Síða 1 af 1

Driver Problem

Sent: Þri 26. Okt 2004 21:39
af Sup3rfly
Ég er ekki viss hvort þetta eigi heima hérna í skjákort en ég er nokkuð viss samt :8) .

Málið er þannig að í ÖLLUM leikjum sem ég á þá detta þeir út eftir mislangann tíma (stundum 2 mín, stundum 5 klst :wink: ) og annaðhvort er það CTD eða frosin tölva. Svo þegar ég sendi þessum Windows mönnum error report þá fá ég að þetta er driver problem en ekki vitað hvaða driver eða fyrir hvað. Ég er svosem bara búinn að installa 2 driverum fyrir eitthvað á tölvunni (nýformöttuð) sem eru fyrir skjákortið og chipset, ég er búinn að prófa að installa 3 misgömlum skjákortsdriverum en bara einum chipset driver (þeim nýjasta af http://www.giga-byte.com ).

Ef einhver getur sagt mér hvað gæti verið að valda þessu babbi í bátinn minn þá endilega segið mér það svo ég geti reynt að laga það.

Sent: Mið 27. Okt 2004 08:42
af Stutturdreki
Microsoft Error Reporting virðst (að minni reynslu) kenna 'Driver' um þegar það hefur ekki hugmynd um hvað er að. Svona eins og þegar þú ferð til læknis og hann segir að þú sért með vírus.

Myndi hjálpa ef þú gætir sagt hvaða villu skilaboð koma upp? (það er að segja þegar tölvan frýs ekki)

Atriði sem þú getur athugað eru: hiti, yfirklukkun, sósamstætt/gallað minni og hugsanlega of lítið psu? Það virðast vera svona helstu vandamálin..

Sent: Mið 03. Nóv 2004 22:53
af Sup3rfly
Hiti: Er alltaf á skjákorti um 40-50°C og CPU er mjög stable á skikkanlegum hita
Clocking: Allt Stock
Minni: Hmmm ekki viss á þessu er ekki eitthvað forrit sem að tékkar á þessu fyrir mann?
PSU: 400W ætti að vera meira en nóg með mína specca. Svo restartar hún sér ekki alltaf stundum dettur hún bara út.

Ég var að leita að BIOS update og fann þessi HÉRNA en á ég að downloada öllum eða bara F7 útgáfunni? Er ekkert að taka neina sénsa með BIOS

Sent: Fim 04. Nóv 2004 07:23
af gnarr
hljómar eins og minnið sé að ofhitna eða sé bilað.

Sent: Fim 04. Nóv 2004 19:45
af Sup3rfly
Já eins og ég sagði í fyrri póstinum mínum, er þá ekekrt forrit sem að tékakr hvort það sé bilað?

Og hvernig er svo með BIOS updateinn hvern á ég að taka?

Sent: Fös 05. Nóv 2004 07:22
af gnarr
taktu bara nýjasta biosinn.

Sent: Fös 05. Nóv 2004 14:51
af Sup3rfly
Ok ég þarf fávita leibeiningar við að setja BIOS-inn upp. Er búinn að leita eitthvað á gigabyte síðunni en finn ekkert.

Sent: Fös 05. Nóv 2004 20:02
af BlitZ3r
hvernig borð er þetta ?

Sent: Fös 05. Nóv 2004 20:47
af Sup3rfly
Gigabyte K8NS Pro

Sent: Fös 05. Nóv 2004 20:58
af BlitZ3r

Sent: Lau 06. Nóv 2004 10:18
af OverClocker
Bios veldur ekki svona óstöðuleika.. prófaðu frekar að fá lánað annað nvidia kort og kanna hvort það frjósi líka.