Það er eitthvað aukahljóð í tölvunni hjá mér sem er að gera mig bilaðann. Þetta hljómar eins og það sem mér finnst alltaf vera svona harðadiskshljóð, en þegar ég hef opnað tölvuna og hlustað þá finnst mér þetta ekki koma frá harðadiskinum. Móðurboðið og örgjörvinn í vélinni eru ný og þetta hljóð byrjaði eftir að ég setti það í, en gefur örgjörvi nokkurn tíman frá sér hljóð? Hvað er það sem kemur helst til greina að gefi svona hljóð frá sér ef það er ekki harði diskurinn?
Hljóðið er mest áberandi og kemur alltaf fram þegar ég skrolla upp og niður á netsíðum.
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Sun 14. Apr 2013 14:15
af Swanmark
Örgjörvakæling? Því þú sagðir að þetta hafi byrjað eftir að þú settir örgjörva og móðurborð í.. Líklegt að það sé eitthvað í kringum það?
Eða einhver önnur vifta.
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Sun 14. Apr 2013 14:23
af KermitTheFrog
Hátíðnihljóð eða surg eða hvað? Hvernig hljóð er þetta?
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Sun 14. Apr 2013 14:55
af FriðrikH
Ekki viftuhljó, þetta virðist vera svipað hljóð og heyrist í gömlum hörðum diskum, svona nett surg hljóð sem kemur og fer. Þegar tölvan er idle heyrist þetta ekki. Svipað hljóð og þetta http://www.youtube.com/watch?v=20E3RZ0uQIs en mikið fínna einhvern veginn. Ef ég skil opinn vafra á einhverri síðu og kem svo til baka þá heyrist ekkert svona hljóð, strax og ég skrolla niður síðuna þá kemur hljóðið, þegar ég hætti að skrolla, þá minnkar hljóðið strax mikið.
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Sun 14. Apr 2013 15:25
af upg8
coil whine?
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Sun 14. Apr 2013 20:45
af FriðrikH
Nei, þetta er sem betur fer ekki svona hljóð, þá væri kassinn nú farinn út um gluggann held ég!
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Mið 17. Apr 2013 16:57
af upg8
Svona er coil whine frá aflgjafa
Ég myndi samt ekki útiloka HDD þótt hljóðið virðist ekki koma frá honum, víbringur frá harðadisknum getur borist í kassann og hljóðið myndast annarstaðar í tölvunni.
Með hvernig kælingu ertu? Sumar vatnskælingar geta gefið frá sér aukahljóð ef dælunum líkar ekki við þann aflgjafa sem þú ert að nota. Það eru til nokkur
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Mið 17. Apr 2013 17:48
af methylman
Ef að þú ert með vökvakælingu frá Corsair þá er hún líklega sökudólgurinn, Það kemur létt urghljóð í dæluna og síðan hættir hún að dæla.
Re: Pirrandi hljóð
Sent: Mið 17. Apr 2013 19:12
af demaNtur
methylman skrifaði:Ef að þú ert með vökvakælingu frá Corsair þá er hún líklega sökudólgurinn, Það kemur létt urghljóð í dæluna og síðan hættir hún að dæla.
Jebb, er byrjaður að taka eftir þessu sjálfur á kvöldin þegar maður er að fara sofa, þótt tölvan sé í hljóðeinangrandi kassa!
Takk fyrir þetta drengir, miðað við hljóðdæmið hér að ofan virðist þetta vera coil whine frá aflgjafanum..... Andskotinn. Er nokkuð hægt til að laga það? Ég er bara með loftkælingu