Síða 1 af 1

Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 11:40
af Vaski
Var að skoða harða diska, hvenær vantar mann ekki meira geymslupláss, og rak þá augun í það hvað 4tb diskar eru dýrir hér á landi, miðað við USA, en á sama tíma er terabætið að kosta það saman á Íslandi og USA í 3tb diskunum. Hvað veldur því að 4tb diskar eru miklu dýrari hérna en landi hinna frjálsu?

Það má hugsanlega snúa þessu við og spyrja, hvernig tekst íslenskum búðum að selja 3tb diska á sama verði og í bandaríkjunum? og það væri kannski réttara að setja spurninguna þannig fram, þar sem vaninn segir að þeir ættu að vera dýrari hérna en úti.

Í þessari skoðun minni fann ég verð á newegg og skelti 10 dollara sendingargjaldi ofan á verði[ og síðan 25% vsk (er hann það ekki annars).
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6822148907
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 0%20%20%20

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 12:42
af KermitTheFrog
Minni eftirspurn?

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 13:36
af appel
Hefur ekkert með eftirspurn að gera.

OP spyr um hví þeir eru svona dýrir _hérna_.

Það kostar alveg jafn mikið fyrir íslenskan söluaðila að kaupa, flytja inn og selja 4TB disk einsog minni diska. Þetta er bara álagning á nýjar vörur sem ekki er komin eins mikil verðvitund og verðsamkeppni um.

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 14:16
af KermitTheFrog
Meinti nú bara þannig að verlsanir selja meira af tveggja og þriggja terabæta diskum. Því geta þær keypt inn í meira magni og er innkaupsverðið lægra.

Svo getur vel verið að það sé verið að bjóða upp á þetta til að bjóða upp á þetta.

Mín reynsla er allvega sú að fólk er ekkert mikið að leita í 4TB diska.

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 14:33
af worghal
KermitTheFrog skrifaði:Meinti nú bara þannig að verlsanir selja meira af tveggja og þriggja terabæta diskum. Því geta þær keypt inn í meira magni og er innkaupsverðið lægra.

Svo getur vel verið að það sé verið að bjóða upp á þetta til að bjóða upp á þetta.

Mín reynsla er allvega sú að fólk er ekkert mikið að leita í 4TB diska.

ef 4tb væru á viðráðanlegu verði, þá væri ég löngu búinn að kaupa tvo til að minka hlutfall stóru diskana hjá mér.

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 14:38
af KermitTheFrog
Ég er ekki að segja að það kaupi enginn 4TB diska. Þetta verð á eflaust eftir að lækka í framtíðinni og 6,8,10 og 20TB diskar verða dýrari per GB.

En þetta er bara mín tilgáta. Þarf ekki að vera guðs heilagur sannleikur.

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 18:27
af Vaski
appel skrifaði:Þetta er bara álagning á nýjar vörur sem ekki er komin eins mikil verðvitund og verðsamkeppni um.


hefði þetta ekki líka átt að vera svoleiðis í usa, af hverju eru neytendur öðruvísi á íslandi en þar?

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 20:27
af trausti164
Vaski skrifaði:
appel skrifaði:Þetta er bara álagning á nýjar vörur sem ekki er komin eins mikil verðvitund og verðsamkeppni um.


hefði þetta ekki líka átt að vera svoleiðis í usa, af hverju eru neytendur öðruvísi á íslandi en þar?

Þeir eru m.a. Færri.

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 21:31
af gardar
KermitTheFrog skrifaði:Mín reynsla er allvega sú að fólk er ekkert mikið að leita í 4TB diska.



ég pantaði mér 11 stykki að utan fyrir nokkrum vikum :happy

Re: Af hverju eru 4Tb diskar svona dýrir hér á landi?

Sent: Fim 12. Des 2013 21:44
af worghal
gardar skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:Mín reynsla er allvega sú að fólk er ekkert mikið að leita í 4TB diska.



ég pantaði mér 11 stykki að utan fyrir nokkrum vikum :happy

hvaðan og hvað var þetta að kosta per disk?