Síða 1 af 1

4k eða 1440p skjár

Sent: Fim 15. Okt 2015 23:52
af playmaker
Ég er að íhuga að fá mér nýjan skjá. 27-28" og eitthvað meira en FULL HD.
Aðal spurningin er hvaða upplausn maður ætti að fá sér og einnig hvernig panel, þ.e. IPS eða TN. Skjárinn verður notaður í web browsing og casual gaming. Spila ekki FPS leiki, meira svona Strategy og RPG. GPU er 770 GTX 2 gb. Verð má fara uppundir 700$ give or take.
Hvernig skjá mynduð þið vaktarar mæla með og af hverju?

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fim 15. Okt 2015 23:53
af Póstkassi
Frekar 1440p skjá, þyrftir að minnsta kosti 4gb skjákort til að keyra 4k að einhverju leyti

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 08:41
af jojoharalds
1440p

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 08:54
af playmaker
hvað með IPS eða TN? Er alger vitleysa að kaupa TN skjá?

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 09:14
af kiddi
IPS alla leið ef þú ert ekki í FPS-gamer. Ég átti ASUS ROG 27" fancy 1440p skjáinn sem var með TN panel og ég gat ekki horft á hann því viewing angle er svo ömurlegt, endaði á að selja og fá mér IPS heim, en aftur á móti hef ég vanist IPS & PVA panelum síðustu 10 ár vegna vinnu minnar í myndvinnslu, og er orðinn það góðu vanur að ég get ekki horft á TN skjá án þess að fá verki í augun. TN eru fínir í shoot'em up leikina en ömurlegir í allt annað, og þá meina ég ALLT annað.

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 09:27
af playmaker
Takk fyrir upplýsingarnar. Er http://www.asus.com/Monitors/MX27AQ/ ekki bara nokkuð góð lending eða er einhver annar sem þið mælið frekar með?

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 10:23
af kiddi
Þetta er gorgeous skjár, eina athugasemdin sem ég hef er að hann er ekki hæðarstillanlegur, en mér finnst það pínulítið atriði. Ætlarðu að versla hann erlendis eða á netinu?

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 10:30
af playmaker
Ég myndi versla hann úti.

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 10:41
af kiddi
Ok :) Þessi ASUS skjár er massaflottur, eina sem er er þetta með hæðina á honum, mér finnst flestir óhæðarstillanlegir skjáir of lágir og ég hef alltaf sett stalla undir þá, því mig grunar að ef skjáirnir yrðu framleiddir "fastir" í réttri hæð þá yrðu þeir einfaldlega ljótir og enginn myndi kaupa þá, svo allir eru að kaupa skjá sem er of lágt niðri og fólk fær í bakið. 8-)

Ef þú getur teygt þig aðeins ofar í budget, þá er þetta mest spennandi skjár sem ég veit um:

http://www.bhphotovideo.com/c/product/1 ... urved.html

Ég á flötu útgáfuna af honum (curved var ekki kominn þegar ég keypti) og þetta er bara OSOM, bæði í vinnu og leik - og sérstaklega leik. Svo hef ég góða reynslu af Dell og NEC 27" IPS 1440p skjám, þeir eru nokkuð billegir og fást í kringum $800.

Ég er með þennan í vinnunni og líkar vel:
http://www.bhphotovideo.com/c/product/1 ... creen.html

Þessi er sennilega mest bang-per-buck, hef reynslu af þessum líka:
http://www.bhphotovideo.com/c/product/1 ... nitor.html

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 14:40
af jojoharalds
http://www.lg.com/us/monitors/lg-34UM95 ... de-monitor

ég er með þennan og gæti ekki verið sáttari :)

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Fös 16. Okt 2015 20:40
af playmaker
Takk fyrir svörin. Ætli ég taki ekki Dell http://www.bhphotovideo.com/c/product/1 ... nitor.html þar sem hann hefur hæðarstillingu fram yfir Asus skjáinn. Jólagjöfin í ár!

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Mán 19. Okt 2015 22:10
af playmaker
jojoharalds skrifaði:http://www.lg.com/us/monitors/lg-34UM95-P-ultrawide-monitor

ég er með þennan og gæti ekki verið sáttari :)


Ræður 770 gtx 2gb við svona monster?

Re: 4k eða 1440p skjár

Sent: Þri 20. Okt 2015 02:34
af DaRKSTaR
1440p ips

https://tolvutek.is/vara/benq-gw2765ht- ... ar-svartur

snilldar skjár.. mæli hiklaust með þessum.