Síða 1 af 1

Arctic ATI Silencer

Sent: Mán 18. Okt 2004 17:29
af Revenant
Jæja spurning mín er einföld.

Hefur einhver prófað svona græju(r)?

Ég hef mikið verið að spá í að kaupa Arctic Cooling ATI Silencer 3 fyrir 9800XT kortið mitt en það sýnir núna með stock kælingu 72°c hita (að vísu eftir smá leikjaspilun).
Ég hef kíkt á zalman kælinguna en eftir því sem ég kem næst passar það ekki á kortið mitt.

Með fyrirfram þökk.

Sent: Mán 18. Okt 2004 17:59
af hahallur
Nákvamlega sama og hjá mér nema mitt er gallað og er með artifacts.
Ég setti auka viftu og þá lækkaði hitin niður í 60-64°C

Sent: Mán 18. Okt 2004 19:21
af BlitZ3r
hitin á örruglega eftir að lækka. en veistu hvað þetta kostar ? hef góðan áhuga seta á mitt og flasha það í 9800xt

Sent: Mán 18. Okt 2004 19:39
af Revenant
Ef ég skil allar reglur rétt þá get ég fengið mitt á sirka 4700kr

Verð: £16,59
Shipping: £6,78
VAT: £4,09
Samtals £27,46

Gengi: 126kr

Tollskýsla: 350 kr
VSK (24,5%): 850 kr

Heildarverð: ~4700 kr


Er þetta ekki annars réttir útreikningar?

Sent: Mán 18. Okt 2004 20:41
af Skippo
Revenant skrifaði:Ef ég skil allar reglur rétt þá get ég fengið mitt á sirka 4700kr

Verð: £16,59
Shipping: £6,78
VAT: £4,09
Samtals £27,46

Gengi: 126kr

Tollskýsla: 350 kr
VSK (24,5%): 850 kr

Heildarverð: ~4700 kr


Er þetta ekki annars réttir útreikningar?




VAT er virðisauki og hann er aldrei borgaður af vöru sem seld er til útlanda, s.s. þú borgar hann ekki úti heldur legst hann á hér heima.

Er ekki tollur á þessu hér heima eða hvað? Ef svo er, er tollur settur á hana hér heima og vsk borgaður af allri upphæðinni með flutningsgjaldi (held meir að segja að tollskýrslan sé tekin með). Miðað við að varan sé án tolls sýnist mér að þetta séu um 4.100 kr.- m.v. 126 isk/gbp

Sent: Mán 18. Okt 2004 21:09
af hahallur
Ég held þetta sé ekki gáfulegt
Frekar bara að fá sér þessa það kostar álíka mikið en hún kælir betur

http://start.is/product_info.php?cPath=76_46&products_id=734

Sent: Mán 18. Okt 2004 21:34
af Revenant
Satt að segja þá nenni ég varla að púsla þessari zalman kælingu á kortið :)

Sent: Þri 19. Okt 2004 10:02
af emmi
Zalman kælir ekki betur en stock kælirinn gerir. Eina gagnið að Zalman er að hún er hljóðlaus, ég mæli miklu meira með þessari Arctic kælingu ef þú ert að spá í að kæla kortið frekar en að minnka hávaðann.

Sent: Þri 19. Okt 2004 12:03
af Stebbi_Johannsson
uuu fá sér Zalman kælinguna og OP 1

Samkvæmt reviews á netinu er hitinn á kortinu að detta niður um 10-18°C við það að vera með þetta bæði. Hiti einungis að detta niður um 2-3°C þegar fólk er bara með hlunkinn.

Sent: Þri 19. Okt 2004 12:48
af hahallur
Einhverjri compare links ?

Sent: Þri 19. Okt 2004 21:22
af Revenant
Jæja ég pantaði mér eitt svona stykki frá UK. Læt ykkur vita hvernig þetta fúnkerar þegar þetta kemur í hús.

Sent: Þri 19. Okt 2004 21:37
af hahallur
Ok það er stable í 72-73° með venjulegu viftunni.
Gaman sjá hvað það lækkar ef það lækkar :wink:

BTW hvar keyptiru það.
Alltaf hafa varan á þegar verzlaðar eru vörur af netinu

Sent: Mán 25. Okt 2004 21:47
af hahallur
Veit ekki af hverju ég er að posta aftur en ég er bara mjög spentur að sjá hvort þetta geri sig.

Sent: Mán 25. Okt 2004 23:41
af Revenant
Jámm ég var að fá þetta í hendurnar í kvöld, tók sirka 15 mín að skella þessu á.

Allavega þá er minna hitastig á skjákortinu þegar það er idle (~60°c (var 70°c idle)) Undir heavy load þá fer það upp í 65-70°c. (74-78°c áður).

En sem bónus þá lækkaði hitastigið á norðurbrú og örgjörfanum um nokkrar gráður sem er ágætur plús :)

Þetta kostaði samtals 4800kr sem er ódýrara heldur en zalman kæliplatan + viftan. Auk þess er miklu einfaldara að setja þetta á.

P.s. þá keypti ég þetta frá Kustom PCs. Fékk þetta í Royal Mail specialdelivery poka og 2 lögum af svona thingí sem er alsett plastloftbólum. Topp þjónusta þar .

Sent: Þri 26. Okt 2004 09:38
af hahallur
Er hægt að fá mynd af þessu hjá þér.
Svona er þetta hjá mér.

Sent: Þri 26. Okt 2004 14:33
af Revenant
Hérna er mitt en athugaðu að ég er ekki með neinar kassaviftur sem blása inn eða út. (peakið þarna er þegar ég ræsti direct3d leik í smá tíma). Annars hef ég verið að nota ATITool til að lesa af hitann.

Síðan finnst mér þetta vera hljóðlátari kæling heldur en retail.

Sent: Þri 26. Okt 2004 14:52
af hahallur
Þetta Radeon 9800 XT er bara svo steikt :)
Ekkert við því að gera ( þá meina ég ekki steigt sem lélegt heldur allt of heitt )
Enda var að kveikna í mínu en ég fékk að skipta því fyrir X800 Pro fyrir 9000kall sem ég er sáttur við.
Ég var búin að eiga 9800 XT í 9mánuði þannig ég er ekkert pist.

Ég man líka að þegar ég var með 9800 þá var core temature 48-50 í rivatuner. Þannig mér sínist þú hafa grætt á þessu.

Svo ef þú villt fara að klukka þetta eitthvað smá mæli ég með
http://start.is/product_info.php?cPath=76_46&products_id=478

Þetta lækkaði hitan hjá mér álíka mikið og Artic Silencer-inn hjá þér þannig að ef þú setur þetta ódýra stikki í ætturu að geta verið óhræddur við að klukka smá.