Síða 1 af 1

Spurning um minni.

Sent: Mið 01. Maí 2013 03:10
af I-JohnMatrix-I
Sælir vaktarar, mig langaði aðeins til að forvitnast um minnið í vélinni minni. Ég er sem sagt með 16gb ddr3 1600mhz minni, 2 x 4gb corsair vengeance 1600mhz og 2 x 4gb corsair vengeance lp 1600mhz. Þegar ég opna speccy og skoða ram þá sé ég DRAM Frequency hoppandi milli 799 og 810 mhz. Ætti þessi tala ekki að vera 1600mhz? Ég er búinn að fara inní biosin og velja 1600mhz á DRAM frequency í stað fyrir auto.

móðurborð: z77Agd65

Fyrirfram þakkir :)

Re: Spurning um minni.

Sent: Mið 01. Maí 2013 03:16
af quad
margfaldaðu með 2 og þá ertu að tala sama mál og spec forritið ;o) þ.e.a.s ef að keyra á stock

Re: Spurning um minni.

Sent: Mið 01. Maí 2013 05:51
af Hj0llz
DDR=Double Data Rate
Sem gerir það 800*2 þannig að allt er í orden :)

Re: Spurning um minni.

Sent: Mið 01. Maí 2013 10:47
af I-JohnMatrix-I
Já ok takk kærlega fyrir þetta :)

Re: Spurning um minni.

Sent: Mið 01. Maí 2013 11:32
af Hnykill
Svona fyrst er verið að tala um minni (nýta þráðinn) :Þ

Er með 1600 Mhz Mushkin með 8.8.8. 22 timing sem ég setti í 2240 Mhz á 13.13.13 28... 0 prósent munur :face

lægri Mhz og hraðara timing eða hærri Mhz og slakari timing.. sama útkoma.