Þessi uppfærsla hefur lengi legið í loftinu en nú með tilkomu BF4 held ég að ég þurfi að fara að drífa í þessu (fæ bara 20-60fps með allt í low).
Í dag er tölvan mín svona:
Örgjörvi: Intel Core 2 Quad Q6600 2,4 GHz overclocked í 3,0GHz
Móðurborð: ASUSTeK P5QL-E
RAM: 8GB DDR2 800MHz
Skjákort: AMD Radeon HD 6950 2GB
Aflgjafi: 750W Jersey Modular Edition
SSD: 120GB Mushkin Chronos
HDD: 2TB Seagate (minnir mig...)
Skjákortið er frekar nýlegt og ég hugsa að ég geti sleppt því að uppfæra það í bili, er það ekki? Þetta er aðallega örgjörvinn og vinnsluminnið sem er að bottle-necka tölvuna, ekki rétt?
Ég nota tölvuna í grafíska vinnslu (Photoshop, Illustrator, InDesign etc.), tölvuleiki (aðallega BF4), video-editing (Premiere Pro og After Effects) og svo auðvitað facebook og vaktina
![Megasmile :megasmile](./images/smilies/aiwebs_011.gif)
Í fljótu bragði setti ég nokkra pakka saman:
i7 4770K uppfærsla
Intel Core i7 4770K 3.5GHz 53.900 kr.
ASUS Z87-Plus 1150 32.900 kr.
G.Skill 16GB DDR3 2133Mhz 29.500 kr.
Samtals 116.300 kr.
i5 4670K uppfærsla
Intel Core i5 4670K 3.4GHz 37.900 kr.
ASUS Z87-K 1150 22.900 kr.
Kingston 8GB DDR3 2133MHz 15.900 kr.
Samtals 76.700 kr.
FX-8350 uppfærsla
AMD FX-8350 4.0GHz 33.750 kr.
ASUS M5A99X EVO 26.950 kr.
Kingston 8GB DDR3 2133MHz 15.900 kr.
Samtals 76.600 kr.
Ég veit að i7 uppfærslan væri best en hún er full dýr að mínu mati, en ég hef hana með ef allir eru sammála um að það sé klárlega þess virði að fara í hana frekar en hinar, er samt að leita að svona bang-for-the-buck.
Ég las á netinu að ASUS væru mjög solid móðurborð (betri en MSI og Gigabyte), en þó sel ég það ekki dýrara en ég keypti það, en ég ákvað að velja ASUS móðurborð í pakkana þar sem ég þurfti að velja eitthvað
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
Vitið þið um betri uppfærslu fyrir svipaðann pening eða jafnvel ódýrari?
Ef ekki, hvort mynduð þið taka i5 pakkann eða AMD pakkann og afhverju?
Fyrirfram þakkir