Tölvu viftur og kæling

Skjámynd

Höfundur
SkinkiJ
Nörd
Póstar: 103
Skráði sig: Fim 28. Jan 2016 18:57
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Tölvu viftur og kæling

Pósturaf SkinkiJ » Lau 27. Feb 2016 23:45

Sælir, ég er með borðtölvu:
CPU: INTEL Core i5-750 2.67 GHz

GPU: 1x AMD Sapphire HD 6970 2GB

RAM: 8GB Corsair Vengeance 1600MHz

Motherboard: MSI P55M-GD45

Hard Drive: 2x HDD250GB, samtals 500GB

Power Supply: Corsair HX650W

Case: Cooler Master: Elite 430
4 viftur
og ég þarf smá hjálp, ég er að pæla með kælingar hvort ég eigi að vera bara með viftur eða vatnskælingu því hún er stundum dáltið heit og það heyrist í henni eins og F/A 18 herþota að taka á loft þegar ég spila leiki, ég vill hafa hana silent og ekki ofhitna.
Eru þið með einhverjar ráðleggingar?
Viðhengi
Ekki leik.PNG
Ekki með leik opinn
Ekki leik.PNG (12.06 KiB) Skoðað 790 sinnum
Firewatch opinn.PNG
Er með leik eins og Firewatch opinn
Firewatch opinn.PNG (12.15 KiB) Skoðað 790 sinnum


Turn - Intel Core i7-7700 - Corsair Hydro H115i - 16GB DUAL DDR4 - 232GB Samsung SSD 850 EVO - 2TB TOSHIBA SATA - MSI Gaming GTX 1070 8GB - MSI Z270 TOMAHAWK
Lappi - Macbook Air 2019
SteelSeries Rival 310 | Ducky One Two | HyperX Cloud Flight | 2x BenQ 144hz 24''
1987 Volvo 240GL |1993 Mitsubishi Galant | 2005 Volvo S60 2.5T AWD


Thornz
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Fös 03. Apr 2015 22:43
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu viftur og kæling

Pósturaf Thornz » Sun 28. Feb 2016 00:43

Hvað segir Speccy https://www.piriform.com/speccy um þessar hitatölur?



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu viftur og kæling

Pósturaf Hnykill » Sun 28. Feb 2016 13:09

þú ert með möguleika á að setja 120/140mm viftu að framan og 120mm að aftan. þessi að framan á að blása köldu lofti inn og þessi aftari á að blása heita loftinu út. svo eru ágætis loftgöt á toppnum á kassanum svo það hjálpar líka. hvaða örgjörvakælingu ertu með og hefuru einhverntíman rykhreinsað kælingarnar hjá þér ? þar á meðal á skjákortinu ?

Ef þú ert með stock Intel örgjörvakælinguna þá er þetta alveg þekkt vandamál. hún er hávær og kælir frekar ílla satt að segja .
fáðu þér þessa

CoolerMaster Hyper 212
http://www.att.is/product/cooler-master ... r-orgjorva

hitaleiðandi krem og fáðu einhvern sem kann að setja þetta á fyrir þig. blástu svo rykinu úr skjákortinu og þú ættir að vera góður :happy


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

Höfundur
SkinkiJ
Nörd
Póstar: 103
Skráði sig: Fim 28. Jan 2016 18:57
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu viftur og kæling

Pósturaf SkinkiJ » Sun 28. Feb 2016 13:59

Hnykill skrifaði:þú ert með möguleika á að setja 120/140mm viftu að framan og 120mm að aftan. þessi að framan á að blása köldu lofti inn og þessi aftari á að blása heita loftinu út. svo eru ágætis loftgöt á toppnum á kassanum svo það hjálpar líka. hvaða örgjörvakælingu ertu með og hefuru einhverntíman rykhreinsað kælingarnar hjá þér ? þar á meðal á skjákortinu ?

Ef þú ert með stock Intel örgjörvakælinguna þá er þetta alveg þekkt vandamál. hún er hávær og kælir frekar ílla satt að segja .
fáðu þér þessa

CoolerMaster Hyper 212
http://www.att.is/product/cooler-master ... r-orgjorva

hitaleiðandi krem og fáðu einhvern sem kann að setja þetta á fyrir þig. blástu svo rykinu úr skjákortinu og þú ættir að vera góður :happy

Ég rykhreinsaði aðeins tölvuna um daginn. En takk fyrir ég skoða þetta.


Turn - Intel Core i7-7700 - Corsair Hydro H115i - 16GB DUAL DDR4 - 232GB Samsung SSD 850 EVO - 2TB TOSHIBA SATA - MSI Gaming GTX 1070 8GB - MSI Z270 TOMAHAWK
Lappi - Macbook Air 2019
SteelSeries Rival 310 | Ducky One Two | HyperX Cloud Flight | 2x BenQ 144hz 24''
1987 Volvo 240GL |1993 Mitsubishi Galant | 2005 Volvo S60 2.5T AWD


baldurgauti
has spoken...
Póstar: 165
Skráði sig: Mán 30. Nóv 2015 03:01
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu viftur og kæling

Pósturaf baldurgauti » Sun 28. Feb 2016 19:38

Skjákortið mitt var svipað þessu, hitnandi endalaust og hraðinn á viftum fór bara upp, ég keypti mér 2 viftur og skellti framan á kassan, 1 aftaná og lét 212 evoinn minn blása loftinu í átt að viftunni fyrir aftan og þá snarlækkaði alltsaman, þannig ég myndi segja, almennileg örgjörvakæling og gott loftflæði sé lykillinn (augljóslega) tók mig samt nokkurn tíma að fatta það útaf einhverri ástæðu, svo bara finna á netinu hvernig á að setja kælinguna á og hitakremið líka ;) Gangi þér vel :)