Síða 1 af 1
Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 21:45
af AciD_RaiN
Sælir. Er búinn að vera að reyna að googla þetta en svo gæti verið að ég sé bara ekki að googla réttu hlutina... Málið er að ég keypti mér
þennan skjá um daginn og er alveg helvíti sáttur en það sem heillaði mig mest við hann var hvað hann er "borderless" en myndin er bara ekki að fylla upp í hliðarnar og efri partinn.
Það vantar svona 1.5cm upp á það og þá er voða lítið point í þessu.
Ég var búinn að fara í einhverjar stillingar í skjánum en þar sem maður á að getað stillt myndina stendur "cannot be used available in D-Sub signal only" og ég er bara ekki alveg að fatta þetta...
Vildi svona helst ekki sýna hvað ég er vitlaus en sf einhver getur hjálpað mér þá væri það vel þegið

Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 21:50
af oskar9
"if you were looking for a sweet new monitor, possibly multiple with as little bezel as possible, you surely came across the LG IPS 237/277 with the advertised 1.2mm bezel. do not buy them for that reason, because it's a straight out lie:"
http://www.youtube.com/watch?v=oS96RjxxU7Ahttp://www.bluegartr.com/threads/112082 ... eting-scamég tók eftir þessu á mínum líka, bezelinn er mjög lítill en ekkert nálægt því sem þeir sýna á myndum eða segja
Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 21:52
af appel
Þeir kalla það reyndar "ultra slim design" en ekki "borderless".
Bezelinn á bordernum er látinn hverfa undir sömu húð og þekur panelinn.
Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 21:53
af AciD_RaiN
Ég hélt að myndin ætti nú að fylla alveg að plastinu

Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 21:57
af oskar9
Jebb það héldu allir sem keyptu hann, þetta er geggjaður skjár og það hefði ekki verið neitt rage á netinu ef þeir hefðu bara gefið upp rétta bezel stærð. en ónýtt skjáspace er nákvæmlega 1,5cm á kannt nema niðri
AciD_RaiN skrifaði:Ég hélt að myndin ætti nú að fylla alveg að plastinu

Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 21:59
af appel
Þeir virðast eitthvað búnir að laga myndefnið þarna, sýna skjáinn einsog hann er á vefsíðunni.
En já, þetta var ástæðan fyrir því að ég keypti mér ekki þennan skjá, mér fannst bezelinn ljótur, vildi frekar almennilegan bezel en þetta.
Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 22:08
af AciD_RaiN
appel skrifaði:Þeir virðast eitthvað búnir að laga myndefnið þarna, sýna skjáinn einsog hann er á vefsíðunni.
En já, þetta var ástæðan fyrir því að ég keypti mér ekki þennan skjá, mér fannst bezelinn ljótur, vildi frekar almennilegan bezel en þetta.
Já þegar maður spáir í því þá sér maður þetta á vefsíðunni þeirra en mér finnst þetta frekar fúlt samt sem áður. Er mjög ánægður með þennan skjá en hefði samt viljað getað fyllt út að bezelnum eða þú veist plastinu

Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 22:35
af atlifreyrcarhartt
scaling options , prufaðu það ef að þú ert með amd catalyst
edit: sé að þú ert ekki með amd kort, en ég er með amd og ég nota það til að fylla uppí skjáin hja mér

Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 22:41
af worghal
atlifreyrcarhartt skrifaði:scaling options , prufaðu það ef að þú ert með amd catalyst
edit: sé að þú ert ekki með amd kort, en ég er með amd og ég nota það til að fylla uppí skjáin hja mér

það var ekki vandamálið hjá honum

lestu þráðinn og umfjöllunina um skjáinn xD
Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 22:46
af AciD_RaiN
atlifreyrcarhartt skrifaði:scaling options , prufaðu það ef að þú ert með amd catalyst
edit: sé að þú ert ekki með amd kort, en ég er með amd og ég nota það til að fylla uppí skjáin hja mér

Var reyndar alveg búinn að skoða nvidia control panelinn út í gegn en ég veit hvað þú meinar. Hef lent í þessu með nokkur AMD kort

EDIT: En já virðist sem skjárinn sé víst bara svona og ekkert við því að gera... Ég er kannski ekkert svo vitlaus eftir allt saman

Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 23:02
af Varasalvi
Úff, ég finn til með þér. Enginn séns á að skila honum? Þetta er alveg óásættanlegt.
Re: Myndin fyllir ekki út í allan skjáinn
Sent: Mán 13. Maí 2013 23:53
af DJOli
Ef þið keyptuð skjáinn á íslandi þá ættuð þið skv. neytendalögum að geta skilað honum þar sem hann uppfyllir ekki auglýstar kröfur. s.s. Svik.