Síða 1 af 1

Vantar að vita um AMD7750

Sent: Fim 04. Apr 2013 22:03
af vesi
Sælir vaktarar..
Þarf að uppfæra skjákort í tölvu út í bæ,
Var að spá í að fara í amd7750 http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_138_141&products_id=7953

Tölvan er notuð í vefráp og leikjaspilun af netinu í 24" skjá,, mestmegnis og svo stream í Tv í gegnum hdmi, nú er ein stór vifta á þessu.
það sem ég var að spá hvort þetta réði ekki við þessa basic leiki í Sæmilegum/góðum gæðum án þess að það væri mikill hávaði frá henni og einnig þó spilaðir væri Hd efni í tv.

geri mér allveg grein fyrir því að þetta verður alldrei hljóðlaust, en var að vonast til að þetta myndi duga til að minnka hávaðan aðeins.

kv. VesI

Re: Vantar að vita um AMD7750

Sent: Fim 04. Apr 2013 22:12
af siggik
þú linkar í 650gtx

Re: Vantar að vita um AMD7750

Sent: Fim 04. Apr 2013 22:13
af vesi
siggik skrifaði:þú linkar í 650gtx


MY BAD,, reddað :happy

Re: Vantar að vita um AMD7750

Sent: Fim 04. Apr 2013 22:15
af Daz
leikjaspilun af netinu = flash leikir?

Ég myndi giska á að 7750 sé overkill miðað við þessa lýsingu. Gætir örugglega fundið ódýrara viftulaust kort.

Re: Vantar að vita um AMD7750

Sent: Fim 04. Apr 2013 22:36
af vesi
Daz skrifaði:leikjaspilun af netinu = flash leikir?

Ég myndi giska á að 7750 sé overkill miðað við þessa lýsingu. Gætir örugglega fundið ódýrara viftulaust kort.


ég held að drengirnir 9 og 10 ára á heimilinu séu ekki að spila neitt meira krefjandi en það,, svo var þetta líka hugsað sem soldið future proof ,, þegar þeir fara í eithvað meira krefjandi á vélbúnað.


Edit: hey innleg nr. 700