Síða 1 af 1

Oculus Rift

Sent: Þri 14. Maí 2013 19:43
af cartman
Blessaðir

Nú var ég loksins að fá Oculus Rift( Búinn að bíða síðan í Ágúst )
http://www.oculusvr.com/
http://www.kickstarter.com/projects/1523379957/oculus-rift-step-into-the-game?ref=live

Tollurinn var alveg í essinu sínu og tollaði þetta sem Heyrnartól og of rukkuðu mig um 15.000 kr. ( ekki í fyrsta skipti sem þér tolla vörur sem ég panta vitlaust ) þannig að þið sem eruð að panta vörur munið að skoða alltaf tollskýrsluna.

Ég er ekki mikið búinn að vera að leika mér með þetta. Skoðaði sdk-ið, demoin sem fylgdu með, og svo downloadaði ég Team Fortress 2 og Half-life 2 en er ekkert farinn að prófa þá ennþá.

Hendi kannski inn einhverjum myndum og svo hvernig þetta er að virka seinna í vikunni.

Ef það voru einhverjir fleiri sem pöntuðu þetta látið þá endilega í ykkur heyra og deilið ykkar reynslu á þessu.

Re: Oculus Rift

Sent: Þri 14. Maí 2013 19:50
af appel
HEYRNARTÓL!!??


Eru þá heyrnartól flokkuð sem skjáir? Maður skilur ekki lógíkina hjá tollinum.

Re: Oculus Rift

Sent: Þri 14. Maí 2013 19:53
af I-JohnMatrix-I
Langar fáranlega mikið í svona, sé enþá eftir því að hafa ekki tekið þátt í kickstarter á þessu. Well mun bara versla þetta þegar þetta er komið á almennan markað en já til hamingju með græjuna endilega láta okkur hina vita hversu sjúkt þetta er :D

Re: Oculus Rift

Sent: Þri 14. Maí 2013 20:01
af Kristján Gerhard
appel skrifaði:HEYRNARTÓL!!??


Eru þá heyrnartól flokkuð sem skjáir? Maður skilur ekki lógíkina hjá tollinum.


Vita þeir nokkuð hvað þetta er?

Sent from my GT-N7000 using Tapatalk 2

Re: Oculus Rift

Sent: Þri 14. Maí 2013 21:38
af Daz
appel skrifaði:HEYRNARTÓL!!??


Eru þá heyrnartól flokkuð sem skjáir? Maður skilur ekki lógíkina hjá tollinum.


Það stendur headset á kassanum. Good enough for government work.

Ef maður vill vera viss um að fá rétta tollflokkun, þá gerir maður tollskýrsluna sjálfur. Þá leggur tollurinn í það minnsta vinnu í að finna kjánalegan "réttann" tollflokk í staðinn fyrir það sem maður velur sjálfur.