gb 2133 mhz minni.
Er að fá 16 gb 3866 mhz vinnsluminni eftir mánuð svo er það nýtt skjákort i júní.

Mynd
Mynd
Mynd

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 15:57
af mercury
Ekkert að því að uppfæra smátt og smátt. Þetta verður hörku setup fljótlega. En þessi tölvukassi er rosalegur :D

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 15:59
af emil40
ég er að hugsa um að fara í 1070 kort eða 2x 1060 sli. Það kemst ekki mikið meira inn í kassann hehe

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 17:06
af Emarki
Hefur efni á öllu nýjasta nýtt og flottasta og overkilli líka enn getur svo ekki keypt kassa utan um það ? :D

Fyrirgefðu þetta er ekki illa meint þannig enn mér verður illt að sjá þetta, lítill corsair kassi á 12.000 kall væri betra, ég myndi persónulega ekki nenna að raða saman þessum hlutum inn í gamlan kassa.

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 18:04
af Gunnar
hahaha ég sá bara myndina og hélt að þetta væri eitthvað drasl, las ekki einusinni textann. Svo er þetta bara eitthvað skrímsli!!!

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 18:58
af emil40
emarki : ég er að safna fyrir skjákorti, kassa og m.2 disk ... það er ekki hægt að gera allt í einu ef maður er bara með örorkubæturnar tekur tíma að safna fyrir þessu. Ég er mikið að pæla í að fá mér annan hvorn af þessum kössum

http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2842

eða

http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=3114

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 19:34
af Moldvarpan
Og í hvað ætlaru að nota þessa tölvu?

Emil as in Bulldog?

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 19:53
af emil40
moldvarpan rétt. í leiki og eitthvað skemmtilegt

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 22. Jan 2017 20:38
af robbi553
emil40 skrifaði:Hérna er tölvan mín.

Tölvan mín og fylgihlutir ....
28 tommu 4k asus skjár
7700K kabylake @ 5 ghz
Z270x-ultra gaming móðurborð
240 gb ssd undir stýrikerfi og annað dót.
19 tb geymslupláss
Razer chroma mús
nocthua dh15 kæling
2 gb skjákort og 8 gb 2133 mhz minni.
Er að fá 16 gb 3866 mhz vinnsluminni eftir mánuð svo er það nýtt skjákort i júní.

Mynd
Mynd
Mynd


Minni á að þú skuldar mér eitt stykki í i5 6400. Og ættir að svara skilaboðum.

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 02:17
af rbe
hmm spurning um að fjárfesta í skrifborði ?
gæti ekki setið lengi við þessa aðstöðu ?
en vel á minnst hvernig stól ertu með við þetta ? https://is.wikipedia.org/wiki/St%C3%B3ll

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 04:38
af Black

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 05:12
af Emarki
Safna pening... hvað kostuðu heil 19 TB af hörðum diskum ?

Hvernig virkar AMD r7 360 kortið í 4K ?

Varðandi skjákort þá dugar ekkert minna enn 1080GTX eða 1080GTX Ti þegar það kemur víst þú ert með 4K skjá.

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 08:21
af emil40
amd r7 360 rétt virkar í að keyra 4k skjáinn þessvegna er ég fá mér meira og meira tölvudóti jibbbí jibbbí

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 08:53
af rbe
emil eða bulldog hvað ertu búinn að vera gera síðan Síðast virkur:
Mið 10. Sep 2014 21:07
þú bara gufaðir upp ?

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 11:58
af worghal
19TB? og hvar eru diskarnir? :lol:

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 14:19
af emil40
Worghal : tveir inn í tölvunni þar sem eru svört hólf fyrir þar eru bracketin með 4 tb disk og 8 tb disk, síðan sérðu tvö flakkara á borðinu 3 tb og 4 tb :)

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 14:27
af emil40
rbe :

Lenti í rugli, ein meðferð inn á vog, tvær meðferðir upp á hlaðgerðarkot... kominn með 15 mánuði edrú núna. Var kominn með 10 mánuði edrú féll í 3 daga og síðan komnir 15 mánuðir. Þetta er allt vinna einn dag í einu.

Verð kominn með setup-ið sem ég vil í júní þá er það nýr kassi, annað hvort 1070 eða 1080 skjákort, langar að fara í 1080. og er að pæla í einum svona líka

http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=3274

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 14:40
af rbe
robbi553 Minni á að þú skuldar mér eitt stykki í i5 6400. Og ættir að svara skilaboðum.
á ekkert að svara honum ?

var að skoða viðskiptasögu þína hún er nú ekkert allt of góð ?
myndi útskýra þetta ef menn ætla að eiga við þig viðskipti á þessu nýja nikki .

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 17:24
af emil40
Ég er bara hérna til þess að spjalla.

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 18:19
af robbi553
rbe skrifaði:robbi553 Minni á að þú skuldar mér eitt stykki í i5 6400. Og ættir að svara skilaboðum.
á ekkert að svara honum ?

var að skoða viðskiptasögu þína hún er nú ekkert allt of góð ?
myndi útskýra þetta ef menn ætla að eiga við þig viðskipti á þessu nýja nikki .


Það á bara alls ekkert að eiga viðskipti við hann. Menn geta haft sín eigin vandamál en það á ekki að láta þau bitna á öðrum. Var búinn að fjárfesta í móðurborð fyrir örgjörvan sem hann ætlaði að selja mér. Hann vildi meira segja að ég myndi "tryggja mér hann" með því að borga honum fyrirfram en ég er mjög ánægður að ég féll ekki fyrir því.

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 20:08
af rbe
hmm bara spjalla ?
fáum við ekki gamla bulldog með vélbúnaðar "maníuna" á hæsta stigi aftur ?

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 20:39
af emil40
þessi skilaboð eru frá robba553 :

Þri 03. Jan 2017 15:52
frá robbi553

Hvenær heldur þú að þú verðir tilbúinn til að afhenda hann? Nenni varla að bíða mikið lengur, fer þá bara út í búð og kaupi hann nýjan sko.


Það hefði nú verið í lagi að bíða þangað til að ég væri kominn með minn og setja hann í þangað til að svona skilaboð væru send. Ég lét vin minn sem hjálpaði mér við að setja nýja dótið í tölvuna mína fá 6400 örrann á góðu verði. Robbi553 það er þitt hvort að þú viljir segja að ég "skuldi þér" örgjörva eða ekki. Það var ekki sjéns að ég væri að láta hann frá mér áður en ég væri kominn með hinn í.

Re: tölvan mín.

Sent: Mán 23. Jan 2017 21:29
af robbi553
Væri samt allt Í lagi að segja frá.

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 19. Mar 2017 12:35
af emil40
Þetta er allt annað eftir að tölvan var sett í nýjann kassa í gær :)

Mynd
Mynd
Mynd

Re: tölvan mín.

Sent: Sun 19. Mar 2017 23:42
af EbbiTheGamer
Ættir kanski að fá þér skrifborð og laga þetta clusterfuck cable management.