Síða 1 af 1

Uppfærsla - vantar ráðleggingar

Sent: Fös 03. Sep 2004 22:15
af Lazylue
CPU: AMD 64 3000xp - Lítið hægt að segja um þetta myndi segja að það væru góð kaup í þessu. 19750kr
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1051

Móðurborð: ????????? - Var annaðhvort að spá í "MSI K8N NEO FSR - AMD64, nForce3" eða "Gigabyte K8NS Pro nforce3-250 AMD64". Annað hjá start.is en hitt hjá Att. Veit lítið sem ekkert um kubbasett og þessháttar dót. 14-17.000kr
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1101
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=412

Skjákort: Geforce 6800 128mb - Hef lítið heyrt þetta kort, en það er á góðu verði. Maður pælir samt í því hvort að 128mb séu nóg því þessi tölva á að duga sem lengst. Spurning hvort það sé þess virði að borga 20k í viðbót fyrir GT kortið eða x800 pro og fá 256mb. 34.950Kr
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1069

Minni: 2x512 ddr400 Corsair ValueSelect - Held að þetti sé ágætis kostur, held að það sé óþarfi að fara að eyða meira í minni. 2x 9950kr
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=999

HDD: 160gb maxtor sata - Fínt að losna við þessa helvítis ide kapla. 10750kr (gæti verið að maður fái sér einn 37gb raptor).
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=869

Kassi: Thermaltake - Valdi nú bara einhvern kassa, reyndar í dýrara lagi, megið alveg koma með einhver komment á hann. 15250kr
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=728

Power supply: Forton 400W - Hef heyrt góða hluti um Forton þannig að þessi ætti alveg að virka, bara að spá hvort hann hafi nægilega mörg wött. 7450kr
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=245

skjár: viewsonic 19" - Held að þessi sé góður verst að það er enginn mynd en ég held ég vita nánast hvernig skjár þetta er. 29.900kr
http://www.shopping.is/php/linux?/jalta ... 871569&&&&

Ég veit að það hafa verið margar greinar svipaðar þessari en það er oft betra að fá smá utanaðkomandi komment áður en maður fer að eyða pening í þetta. Hámarkið átti að vera rúmlega 180k þannig að ef þið hafið einhverjar góður hugmyndir þá væri það fínt.

Sent: Lau 04. Sep 2004 00:41
af MezzUp
uss nei, alltof margir með þennan alltof ljóta kassa...........

Sent: Lau 04. Sep 2004 01:40
af wICE_man
Já hann er ekki að gera sig, allt annað lýtur mjög vel út.

Sent: Lau 04. Sep 2004 22:57
af goldfinger
forljótur kassi

Sent: Lau 04. Sep 2004 23:21
af hsm
Ömurlegur kassi fyrir allt of mikin pening.

Sent: Sun 05. Sep 2004 14:01
af Lazylue
Ákvað að velja bara þetta og bæti við öðrum 512 kubbi.
Held að það sé ákætis kostur.

Sent: Sun 05. Sep 2004 18:05
af goldfinger
hmm neiiiii

Sent: Sun 05. Sep 2004 18:11
af fallen

Sent: Sun 05. Sep 2004 18:25
af MezzUp
goldfinger skrifaði:hmm neiiiii
ahh, hver stenst svona góð rök :shock:

Sent: Sun 05. Sep 2004 18:48
af Lazylue
Sé ekki hvað ætti að vera að þessu tilboði þetta er nánast það sama og ég var búinn að telja upp. Þessi tölva er ekki fyrir mig heldur fyrir frænda minn sem er að eyða fermingapeningunum sínum í þetta þannig að ég held að það sé ágætt að hafa kassann allann keyptan frá sama stað uppá það ef eitthvða bilar.

Sent: Sun 05. Sep 2004 19:03
af Daz
Er þessi pakkatölva samt ekki skjálaus?

Sent: Sun 05. Sep 2004 19:11
af Lazylue
já hún er skjálaus.

Sent: Sun 05. Sep 2004 19:18
af Daz
Þar með kostar hún ca 40 þúsund meira ekki satt? Svo geturðu líka keypt allt í tölvuna á sama stað og látið setja hana saman þar fyrir þig, sem ætti að gera allar viðgerðir seinna meir einfaldari.

Sent: Sun 05. Sep 2004 19:33
af goldfinger
MezzUp skrifaði:
goldfinger skrifaði:hmm neiiiii
ahh, hver stenst svona góð rök :shock:


:lol:

hefði kannski átt að bæta þessu við, mér hefur aldrei líkað sérstaklega við svona pakkatilboð þar sem þú kaupir eitthvað sem er buið að setja saman fyrir þig, mun hagstæðara að kaupa hlutina sér og þá kaupa það á ódýrasta staðnum og setja svo saman, þá er lika mun meiri líkur á að maður fái pakka sem maður er ánægðari með því maður fékk að velja sjálfur hvað maður vildi fá i kassann. En hann má alveg kaupa þetta fyrir mér, mér er nokkuð sama, en það er allavega ekki hagstæðara að taka þennan pakka heldur en að setja saman sjálfur.

Sent: Sun 05. Sep 2004 20:43
af MezzUp
Daz skrifaði:Þar með kostar hún ca 40 þúsund meira ekki satt? Svo geturðu líka keypt allt í tölvuna á sama stað og látið setja hana saman þar fyrir þig, sem ætti að gera allar viðgerðir seinna meir einfaldari.

hmm, 40 þús? skjárinn sem að hann var upprunalega að pæla í kostaði 30 þús, og svo er nú hægt að fá ódýrari skjái líka......
goldfinger skrifaði:
MezzUp skrifaði:
goldfinger skrifaði:hmm neiiiii
ahh, hver stenst svona góð rök :shock:


:lol:

hefði kannski átt að bæta þessu við, mér hefur aldrei líkað sérstaklega við svona pakkatilboð þar sem þú kaupir eitthvað sem er buið að setja saman fyrir þig, mun hagstæðara að kaupa hlutina sér og þá kaupa það á ódýrasta staðnum og setja svo saman, þá er lika mun meiri líkur á að maður fái pakka sem maður er ánægðari með því maður fékk að velja sjálfur hvað maður vildi fá i kassann. En hann má alveg kaupa þetta fyrir mér, mér er nokkuð sama, en það er allavega ekki hagstæðara að taka þennan pakka heldur en að setja saman sjálfur.

Ég held að pakkatilboð séu lang sniðugust fyrir menn sem að treysta sér eða kunna ekki að setja saman tölvu.
Einnig grunar mig að Lazylue vilji ekki bera ábyrgð á tölvu frænda síns, og fá þá hringingu alltaf ef að eitthvað er að..........

Ef að þú ætlar hinsvegar að setja saman tölvuna(eða láta setja saman)þá myndi ég reyna að versla sem flest, allavega grunnhlutina, á sama stað(Tölvuvirkni :P)
Bæði þá fær maður stundum magnafslátt, og hvað myndirru svo gera ef að þú kveikir á tölvunni einn daginn og viftan snérist en ekkert kæmi á skjáin?
Myndirru fara til þess sem að seldi þér skjákortið, og eiga á hættu að borga skoðunargjald ef að gallinn er í móðurborðinu eða færirðu til örgjörva seljandans og vona að skjárinn væri ekki gallaður eða............?

Sent: Sun 05. Sep 2004 21:25
af Daz
MezzUp skrifaði:
Daz skrifaði:Þar með kostar hún ca 40 þúsund meira ekki satt? Svo geturðu líka keypt allt í tölvuna á sama stað og látið setja hana saman þar fyrir þig, sem ætti að gera allar viðgerðir seinna meir einfaldari.

hmm, 40 þús? skjárinn sem að hann var upprunalega að pæla í kostaði 30 þús, og svo er nú hægt að fá ódýrari skjái líka......

Hann sagðist núi ætla að fá sér auka 512 mb af minni líka

Sent: Sun 05. Sep 2004 21:48
af MezzUp
Daz skrifaði:
MezzUp skrifaði:
Daz skrifaði:Þar með kostar hún ca 40 þúsund meira ekki satt? Svo geturðu líka keypt allt í tölvuna á sama stað og látið setja hana saman þar fyrir þig, sem ætti að gera allar viðgerðir seinna meir einfaldari.

hmm, 40 þús? skjárinn sem að hann var upprunalega að pæla í kostaði 30 þús, og svo er nú hægt að fá ódýrari skjái líka......

Hann sagðist núi ætla að fá sér auka 512 mb af minni líka

ahh, tók það ekki inní jöfnuna

Sent: Sun 05. Sep 2004 22:08
af hsm
Mín persónulega reinsla er sú að kaupa aldrei pakkatölvur allavegna ekki af þessum stæðstu verslunum ég nefni engin nöfn en mig grunar að margir vita við hverja er átt. Hef enga reinslu af start.is en veit að tölvuvirkni.net er alltaf gott að eiga við þeir leggja mikið upp úr að viðskiptavinurinn sé ánægður.
Annars skiptir ekki máli hvar þú kaupir vélina uppá viðgerðir að gera það er alltaf hringt í tölvunördin í fjölskilduni (þekki það af eigin reinslu maður heirir aldrei í sumum nema það sé tölvuvandamál)
Annars er þetta ágætis vél.

Sent: Sun 05. Sep 2004 22:35
af BlitZ3r
þessi pakkavél er mjög góð. þó ég hafi slæma reynslu af pakkavélum (vissi ekkert og kubbasett og minni og solleis fyrir um 1 ári þegar ég keypti þessa vél)

Sent: Mán 06. Sep 2004 00:15
af Lazylue
Já málið er það að þó ég hafi oft sett saman vél fyrir sjálfan mig þá vill ég heldst ekki taka ábyrgð á því að setja hana saman fyrir hann.
En það er líka inní þessu hugbúnaðarpakki sem kostar sitt xp home kostar að held um 10k plús nero og einhverjir leikir þannig að ég held að þetta sé nú ekki svo slæmt.
Líka munur á því að kaupa uppsetta vél frá bt sem sett hefur verið saman í þýskalandi sem erfitt er að fá nákvæmar upplýsingar um innihaldið heldur en vél sem maður veit nákvæmlega hvað er í.

Sent: Mán 06. Sep 2004 09:38
af hsm
Nero er vissulega gott forrit en oftast eru þetta litlar útgáfur af þessum forritum sem fylgja, með mjög takmarkað fídusa svo bjóða þeir uppfærslur sem maður þarf að borga aukalega fyrir. Annars finst mér að maður á ekki að meta hugbúnaðinn og mikið.