Síða 1 af 1

Minni með móðurborði eða örgjörva ..

Sent: Mið 17. Nóv 2004 14:49
af Gestir
Sælar stúlkur... og drengir...

Var að pæla.
Ég er með móðurborð sem að supportar minni upp í 400DDR2 eða þannig. Abit Kv7 heitir það. En ég er bara með 333DDr minni í því eins og er.

Skiptir máli hvað örrinn hefur um þetta að segja eða breytir það engu. Er það einungis móðurborðið sem að les hraðan á minninnu eða þarf þetta allt saman að tala saman. ???

ég er semsé með xp2500 Barton // KV7 móðurborð

Því einhver sagði mér það .. að örrinn þyrfti að supporta DDr400 líka eða álíka... EF það er tilfellið... Græði ég þá EKKert á því að fá mér þannig minni ??

PLZ help ;)

Sent: Mið 17. Nóv 2004 14:54
af Birkir
AMD er ekki komið með DDR2 stuðning :)
En þetta með DDR400 þá held ég að það myndi bara vinna sem DDR333, þar sem barton 2500+ er með 333 í bus

Sent: Mið 17. Nóv 2004 14:59
af einarsig
Þekki ekki mikið inná AMD en ég hugsa að minnið myndi keyra á 333 mhz útaf örranum.

Sent: Mið 17. Nóv 2004 15:11
af gnarr
það er mjög líklga hægt að setja 5/6 divider á minnið til að ná því í DDR400.

PS. DDR2 byrjar í 533

Sent: Mið 17. Nóv 2004 15:57
af elv
Getur næstum alltaf keyrt minnið óháð hraða CPU, gætir þannig séð verið með 100fsb cpu og DDR400 ef þú fyndir móðurborð sem gæti það.

Er með sama móðurborð og þú og keyri minnið á 200mhz ásamt CPU, en get alveg keyrt CPU-inn á 166 en minnið á 200

Sent: Mið 17. Nóv 2004 16:33
af Pandemic
Hvernig í fjandanum geturu verið með ddr333 ddr1 í ddr2 rauf?

Sent: Mið 17. Nóv 2004 16:37
af elv
Pandemic skrifaði:Hvernig í fjandanum geturu verið með ddr333 ddr1 í ddr2 rauf?



Held að hann hafi nú aðeins mismælts....eða misskrifað :?

Sent: Mið 17. Nóv 2004 16:44
af Gestir
ég er bara með venulegt gamalt Princeton DDR 333 minni í þessari venjulegu DDR Rauf :D


Og hugsa að ég græði bara mest á því að fá mér annað eins minni.. og vera þá með 1.gb af 333 minni...

Þar sem að örrinn er bara á 333mhz Bus


Sjáum til í næstu Uppfærslu bara.. þetta virkar mjöög vel í dag..