Skjákortaval


Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Fös 19. Des 2014 10:35

Sæl/ir.
Er að velta fyrir mér skjákortum (midrange). Valið stendur milli gigabyte nvidia geforce 760x OC 2 gb eða gigabyte AMD Radeon R9-270 OC 4gb. Hvort kortið er að standa sig betur í leikjum s.s. COD advanced warfare og Battlefield 4?
kv. Steini.




Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1230
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf Selurinn » Fös 19. Des 2014 10:48

Bæði þessi kort eru mjög sambærileg miða við verð. (GTX 760 kortið hefur sirka 10% meira forskot á AMD kortið enda dýrar)

Ef þú ert að setja þetta í glænýja tölvu myndi ég hiklaust taka GTX 760. Ef um er að ræða eldri vél sem er með örgjöva sem hugsanlega getur verið flöskuháls þá er möguleiki að AMD kortið nýtist betur sökum Mantle.

http://en.wikipedia.org/wiki/Mantle_(API)



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2863
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 551
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf Moldvarpan » Fös 19. Des 2014 11:11

Það er þokkalega mikið framboð af notuðum R9 280X kortum hérna á vaktinni, nýleg og í ábyrgð. Þetta mikla framboð hefur keyrt verðið niður, svo ég myndi ekki hika við að kaupa eitt slíkt.

Lang besta bang for the buck sem þú getur fundið.




Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Fös 19. Des 2014 11:54

Æji, æji. Jæja, var að versla gtx 760. Svona er þetta, maður fær alltaf betri upplýsinga um eitthvað áhugaverðara 10 mín eftir að maður kaupir :(




Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Reputation: 12
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf Tesy » Fös 19. Des 2014 14:17

steinihjukki skrifaði:Æji, æji. Jæja, var að versla gtx 760. Svona er þetta, maður fær alltaf betri upplýsinga um eitthvað áhugaverðara 10 mín eftir að maður kaupir :(


Verður samt ekkert vonsvikinn yfir gtx760 :P




Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Fös 19. Des 2014 15:49

Takk kærlega fyrir svörunina, held ég verði bara ánægður með 760x, er nú svosum enginn ultra spilari :)



Skjámynd

tanketom
</Snillingur>
Póstar: 1052
Skráði sig: Fim 06. Jan 2011 12:39
Reputation: 22
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf tanketom » Lau 20. Des 2014 15:59



Twenty years from now you will be more disappointed by the things that you didn't do than by the ones you did do


Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Lau 20. Des 2014 16:47

Ég hefði greinilega átt að gerast meðlimur fyrr og skoða hvað er í boði hér áður en glænýtt er keypt úr búð. Greinilega hægt að gera góð kaup á nýlegum notuðum tölvuíhlutum ofl. ;)




Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Sun 21. Des 2014 21:32

Eitt enn! Vildi vita hjá ykkur tölvusnillingum hvort skjákjarni á örranum mínum nýtist eitthvað með skjákorti? Er með AMD A10 6000 línu með 4gb skjákjarna. Móðurborðið er AMD A88 sniper. RAM 8 gb 1600 mhz.
kv Steini.




krat
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 397
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 21:14
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf krat » Sun 21. Des 2014 21:59

steinihjukki skrifaði:Eitt enn! Vildi vita hjá ykkur tölvusnillingum hvort skjákjarni á örranum mínum nýtist eitthvað með skjákorti? Er með AMD A10 6000 línu með 4gb skjákjarna. Móðurborðið er AMD A88 sniper. RAM 8 gb 1600 mhz.
kv Steini.

Nei




Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Mán 22. Des 2014 08:51

Verður mikill flöskuháls vegna örgjafans (AMD A10-6800) fyrir 760gtx skjákortið? Þá á ég við í leikjaspilun. Veit að örrinn stenst engan samanburð við Intel i-línuna í t.d. myndvinnslu og reikningaðgerðum ofl.
kv Steini.




krat
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 397
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 21:14
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf krat » Mán 22. Des 2014 09:19

Varðandi flöskuháls í leikjaspilun þá yrði örgjörvi flöskuháls ef það verður einhver flöskuháls þar að segja en það fer alfarið eftir því í hvaða leik þú ert þar sem sumir leikir keyra meira á örgjörva en skjákorti (Minecraft) en FPS leikir aðalega skjákorti osfv.

Varðandi að vinna saman hélt ég að þú værir að tala um compute corse líkt og AMD hefur verið að gera, en þar sem þetta er gtx með amd örgjörva virkar það ekki saman.
http://www.amd.com/en-gb/innovations/so ... pute-cores




Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Mán 22. Des 2014 15:59

Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu :)




krat
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 397
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 21:14
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf krat » Mán 22. Des 2014 18:17

steinihjukki skrifaði:Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu :)

já, þarft samt að stilla það í BIOS.



Skjámynd

hjalti8
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 353
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 13:03
Reputation: 16
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf hjalti8 » Mán 22. Des 2014 19:54

steinihjukki skrifaði:Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu :)


þetta er ekki sniðugt með high end kortum(amk ekki í tölvuleikjum). Einfaldlega vegna þess að kortin eru margfalt hraðvirkari en bestu apu og AFR virkar ekki vel með kortum sem eru ekki jafn öflug af augljósum ástæðum.

hérna geturu séð chart frá amd um hvaða apu/gpu er gott að para saman, og eins og þú sérð þá eru þetta allt budget kort sem eru frekar slöpp
Síðast breytt af hjalti8 á Mán 22. Des 2014 21:50, breytt samtals 1 sinni.




krat
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 397
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 21:14
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf krat » Mán 22. Des 2014 20:30

hjalti8 skrifaði:
steinihjukki skrifaði:Takk fyrir þetta. En gæti þá t.d. AMD r 7 eða r9 línan unnið með skjákjarna á örgjörva? Þ.e. notað saman compute cores? Einn að reyna að ná þessu :)


þetta er ekki sniðugt með high end kortum(amk ekki í tölvuleikjum). Einfaldlega vegna þess að kortin eru margfallt hraðvirkari en bestu apu og AFR virkar ekki vel með kortum sem eru ekki jafn öflug af augljósum ástæðum.

hérna geturu séð chart frá amd um hvaða apu/gpu er gott að para saman, og eins og þú sérð þá eru þetta allt budget kort sem eru frekar slöpp

Allt hárrétt sem þessi segir en AMD hafa verið að lofa betrun í nýju línunni sinni, þar sem cpu og gpu eiga að tala betur saman án hnökra. Vonum bara að það sé satt :baby




Höfundur
steinihjukki
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður.
Staða: Ótengdur

Re: Skjákortaval

Pósturaf steinihjukki » Mán 22. Des 2014 21:40

Gott að heyra i vitrari mönnum. Takk kærlega fyrir.
kv.Steini