Síða 1 af 1

Compact Flash kort

Sent: Þri 12. Okt 2004 11:54
af geirigusa
Hvar er ódýrast að kaupa 256MB compact flash kort á Íslandi, og með hverju mælið þið?

Sent: Þri 12. Okt 2004 12:18
af kiddi
SanDisk eru bestu kortin, og ódýrust hjá computer.is - keypti mér reyndar noname 1GB CF kort þar á 12þús um daginn og uni mjög vel :D

Sent: Þri 12. Okt 2004 16:16
af Manager1
Fyrst að það er komin kortaumræða hérna þá fer ég ekkert að starta nýjum þræði.

Ég var að spá hvort Sony vélarnar tæku eitthvað annað en MemoryStick kortin, og þá hvort það væru einhver betri/ódýrari kort í Sony vélarnar fáanlegar á Íslandi.

Sent: Þri 12. Okt 2004 16:41
af gnarr
memorystick eru laaaang hröðustu kortin á markaðnum. en þau er líka með þeim dýrari.

Sent: Þri 12. Okt 2004 17:26
af kiddi
Eina Sony vélin sem tekur eitthvað annað en MS er Sony CyberShot F828 sem er einmitt vélin sem ég á... reyndar finn ég engan mun á hefðbundnum MemoryStick kortum og hefðbundnum CompactFlash kortum í hraða, og tek vægast sagt mikið af ljósmyndum ;)

Sent: Mið 13. Okt 2004 00:32
af Manager1
OK, ég held mig þá bara við MemoryStick :)

Málið er að ég var að skoða 256mb MemoryStick kort um daginn, og þau kosta 12-13 þúsund og svo sá ég að Kiddi keypti sér 1gb kort á sama pening og þá hugsaði ég "andskotinn, Sony hlýtur að taka eitthvað annað en MemoryStick" :)