Virkar sami straumbreytir bæði á 110 og 220 voltum?
Sent: Mið 31. Júl 2013 22:39
Er nú frekar fáfróður í rafmagnsmálum en virkar straumbreytir sem keyptur er í USA líka í 220 volta straumtengil ?
Virkar fyrir mig að setja millistykki á straumbreytirinn (þ.e. úr þessum tveim lóðréttu teinum með gati í venjulegan rafmagnstengil) og plögga í samband? Á "AC Adaptor" stendur "Input 100-240V'~50/60Hz 0,8A þannig að samkvæmt því má álykta að hann gangi fyrir riðstraum á bilinu 100-240Volt. Ég vil bara vera 100% viss og leita því til sérfræðinganna hér á síðunni 
