Síða 1 af 1
Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Mán 11. Mar 2013 22:50
af danheling92
Sælir veriði, ég var að pæla í að fá mér nýtt hljóðkort fyrir betri hljóðgæði og hvaðeina, og ég er að sjá kort á 40 þúsund, og önnur á 10 þúsund. Þessi kort á 10 þúsund, hversu verri eru þau miðað við þetta á 40 þúsund? Ég veit nánast ekkert um þetta og væri til í að fá eitthvað mat á þetta.
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Mán 11. Mar 2013 22:51
af svanur08
danheling92 skrifaði:Sælir veriði, ég var að pæla í að fá mér nýtt hljóðkort fyrir betri hljóðgæði og hvaðeina, og ég er að sjá kort á 40 þúsund, og önnur á 10 þúsund. Þessi kort á 10 þúsund, hversu verri eru þau miðað við þetta á 40 þúsund? Ég veit nánast ekkert um þetta og væri til í að fá eitthvað mat á þetta.
Hvernig væri að koma með link á kortin?
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Mán 11. Mar 2013 22:55
af danheling92
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Mán 11. Mar 2013 23:42
af vesley
Millivegurinn væri klárlega ASUS Xonar DX
http://tl.is/product/asus-xonar-dx-xd-7 ... -gaming-lpGætir líka farið í STX til að fá allra bestu gæðin en mér finnst vera okrað vel á því miðað við að það er á 160USD úti.
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Mán 11. Mar 2013 23:47
af danheling92
Ok, segjum að ég fengi mér þetta millivegs kort. Ef ég myndi nota það í svona mánuð og fá mér síðan þetta á 40 þús, myndi ég þá sjá einhvern "mindblowing" mun eða? Ég meina ég er núna að notast við eitthvað rusl móðurborðs hljóðkort og ég er ekkert að farast úr hljóðmengun sko.
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 00:08
af svanur08
Lélegt með hljóðkort í PC að vera ekki komnir með HDMI og Lossless audio fyrir bíómyndir.
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 00:18
af worghal
ef þú sérð fram á það að fara í það besta á nánari framtíð, er þá ekki bara betra að sleppa milliveginum og fara beint á toppinn

?
asus xonar STX all the way

Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 00:57
af oskar9
Mesti munurinn væri alltaf að losa sig við onboard hljóðið og þú yrðir virkilega sáttur með þetta Xonar DX kort því þetta er stórt stökk úr onboard ef þú ert að nota flott headsett eða hátalara.
Ég var ósáttastur við að hafa ekki farið mikið fyrr í hljóðkort en ég gat ekki réttlætt það að kaupa tugþúsund króna kort, ég átti fyrst Creative X-Fi F4tality, orðið pínu outdated en fékk það ódýrt, var mjög sáttur, uppfærði síðar í þetta umrædda DX kort, aðalega til að fá optical möguleikan og þægilegri drivera, get ekki sagt að ég heyri allan mun á þessum tveim kortum, jú auðvitað tók maður eftir mun enda var ég ekki að vonast eftir að nýjir heimar í hljóði myndi opnast við það að fara úr einu korti í annað.
ég hef fengið að prufa þetta STX kort hjá félaga mínum og það er virkilega flott kort með flottum fídusum en ég gat ekki réttlæt þennan gríðarlega verðmun þar sem að DX kortið er allveg frábært.
Eins og ég sagði að fara úr onboard í kort verður alltaf frábær breyting, sama hvort þú kaupir 14 eða 40 þús króna kort, sumir geta réttlætt að hoppa beint í tugþúsunda kort, en eftir að hafa notað bæði þá finnst mér ég hafa gert "bargain" kaup í þessu DX korti
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 01:17
af Andri Þór H.
okei síðan er spurningin hvað ætlaru að tengja við kortið ? hátalara eða vera bara með headphone ?
ég er með utanáliggjandi PreSonus kort og er svakalega sáttur með það, 107db S/N Ratio og er allveg geðveikt og ég mæli með því.
http://www.presonus.com/products/AudioBox-22VSLen Xonar kortið er með 124db S/N Ratio sem er töluvert betra en það er ekki TRS útgangur á því korti annars hefði ég farið í það.
og til að toppa þetta allt þá er ég með Yamaha HS80M studio monitora sem eru bara snilld
http://usa.yamaha.com/products/music-pr ... ies/hs80m/en til að réttlæta að fara í 40 þús króna kort veltur bara á því hvað þú ætlar að tengja við það

Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 01:42
af Haxdal
Allt betra en onboard hljóð, svo fer þetta bara eftir hvað þú ert að tengja við hljóðkortið. Þú getur verið með besta hljóðkort í heimi en það breytir engu ef þú ert bara með einhverja 5 þúsund króna logitech drasl hátalara tengda við tölvuna þína

Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 02:05
af danheling92
Andri Þór H. skrifaði:okei síðan er spurningin hvað ætlaru að tengja við kortið ? hátalara eða vera bara með headphone ?
ég er með utanáliggjandi PreSonus kort og er svakalega sáttur með það, 107db S/N Ratio og er allveg geðveikt og ég mæli með því.
http://www.presonus.com/products/AudioBox-22VSLen Xonar kortið er með 124db S/N Ratio sem er töluvert betra en það er ekki TRS útgangur á því korti annars hefði ég farið í það.
og til að toppa þetta allt þá er ég með Yamaha HS80M studio monitora sem eru bara snilld
http://usa.yamaha.com/products/music-pr ... ies/hs80m/en til að réttlæta að fara í 40 þús króna kort veltur bara á því hvað þú ætlar að tengja við það

Bæði rándýrt hátalarakerfi og stundum headphone.
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 02:48
af chaplin
Ef þú ert með rándýrar græjur þá viltu kannski geta full nýtt þær, en þú ert samt eftir að sjá ótrúlegan mun með að fara úr onboard í ódýr kort eins og DX. Ef þú ætlar samt að fara að eyða miklum pening í dýrari kort myndi ég einnig skoða HT OMEGA Claro Halo eða XT. Ég er sjálfur að nota Asus Xonar ST (sama kort og STX nema kom örlítið seinna og á víst að vera e-h örlítið betra og hægt að uppfæra Xonar H6, ég fékk mér það þó eingöngu afþví það var PCI en ekki PCI-E.) ég er mjög hrifinn af þessu korti, er að vísu ekki að nota nein dýr heyrnatól H595 og ATH-M50, en þvílíkur munur eftir að ég fór úr onboard kortinu.
Ég mun þó líklegast uppfæra í HE400 eða DT 880, hef bara ekki ákveðið mig alveg hvort þeirra ég tek, verður spennadi að sjá hvernig það kemur út.
Re: Hversu gott hljóðkort þarf ég virkilega?
Sent: Þri 12. Mar 2013 04:15
af zedro
Þegar ég fór fyrst í dedicated hljóðkort (Soundblaster Fatal1ty X-Fi) þá kom það mér ótrúlega á óvart.
Munurinn var ótrúlegur miðað við að ég var bara með 1500 kr headphone.
Svo núna lét ég loks verða að því að uppfæra almennilega.
Festi kaup á
Sennheiser PC 360 og
ASUS Xonar Essence STXEr vægast sagt spenntur að henda þessu í vélina gerist á næstu dögum (format/enduruppsetning ofl.)
Meira að segja farinn að verða mér útum tónlist í Flac
DEDICATED SOUND CARD ALL THE WAY!