Síða 1 af 1

Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Sun 19. Maí 2013 22:31
af KermitTheFrog
Daginn,

hvar er best að versla rafmagns- og RCA snúrur í bíla? Er að fara að tengja magnara í bíl.

Hvar fær maður besta prísinn og gott úrval?

Vantar einnig A + B millistykki í eitthvað annað, fyrir útvarp. Veit einhver hvar ég fæ slíkt?

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Sun 19. Maí 2013 22:36
af Baraoli
Þegar kemur að bílagræjum þá mæli ég með Nesradio.

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Sun 19. Maí 2013 22:41
af GullMoli
Baraoli skrifaði:Þegar kemur að bílagræjum þá mæli ég með Nesradio.


Passaðu þig bara að lenda ekki í kerlingunni :lol:

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Sun 19. Maí 2013 22:44
af DJOli
GullMoli skrifaði:
Baraoli skrifaði:Þegar kemur að bílagræjum þá mæli ég með Nesradio.


Passaðu þig bara að lenda ekki í kerlingunni :lol:

Hvað meinarðu? Fínasta kerling :lol:

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Sun 19. Maí 2013 23:52
af Baraoli
GullMoli skrifaði:
Baraoli skrifaði:Þegar kemur að bílagræjum þá mæli ég með Nesradio.


Passaðu þig bara að lenda ekki í kerlingunni :lol:


Fínasta kona, og gummi en betri

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 00:17
af GullMoli
Hún á kannski sína slæmu tíma eins og aðrir, en er þó orðin heldur þekkt fyrir það. Annars algjörir snillingar sem vinna þarna :)

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 01:24
af atlifreyrcarhartt
Eg hef alltaf verslað snurukitt i n1verslun eða réttara sagt bílanaust nuna og þar færð þú allar snurur fyrir magnara meðal annars öryggi og skó a snúrurnar og þetta geturu fengið a 5-10 þ fer eftir stærð a kitti :) ef þu ætlar að lata gera þetta fyrir þig þa skoðaru amg aukaraf eða nesradio :)

Edit: getur lika fengið stakar snurur i bílanaust :)

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 04:46
af Skippó
Audio.is eru einnig með svona.

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 04:56
af jonsig
Íhlutir hafa allskonar hljóð kapla

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 05:51
af DJOli
1. Forðastu Monster Cable. Það er rip-off.
2. Ef ég man rétt fást koparvírar (fyrir hátalarana) ódýrastir í Byko eða Húsasmiðjunni, einhverjir hundraðkallar á meterinn.
3. Planaðu hvar þú ætlar að leggja snúrurnar.
4. Ekki leggja plús snúruna (rafmagnið sem fer í magnarann) við hlið hljóð snúranna. Það getur valdið truflunum sem er bölvað vesen að laga (þ.a.s. ef þú leggur snúrurnar og festir innréttinguna í bílnum strax eftir lögn).
5. Ef þú ert að pæla alvarlega í græjum og gæðum hugsaðu þá um RMS vött, Ohm (viðnám) og SNR (signal/noise ratio).
6. Leitaðu eftir tækjum með CEA 2006 vottun (CEA 2006 er vottun fyrir gæðum og krafti. Ef hún er ekki í bæklingnum í 'specs' hlutanum þá eru framleiðendurnir ekki að taka framleiðslu góðra tækja alvarlega. Slepptu tækinu þá, og finndu annað.)
7. Ef þú ert að pæla í flottu tæki frá t.d. Bandaríkjunum, þá er alveg hægt að fá þau ódýr án þess að þurfa að borga toll.
8. Ef þér er alvara með græjurnar, skipulagðu fyrirfram. Keyptu 5 rása magnara fyrir 4 hátalara + bassabox.

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 12:02
af KermitTheFrog
Takk fyrir svörin. Veit einhver hvar ég fæ svona stykki, eða sambærilegt sem tekur A og B tengi?

Mynd

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 12:24
af I-JohnMatrix-I
Nesradio á þetta alveg pottþétt til.

Re: Snúrur og rafkerfi í bílum

Sent: Mán 20. Maí 2013 13:17
af atlifreyrcarhartt
KermitTheFrog skrifaði:Takk fyrir svörin. Veit einhver hvar ég fæ svona stykki, eða sambærilegt sem tekur A og B tengi?

Mynd



bílanaust :)