Síða 1 af 1

Hvaða Skjákort/Móðurborð og Driver?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 10:34
af Sveinn
Er með 3 spurningar hér:

Svona standa málin:
Ég asnaðist í apríl eða eitthva ðað kaupa mér ATI Radeon 9600XT PowerColor skjákort og Abit AI7 móðurborð. Og síðan þá hef ég verið í vandræðum því að tölvan frís alltaf í leikjum, ég veit um nokkra sem eru með sama móðurborð og skjákort, og hafa bara stillt á 4x AGP eða eitthvað og þá var það vandamál búið, en jæja, það er ekki svoleiðis hjá mér, síðan í apríl er ég búinn að vera reyna að vera sniðugur og laga þetta óþolandi vandamál. En nú er ég eiginlega kominn að því að ég ætla að kaupa mér annaðhvort nýtt móðurborð eða skjákort, hvort væri rökréttara að kaupa sér? Nýtt skjákort eða nýtt móðurborð? Persónulega finnst mér betra að kaupa móðurborð, þar sem skjákortið er gott, en það er móðurborðið líka, svo er líka svo miklu dýrara að fjárfesta skjákort, en það er bara svo mikið mál að kaupa sér nýtt móðurborð, því að næstum allt er tengt gegnum móðurborðið, því þarf ég að taka allt úr sambandi og eitthvað, þannig ég er að pæla í að sleppa því að gera þetta sjálfur og fara með þetta annaðhvort á verkstæði sem er hérna í Neskaupstað(ég veit.. haha .. ), eða þá að bara einfaldlega láta tölvuvirkni gera þetta fyrir mig..
En hvað segjiði? Hvort ætti ég að kaupa mér nýtt skjákort eða Móðurborð. Hvaða móðurborð þá? helst ekki yfir 25 þúsund. Ef skjákort, hvaða skjákort? er það þá ekki bara x800 eða 6800 Ultra? Eða er skjákortið mitt nógu gott(sem mér finnst)

Svo er hérna önnur spurning: Hún er að hvaða skjákorts driver er best að nota, DNA? Omega? eða hvað?

Með fyrirfram þökk.
Kv. Sveinn

Sent: Mán 15. Nóv 2004 10:58
af hahallur
Start er að fara að fá þessi nýju Lan Party borð.
Þau eru sögð það besta til að klukka á markaðnum og eru hræódýr miðað við hina framleiðendurna.

Umfjöllun á anandtech
DFI LANParty UT nF3-250Gb: Overclocker's Dream

http://www.anandtech.com/mb/showdoc.aspx?i=2198

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:05
af einarsig
ef þú ferð í x800 eða 6800 þá á þér eftir að finnast 9600xt kortið prump miðað við nýja kortið ;) , spurning hvort að minnið "gæti" verið að stríða þér, t.d. hjá mér þegar ég skipti um örgjörva, þá frosnaði tölvan þegar ég fór í leiki, komst að því eftir mikið streð að 333 mhz 512 kubburinn var ekki að virka með móðurborðinu þegar það studdi 400 mhz minni.


svona til að reyna útskýra þá var ég með 2.4 ghz p4 400 fsb örgjörva þannig að minnið keyrði þá á 266 mhz en fékk mér 3 ghz p4 800 fsb þá gat minnið keyrt á 333mhz þó að móðurborð gat nú notað 400 mhz.

fékk lánaðann 400 mhz kubb hjá task ( takk task.is ) og þá gekk allt smooth.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:08
af gnarr
neineinei.. tölvan frosnaði ekki. hún fraus!

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:08
af hahallur
einarsig skrifaði:fékk lánaðann 400 mhz kubb hjá task ( takk task.is ) og þá gekk allt smooth.


:popeyed

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:15
af einarsig
gnarr skrifaði:neineinei.. tölvan frosnaði ekki. hún fraus!


lol eitt af fáum sem ég er stundum í vafa, var að spá hvort þetta væri fraus eða hitt ;)

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:29
af Sveinn
Sko einarsig, ég er samt örugglega búinn að keyra 3 forrit eða fleiri sem prófa minnið, öll í 100% lagi. Annars er ég búinn að búa til 3 pósta eða eitthvað sem innihalda vandamálinu að leikirnir frjósa.. segja allir að það sé að Powercolor og abit vinna ekki saman :S

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:33
af einarsig
minnið var ekkert gallað hjá mér, bara virkaði ekki með móðurborðinu þegar það gat stutt 400 mhz minni.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:37
af Sveinn
hahallur skrifaði:Start er að fara að fá þessi nýju Lan Party borð.
Þau eru sögð það besta til að klukka á markaðnum og eru hræódýr miðað við hina framleiðendurna.

Umfjöllun á anandtech
DFI LANParty UT nF3-250Gb: Overclocker's Dream

http://www.anandtech.com/mb/showdoc.aspx?i=2198

Jám, allavega þarna kostar það 115$ ódýrast(newegg), þannig það er ekki það dýrt.. og hva er það að performance-a vel og svona? er hægt að miða það við einhver móðurborð?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:37
af Snorrmund
ég er með akkurat sömu týpu af minni og hann og sama móðurborð, og sama örgjörva, bara radeon 9800pro.. og þetta gerist ekki hjá mér ..

Sent: Mán 15. Nóv 2004 11:56
af hahallur
Sveinn skrifaði:
hahallur skrifaði:Start er að fara að fá þessi nýju Lan Party borð.
Þau eru sögð það besta til að klukka á markaðnum og eru hræódýr miðað við hina framleiðendurna.

Umfjöllun á anandtech
DFI LANParty UT nF3-250Gb: Overclocker's Dream

http://www.anandtech.com/mb/showdoc.aspx?i=2198

Jám, allavega þarna kostar það 115$ ódýrast(newegg), þannig það er ekki það dýrt.. og hva er það að performance-a vel og svona? er hægt að miða það við einhver móðurborð?


Það verður nátla aðeins dýrara í start en móðurborðið sem þú ert með núna en allveg þess virði.
Allavega ætla að ég láta afa sigga setja þetta í jólapakkann minn :megasmile

Sent: Mán 15. Nóv 2004 12:34
af Sveinn
Já k, ætli ég fái mér ekki abra svona þótt að ég nenni nú varla að bíða sovna lengi við að komast í Rome: Total war! :twisted: , en hérna, kemur þetta þá í mánaðalok eða hvað?

Sent: Mán 15. Nóv 2004 12:35
af hahallur
Það á að koma í start á sama tíma og HL-2.
Ég held að þú sért ekki á leiðinni að bíða.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 12:44
af Sveinn
16 Nóvember kemur hl2 í bt ;) jeee

Sent: Þri 16. Nóv 2004 00:08
af sikki
Ja lanparty, bara eins og þú ert alltaf í ha ? :lol:

vá ég ætti að fara að sofa eða leggjast í dvala

Sent: Þri 16. Nóv 2004 00:18
af Sveinn
hahallur skrifaði:Start er að fara að fá þessi nýju Lan Party borð.
Þau eru sögð það besta til að klukka á markaðnum og eru hræódýr miðað við hina framleiðendurna.

Umfjöllun á anandtech
DFI LANParty UT nF3-250Gb: Overclocker's Dream

http://www.anandtech.com/mb/showdoc.aspx?i=2198

WTF?! :l CPU Interface Socket 754 Athlon 64 -- ekki intel? :? :evil:

Edit: Getiði þá bent mér á eitthvað gott intel móðurborð?

Sent: Þri 16. Nóv 2004 08:38
af hahallur
Varstu ekki en búin að fatta það.

Þú varst að segja að þitt drasl væri að frosna.
Móðurborðið sem þú ert með núna er mjög gott og ef ég man rétt þá er félagi okkar hann Fletch með það.

Farðu bara með tölvuna í viðgerð :D

Sent: Þri 16. Nóv 2004 08:44
af Pandemic
EKKI FROSNA HELDUR FRAUS
komið þessu inní hausinn á ykkur

Sent: Þri 16. Nóv 2004 10:58
af Stebbi_Johannsson
fáðu þér frekar nýtt skjákort :)

Sent: Þri 16. Nóv 2004 16:07
af Sveinn
hahallur skrifaði:Farðu bara með tölvuna í viðgerð :D

Búinn að eyða hellings pening í það, fór með tölvuna í viku til start.is, fundu ekki neitt að henni, reyndar voru þeir ekki með abit ai7 móðurborð, eitthvað annað abit.

Sent: Þri 16. Nóv 2004 17:40
af BlitZ3r
er ekki betra að kaupa skjákort ? fá eitthvað gott skjakort en biða með móðurborð og örgjörva í bili

Sent: Þri 16. Nóv 2004 20:50
af Sveinn
Já ég meina, þá væri það eitthvað í ATI röðinni, sko þá er það 9800 PRO eða x800 :) ókei, 9800 pro, sætti mig við verðið á því, en hehe hin! :S jaa veit ekki skom :P

Sent: Þri 16. Nóv 2004 21:39
af hahallur
Hvernig væri þá að formata tölvuna.
Leysir það ekki alltaf allt nema bilað hardware.

Sent: Þri 16. Nóv 2004 22:33
af Sveinn
Jébb, er að spá í því, bara þegar ég hef þolinmæðina í að seta windows upp, alla driverana aftur og svo öll forrit :)