Síða 1 af 1
Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Fös 22. Jan 2016 16:40
af Olli
Hæ vaktin
Nú ætla ég að setja upp gagnaþjón heima fyrir en er svo grænn í þessu að ég veit ekki hvað ég á að nota
Helstu kröfur:
Efni sé aðgengilegt í öllum tækjum, Mac OS, iOS, Windows, Android
Hægt sé að stilla símann á að uploada sjálfkrafa nýjum ljósmyndum inná hann þegar maður tengist heima-wifi
Auðvelt sé að sækja efni af torrent beint inná hann
Auðvelt sé að streyma efni í fullri háskerpu af honum (til græju sem keypt verður undir sjónvarpið síðar)
Hugmyndin sem ég er með núna er að nota, ef ég get, tölvu sem þegar er uppsett:
i5-2500
8GB 1333MHz
GTX 550ti
Windows 8.1 (eða Windows 10 ef það er betra)
Langar mig þá að versla í hana tvo diska sem eru 2-4TB og setja í RAID1
Spurningin er þá mun þessi tölva duga, hvaða týpu af diskum á ég að versla í hana og hvaða hugbúnað á ég að nota?
*Budget er svosem ekki ákveðið og það má alveg vera eitthvað smá áskriftargjald af server hugbúnaðinum
Með bestu kveðju,
Olli
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Fös 22. Jan 2016 17:19
af Stufsi
Þetta setup er fínt, settu upp windows 10 frekar enn windows 8.1, jafnvel að setja upp Windows Server 2012 eða Linux Server(Ef þú kannt á linux þ.e. þá er það fínasta hugmynd) enn Windows 10/8.1 ætti að duga.
Hvernig gögn? Ef það eru kvikmyndir, þættir, ljósmyndir, tónlist og þess háttar gögn, þá mæli ég með Plex eða Emby media server
Edit*
Hvaða týpum af diskum: Það fer svoldið eftir því hversu áreiðanlegan disk þú vilt. Ef þú vilt áreiðanlegan þá myndi ég velja Western Digital(Red eða Green minnir mig)
Hvaða Raid: Raid 1 ef þú vilt halda í gögninn
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Fös 22. Jan 2016 18:43
af Olli
Hann verður aðallega fyrir ljósmyndir og office skjöl, langar að halda venjulegu Windows til þess að tölvan sé einnig nothæf í vafr og skrifstofuvinnslu öðru hvoru
Plex lítur vel út, spurning um að versla bara
þennan disk hjá start og prufa held ég
Er eitthvað sem er betra en plex í þessum tilgangi? Plex virðist vera algjörlega cross-platform able
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Fös 22. Jan 2016 19:40
af nidur
Held að þú ættir að prófa Plex.
Veit ekki hvort þú viljir hardware raid eða software fyrir diskana en hérna eru upplýsingar um hvernig eigi að setja upp raid1 í win stýrikerfi
http://www.buildegg.com/bewp/?p=44Raid1 er samt ekki hægt að treysta á sem backup.
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Fös 22. Jan 2016 20:39
af AntiTrust
Persónulega mæli ég mikið frekar með 3 diskum og RAID5 uppsetningu heldur en R1. Já eða nota bara Storage Spaces sem er innbyggt í W8/W10 og WS2012/R2.
Mæli með því að nota þetta report til að taka meðvitaða ákvörðun um diskaval -
https://www.backblaze.com/blog/hard-dri ... or-q2-2015Plex er by far það besta sem þú finnur þegar kemur að home media server platforms. Emby er mjög flott líka, en það er ekki alveg komið á sama stað og Plexið.
Ég er búinn að keyra Plex server með tugterabætum af efni og deilt með tugum notenda í nokkur ár núna og þetta keyrir bara svo til flawlessly dag eftir dag, mánuð eftir mánuð.
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Fös 22. Jan 2016 23:22
af GuðjónR
Án efa eru HGST bestu diskar sem völ er á, það sýna endalausar kannanir og prófanir, en eru þeir fáanlegir á Íslandi?
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Fös 22. Jan 2016 23:40
af KermitTheFrog
GuðjónR skrifaði:Án efa eru HGST bestu diskar sem völ er á, það sýna endalausar kannanir og prófanir, en eru þeir fáanlegir á Íslandi?
Er HGST ekki sama batterí og Western Digital?
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Lau 23. Jan 2016 01:03
af GuðjónR
KermitTheFrog skrifaði:GuðjónR skrifaði:Án efa eru HGST bestu diskar sem völ er á, það sýna endalausar kannanir og prófanir, en eru þeir fáanlegir á Íslandi?
Er HGST ekki sama batterí og Western Digital?
HGST = Hitachi Global Storage Technologies
https://en.wikipedia.org/wiki/HGST
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Lau 23. Jan 2016 10:19
af nidur
KermitTheFrog skrifaði:Er HGST ekki sama batterí og Western Digital?
Wikipedia skrifaði:On March 8, 2012, Western Digital (WD) acquired Hitachi Global Storage Technologies for $3.9 billion in cash and 25 million shares of WD common stock valued at approximately $0.9 billion. The deal resulted in Hitachi, Ltd. owning approximately 10 percent of WD shares outstanding, and reserving the right to designate two individuals to the board of directors of WD. It was agreed that WD would operate with WD Technologies and HGST as wholly owned subsidiaries and they would compete in the marketplace with separate brands and product lines
Jú, en ekki sömu diskar.
Ætlaði að versla svona diska einusinni en fannst of dýrt að flytja þá inn, sérstaklega þar sem ég er með raid-z2 og ódýrar að skipta út WD diskunum þegar eitthvað bilar.
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Lau 23. Jan 2016 16:05
af frappsi
http://tecshop.is/search?q=hgstFrekar dýrir. Það er samt Deskstar NAS 3TB á 24þús þarna.
Eru WD RED virkilega svona slæmir?
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Lau 23. Jan 2016 17:57
af nidur
Ef við skoðum nýjustu upplýsingarnar
https://www.backblaze.com/blog/hard-dri ... y-q3-2015/Þá er gaman að sjá 1TB green diskana með svona lága bilanatíðni en með mikið lengri notkunartíma komnir í 6 ár.
Persónulega nota ég bara WD green með WDidle í 300sec, var að enda við að skipta út 4x 1tb fyrir 2tb
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Lau 23. Jan 2016 19:56
af Olli
Líst ágætlega á HGST deskstar diskana hjá Tecshop
3TB á 24.245 kr.-
http://tecshop.is/products/hgst-deskstar-nas-3tb-1413184TB á 33.263 kr.-
http://tecshop.is/products/hgst-desksta ... ata-100212Miðað við þessi plögg þá fer ég klárlega í annan þessara
Re: Gagnaþjónn - ráðleggingar
Sent: Lau 23. Jan 2016 20:18
af Hjaltiatla
Ég myndi sjálfur fara í RAID-Z1 (RAID-5) uppsetningu og kaupa þessa græju :
https://www.ixsystems.com/freenas-mini/ Diskless: á 999.99 $ setja HGST diska í gagnastæðuna (gætir einnig tekið WD RED Drives frá IX systems eins og þeir mæla með) . En eingöngu vegna þess að ég kann á Freenas og ég veit að þeir sem eiga/reka IXsystem komu að þróun á Freenas projectinu og freenas kemur Pre-installed á Dedicated, Internal Flash storage á þessum Mini nas.
Það eru alls konar sniðug plugin sem er hægt að setja upp á Freenas-mini græjuna :
https://doc.freenas.org/9.3/freenas_plugins.htmlGood luck with the build
