PSU virkilega hávær


Höfundur
danniornsmarason
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 315
Skráði sig: Mán 26. Nóv 2012 18:20
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

PSU virkilega hávær

Pósturaf danniornsmarason » Þri 06. Ágú 2013 14:44

Sælir, ég er með eina gamla tölvu sem er virkilega hávær, nánartiltekið PSU vifta er virkilega hávær, er eitthvað hægt að gera til að laga þetta? eða borgar sig að kaupa bara nýjann 500W? (er með 400w)

öll svör eru velkominn


Fractal Design Meshify |Asrock B760 Pro | i5 13600KF | 32GB DDR4| GTX 2080 Super |


Vaski
spjallið.is
Póstar: 412
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: PSU virkilega hávær

Pósturaf Vaski » Þri 06. Ágú 2013 15:20

Er ekki bara að skipta um viftu í aflgjafanum? Setja einhverja hljóðláta í hann. Ég gef mér að hann sé ekki lengur í ábyrgð (þú segir að þetta sé gömul tölva) og því sakar ekki alla vegna að reyna að skipta um viftu.



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1720
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 46
Staða: Ótengdur

Re: PSU virkilega hávær

Pósturaf Stutturdreki » Þri 06. Ágú 2013 15:32

Það lagar kannski hljóðið að taka viftuna út, hreinsa hana vel og smyrja en líka hægt að skipta bara um viftu. Hvað 'borgar' sig að gera er afstætt.