Síða 1 af 1
TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 12:22
af KermitTheFrog
Rakst á þennan
Kickstarter sem tveir íslenskir strákar stofnuðu.
Þarna ætla þeir sér að búa til nýjan "universal" kapal með mörgum breytistykkjum á endunum.

Eins og þetta er kynnt þarna þá virðist ekki mikil hugsun hafa farið í þetta. Þeir vilja meina að það verði hægt (með einni snúru) að tengja USB við HDMI, USB við audio jack, Lightning við HDMI o.s.frv.
Svo er þeirra framtíðarsýn að það verði TOB tengi á öllum tölvum svo breytistykkin verði óþörf.
Hef ekki kynnt mér þetta til hins ítrasta en ég hef voðalega litla trú á þessu.
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 12:47
af jericho
Hér er frétt um þetta á Vísi
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 12:51
af hfwf
Sniðugt, en verður aldrei neitt nema það, ekki nenni ég að vera með milljon breytistykki ( easy að tapa einu ). Of mikið hassle imho
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 13:21
af Klemmi
Ég skil ekki þessa mynd.
Á maður með þessari snúru að geta tengt úr USB tengi yfir í HDMI? Hef litla trú á því að það verði möguleiki, en get ekki skilið annað út frá myndinni, líkt og OP.
Ef það er ekki hugsunin, hvað gerist þegar ég tengi USB og 5V spennuna frá því við HDMI eða audio tengi? Get ég skemmt hluti?
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 13:23
af depill
Mig langar ekki að vera svartsýni gæinn en alltaf þegar það kemur upp svona "one standard to rule them all", sem er miklu betri en allir hinir að þá hugsa ég bara alltaf þessa mynd

Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 13:27
af Klemmi
Kickstarter reward skrifaði:1x TOB cable with all the adapters. 10ft(3m) length.
FREE WORLDWIDE SHIPPING
Plan on connecting two devices in different rooms?
Efast um að 3m séu nóg til að tengja milli herbergja, nema þú búir í kassa... æji ég veit ekki alveg, kannski er ég bara öfundsjúkur því þeim hefur greinilega tekist að selja þetta.
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 13:32
af KermitTheFrog
Klemmi skrifaði:Kickstarter reward skrifaði:1x TOB cable with all the adapters. 10ft(3m) length.
FREE WORLDWIDE SHIPPING
Plan on connecting two devices in different rooms?
Efast um að 3m séu nóg til að tengja milli herbergja, nema þú búir í kassa... æji ég veit ekki alveg, kannski er ég bara öfundsjúkur því þeim hefur greinilega tekist að selja þetta.
Það er nefnilega mjög auðvelt að selja svona hluti. Það vilja allir þennan kapal, en fáir vita tæknilegu skorðurnar sem settar eru á svona hugmynd.
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 13:35
af Squinchy
Hleður hraðar! Hahahaha ok
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 14:44
af Klemmi
KermitTheFrog skrifaði:
Ef þessi mynd meikaði eitthvað sense, og þeir segi að þeir geti ekki fengið HDMI í audio og öfugt, af hverju get ég þá ekki haft HDMI í USB í Audio?
Þetta minnir mig á þegar kona sagði mér að sonur hennar hefði fundið upp einfalt breytistykki sem gerði það að verkum að hægt væri að nota DDR2 minni í DDR3 móðurborð.
Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 16:17
af svensven
Squinchy skrifaði:Hleður hraðar! Hahahaha ok
Og það sem kemur með þeirri fullyrðingu er magnað... "
By disabling the sync/data transfer feature your device can charge faster. TOB cable is made using heavy gauge wires that can handle the higher current."
Og svo er það Maximum Data Transfer og ástæðan fyrir því.. USB3 vs USB2
Er svosem ekki sérfræðingur um USB, en eru það ekki yfirleitt tækin sem eru flöskuháls frekar en kaplarnir ?

Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 16:38
af hfwf
Gizmodo commentin eru langt því frá að vera positive um þessa undralausn á kapalvandræðum heimsins

Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 17:21
af Gislinn
depill skrifaði:Mig langar ekki að vera svartsýni gæinn en alltaf þegar það kemur upp svona "one standard to rule them all", sem er miklu betri en allir hinir að þá hugsa ég bara alltaf þessa mynd
*Mynd*
Þessi kemur líka upp í hugann.

Re: TOB cable - Bjartsýni eða framtíðin?
Sent: Mið 25. Feb 2015 18:11
af dori
Þetta hljómar alveg hrikalega illa af svo mörgum ástæðum.
Hvað varð um ferðavindtúrbínuna sem þessir snillingar voru að búa til?