Síða 1 af 1

Skrifari hvorki les né skrifar

Sent: Mið 27. Okt 2004 16:17
af viddi
Jamm ég er í smá vandræðum með mjög nýlegan skrifara keyptan í task
málið er það að þegar ég set disk í þá gerist ekki neitt diskurinn kemur ekki upp í my comp. en drifið kemur upp þar ég er búinn að tjékka IDE kapalinn og búinn að prófa að setja drifið aftur upp en ekkert gengur
einhverjar hugmyndir ?

Sent: Mið 27. Okt 2004 16:34
af Stebbi_Johannsson
ef hann er í ábyrgð fara með hann í task og láta þá redda þessu?

Sent: Mið 27. Okt 2004 16:51
af viddi
smá vandamál með það ég finn ekki nótuna :(

Sent: Mið 27. Okt 2004 17:05
af Pandemic
ætti ekki að skipta neinu

Sent: Mið 27. Okt 2004 17:19
af einarsig
ef nótan var skrifuð á kennitölu eiga þeir að geta flett henni upp.

Sent: Mið 27. Okt 2004 17:58
af MezzUp
búinn að prófa hann í annari tölvu?

Sent: Mið 27. Okt 2004 18:11
af Pandemic
Eitt sem ég ráðlegg þér er að hafa skrifaran ekki tengdan í ide kapall sem er tengdur harðadisk.

Vertu bara með geisladrif á secondary ide
og Bara harðadiska og primary ide

Sent: Mið 27. Okt 2004 18:54
af viddi
ég er með hann á secondary og hdd á primary

og nei ég hef ekki prófað hann í annari tölvu

Sent: Mið 27. Okt 2004 19:06
af Pandemic
Sko þú mátt alls ekki vera með harðadisk og geislaskrifara á sömu snúru

Sent: Mið 27. Okt 2004 19:07
af viddi
ég er ekki með geislaskrifara og harðadisk á sömu snúru

Sent: Mið 27. Okt 2004 20:13
af MezzUp
Pandemic skrifaði:Sko þú mátt alls ekki vera með harðadisk og geislaskrifara á sömu snúru

jánei, þetta er einfaldlega kolrangt. Care to back that up?

Sent: Fim 28. Okt 2004 00:55
af gumol
Kemur drifið í BIOS'inu hjá þér?

Sent: Fim 28. Okt 2004 07:27
af viddi
jebb það kemur í BIOS

Sent: Fim 28. Okt 2004 09:59
af Voffinn
Pandemic skrifaði:Sko þú mátt alls ekki vera með harðadisk og geislaskrifara á sömu snúru


Ég held að það sé kominn tími á að þú farir að hætta að pósta eitthvað um eitthvað sem þú hefur greinilega ekki græna glóru um.

Síðan hvenær mega geisladrif ekki vera á sama kapli og harðir diskar? Er ég semsagt búinn að vera heppinn að allar tölvurnar mínar og bara örugglega meirihlutinn af öllum tölvum sem ég hef gert við virka bara af heppni?

Sent: Fim 28. Okt 2004 11:30
af Pandemic
Ég fékk þessi tilmæli frá manninum í Tölvuvirkni. Geisladrifið mitt funkerar bara alls ekki þegar ég tengi það í kapall með öðrum harðadisk á virkar þannig að hún byrjar að skrifa disk og hraðin droppar síðan niður þangað til að drifið stoppar þetta gerist ekki þegar ég er með geisladrifið á sér kapli.
Enda er það líka mjög fín regla að tengja harðadiska og geisladrif í sitthvora kaplana.

Yfirleitt reyni ég nú ekki að skrifa mínar tillögur sem fullyrðingar en það sem ég skrifaði hér fyrir ofan fór víst einhvað í rugl.

Sent: Fim 28. Okt 2004 12:55
af gnarr
þetta er rétt hjá pandemic! ég fékk líka þessa viðvörun í EZ CD Creator í gamladaga. það varaði mig við að ég ætti aldrei að vera með source og destination á sömu IDE rás.

Sent: Fim 28. Okt 2004 14:15
af MezzUp
gnarr skrifaði:þetta er rétt hjá pandemic! ég fékk líka þessa viðvörun í EZ CD Creator í gamladaga. það varaði mig við að ég ætti aldrei að vera með source og destination á sömu IDE rás.

Er það ekki bara ef þú ert að copy'a on-the-fly á milli geisladrifa?

Sent: Fim 28. Okt 2004 14:31
af gnarr
hmm.. það gæti verið. en ef þú spáir í því að geisladrif eru að nota mun minni bandvídd en geisladiskar. þannig að ef maður er með skrifara á sömu rás og skrifarann og fer síðan að afrita af/á disknum á meðan maðru er að skrifa eitthvað, þá hlítur allt að fara í fokk.

Sent: Lau 30. Okt 2004 04:29
af llMasterlBll
gnarr skrifaði:hmm.. það gæti verið. en ef þú spáir í því að geisladrif eru að nota mun minni bandvídd en geisladiskar. þannig að ef maður er með skrifara á sömu rás og skrifarann og fer síðan að afrita af/á disknum á meðan maðru er að skrifa eitthvað, þá hlítur allt að fara í fokk.


skil ekki og nenni ekki einusinni að reina................. þó svo að Íslenska sé ekki mitt móðurmál þá er þetta bara mjög dularfult!

Sent: Lau 30. Okt 2004 13:01
af gnarr
ég byðst afsökunar (ég var að deyja úr þreytu í vinnunni).. þetta átti að vera:

"hmm.. það gæti verið. en ef þú spáir í því að geisladrif eru að nota mun minni bandvídd en harðirdiskar. þannig að ef maður er með harðanndisk á sömu rás og skrifarann og fer síðan að afrita af/á harðadisknum á meðan maður er að skrifa eitthvað, þá hlítur allt að fara í fokk."

Sent: Lau 30. Okt 2004 13:07
af so
Mig minnir nú að ef þú ert með hd og cd drif á sama kapli, þá vinna bæði drifin á hraða hægara drifsins.

Það er allt í lagi að hafa það svona en ekki mælt með því ef þú getur haft það á annan veg.