Síða 1 af 1

Ekkert plug fyrir Joystick/Stýri á móbói!

Sent: Sun 03. Okt 2004 18:17
af ErectuZ
Já, þá kom að því að ég ætlaði að plugga inn gömlu stýri sem ég átti til að geta fengið þetta rétta fíl í bílaleikjum og svona. En jæja, ég ætlaði að plugga því inn, en þá komst ég að því að það er ekkert til að plugga því í á móðurborðinu (Aftan á tölvunni þá, augljóslega). Þannig að ég var að pæla hvort að það er einhver önnur leið til að plugga stýrinu inn?

Takk fyrirfram

Edit: Ó, og ef það kemur einhverju við, þá er þetta Gigabyte GA7VT600 móðurborð :wink:

Sent: Sun 03. Okt 2004 19:14
af Snorrmund
gætir reynt að redda þér ódýru pci skjákorti.. svona tengi eru oftast á .þeim..
bara disabla soundið í þeim :D

Sent: Sun 03. Okt 2004 19:16
af ICM
Getur fengið gameport/midi port fyrir nær öll Creative hljóðkort, getur líka fundið gameport í USB tengi en þá er spurning hvort þú værir ekki komin upp í meiri kostnað en við að kaupa nýtt stýri :roll:

Sent: Sun 03. Okt 2004 19:32
af axyne
Snorrmund skrifaði:gætir reynt að redda þér ódýru pci skjákorti.. svona tengi eru oftast á .þeim..
bara disabla soundið í þeim :D


disable soundið á skjákortinu ? :lol: ætlaðirðu ekki að segja hljóðkort ?

Sent: Sun 03. Okt 2004 22:37
af Snorrmund
haha... úúúbs :D

Sent: Lau 16. Okt 2004 22:34
af hahallur
Bara að fá sér einhvern converter eða bara USB stýrir/joystick