Aðstoð v. harða disk
Sent: Fim 23. Maí 2013 13:35
af Magni81
Ég er nú ekki sá sleipasti í bransanum en ég tók eftir því um daginn að það er kominn auka diskur hérna(blá ör). Þessi diskur er hluti af C: drifi. ég veit ekki hvernig þetta gerðist en getur einhver aðstoðað mig að losna við þetta? einu skrárnar þarna inni eru AutoCad teikningar og ég veit ekki af hverju AutoCad forritið er að vista skrárnar þarna en þær eru vistaðar annarsstaðar líka.

Re: Aðstoð v. harða disk
Sent: Fim 23. Maí 2013 13:54
af Stutturdreki
Hægri smelltu á 'computer' og veldu 'manage'. Þar undir 'storage' er 'disk management' þar sem þú getur eytt þessu partitioni út og svo extendað C: partitionið til að nýta allann diskinn.
Gögnin eru hinsvegar algerlega óendurkræf eftir þessa aðgerð svo vertu viss um að þú sért að gera allt rétt.
Re: Aðstoð v. harða disk
Sent: Fim 23. Maí 2013 13:58
af Stutturdreki
Smá googl sýnir reyndar að þetta er ekki actual partition heldur bara linkur :
http://forums.autodesk.com/t5/AutoCAD-2 ... -p/3787022Myndi bara láta þetta vera.
Re: Aðstoð v. harða disk
Sent: Fim 23. Maí 2013 14:58
af Magni81
Takk fyrir þetta