Fractal Design Node 304 Build Log (m-ITX)


Höfundur
Santos
Græningi
Póstar: 36
Skráði sig: Sun 20. Apr 2014 16:41
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Fractal Design Node 304 Build Log (m-ITX)

Pósturaf Santos » Þri 22. Apr 2014 20:22

Daginn strákar og stelpur
Ég er að vinna í að builda nýja m-ITX vél. Þetta er búið að vera langþráður draumur hjá mér að geta farið í littla sæta mini ITX build sem er algjört powerhouse :)
Semsagt íhlutirnir í vélinni verður flest allt (ef ekki bara allt saman) premium íhlutir þar sem ekkert er verið að spara.

Hérna kemur listinn yfir það sem er í elskunni.
Móðurborð Asus Republic of Gamers: Maximus VI Impact mITX (http://www.asus.com/Motherboards/MAXIMUS_VI_IMPACT/)
Örgjörvi Intel Core i5 4670K
Örgjörvakæling Noctua NH-U12S, með auka viftu fyrir Push-Pull config. (http://www.noctua.at/main.php?show=prod ... =63&lng=en)
Skjákort EVGA GTX 780TI Superclocked (http://www.evga.com/Products/Product.as ... P4-2883-KR)
Minni Crucial Ballistix Elite 8GB DDR3 1866 Mhz (http://www.crucial.com/store/partspecs. ... 1869DE1TX0)
SSD Samsung 840 Pro 256GB (http://www.samsung.com/us/computer/memo ... Z-7PD256BW)
HDD Seagate 2TB 7200 RPM
Aflgjafi Corsair AX760 Platinum (http://www.corsair.com/en/ax760-atx-pow ... odular-psu)
Kassi Fractal-Design Node 304 Black (http://www.fractal-design.com/home/prod ... -304-black)
Stýrikerfi Windows 8.1 Pro (Genuine)

Ég er búinn að panta Noctua kælinguna og Skjákortið á netinu og það er á leiðinni og verður væntanlegt í byrjun næsta mánaðar (maí 2014)
Og kassinn er einnig á leiðinni og verður kominn á mánudaginn til landsins (28.apríl)

Hér eru nokkrar myndir af þessu sem ég er kominn með, en ég buildaði bara tölvuna án kassa (for the lulz) og er með hana þannig núna og hún þrusu virkar. Ég ætla ekki að yfirklukka örgjörvan fyrr en ég fæ kælinguna.

Hér eru nokkrar myndir af þessu öllu saman.
Mynd
Mynd
Mynd

Skjákortið sem ég er að nota núna er 9800GTX, svona bara til bráðabyrgðar.

Svo að lokum verð ég með update þegar þetta allt saman er komið í hús og þegar ég set þetta í kassan og geri þetta fínt.

Svo hvernig finnst ykkur þetta vera? Er þetta ekki allt saman á réttri leið :D

Kveðja
Santos
Síðast breytt af Santos á Þri 22. Apr 2014 20:42, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Hvati
Geek
Póstar: 804
Skráði sig: Mán 19. Jan 2009 12:36
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Fractal Design Node 304 Build Log (m-ITX)

Pósturaf Hvati » Þri 22. Apr 2014 20:40

Þetta er töff, post updates!



Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 879
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 163
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Fractal Design Node 304 Build Log (m-ITX)

Pósturaf Hrotti » Þri 22. Apr 2014 20:55

hvar pantaðiru kassann?


Verðlöggur alltaf velkomnar.


Höfundur
Santos
Græningi
Póstar: 36
Skráði sig: Sun 20. Apr 2014 16:41
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Fractal Design Node 304 Build Log (m-ITX)

Pósturaf Santos » Þri 22. Apr 2014 21:00

Ég pantaði hann hjá Start. Þetta er allt saman pantað hjá Start, nema Skjákortið og Kælingin. Búið að vera frábær þjónusta hjá þeim :D