Síða 1 af 1
"Blue Screen of DEATH"
Sent: Fim 04. Nóv 2004 22:31
af noizer
Ég fékk mér demo af huga og þegar ég fór að spila það þá kom "Blue Screen of Death" og ég restaraði tölvunni og svo fór ég aftur í leikinn til að prófa annað en þá kom þetta sama og ég restartaði tölvunni en þegar það er að kveikna á tölvunni stopar það og stendur "Disk boot faileur, put XP disk in and press enter" (hljómar kannski ekki svona en nálægt því).
En svo er tölvan mín með það vandamál að geta ekki formatað
Þ.e.a.s þegar ég er kominn í hlutann með Partition þá kemur "Blue Screen of Death" (eins og tölvan mín hefur æði fyrir) og það er sami blue screen og kom þegar ég var að spila demo-ið (svona held það, allavega
mjög líkt).
En ef ég get ekki kveikt á tölvunni nema láta XP disk í sem virkar ekki af því þá kemur blue screen hvað er það eigielga hægt að gera

Sent: Fim 04. Nóv 2004 22:56
af BlitZ3r
held að þú þurfir bara að formmatta
Sent: Fim 04. Nóv 2004 23:00
af noizer
Já ég veit en ég er bara svona spá hvernig ég á að fara af því af því það kemur Blue screen þegar ég reyni að formata
Held það sé útaf minninu en er ekki að týma að kaupa nýtt
Sent: Fim 04. Nóv 2004 23:48
af Mysingur
ertu búinn að reyna að formatta diskinn í annarri tölvu?
prufaðu líka að taka annann minniskubbinn úr og gá hvort þetta kemur...
Sent: Fös 05. Nóv 2004 01:38
af llMasterlBll
kemstu í bios...eða valmöguleikan með safe mod og RECOVERY fom last known blablablablabla dæminu... kannast við þetta eftir warcraft 3 demo fyrir löngu síðan... recovery var nóg... tók svona 10 mín!!
Sent: Fös 05. Nóv 2004 14:41
af noizer
Ég náði að kveikja á tölvunni með því að gera eitthvað í BIOS en þetta format vesen er ennþá.
Ég er búinn að prófa að taka einn minniskubb úr tölvunni og reyna að formata, það kom sama error.
Svo lét ég minniskubbinn í og tók hinn úr og prófaði að formata, það kom sama error.
Held að minnin séu eitthvað biluð en ég tými bara ekki að kaupa ný

Sent: Fös 05. Nóv 2004 16:17
af gnarr
ég veðja við þig uppá litla entertakkann á lyklaborðinu mínu að þetta er ekki minnið, heldur corrupt format/fdisk fæll sem þú ert að reyna að nota, eða ónýtur ribbon.
Sent: Fös 05. Nóv 2004 16:29
af noizer
ég er að nota XP disk sem fylgdi með tölvunni
Hvað er ribbon?

Sent: Fös 05. Nóv 2004 20:11
af BlitZ3r
ide kapall
Sent: Lau 06. Nóv 2004 00:19
af gnarr
það skiptir engu máli hvort xp diskurinn hafi fylgt með tölvunni eða ekki. það getur verið ónýtur fæll á honum. fáðu lánaðann windows disk hjá vini þínum eða reddaðu þér startup disk.
Sent: Lau 06. Nóv 2004 00:38
af BlitZ3r
gæti verið að diskurinn sé ill rispaður eða settur bolli á hann og bollin blautur undir

Sent: Lau 06. Nóv 2004 00:56
af noizer
Nei það er allt í lagi með diskinn sko, ekkert rispaður.
Gæti bara verið gallaður fæll á honum eins og gnarr sagði