Síða 1 af 1

4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 09. Jan 2013 18:49
af Stuffz
Var að lesa um þetta hér fyrir neðan, sniðugt eða ekki, skoðanir?

Mynd
Mynd
Mynd

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 09. Jan 2013 19:21
af Tesli
Það þyrftu að vera til skjáir sem eru með lítinn sem engan ramma til þess að þetta gangi almennilega, hef ekki séð þá hingað til :-k

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 09. Jan 2013 20:04
af Stuffz
laemingi skrifaði:Það þyrftu að vera til skjáir sem eru með lítinn sem engan ramma til þess að þetta gangi almennilega, hef ekki séð þá hingað til :-k


amm

nýjar sjónvarps línur frá samsung og panasonic virðast samt vera að fikra sig í þá átt.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 09. Jan 2013 20:12
af beggi90
Mér finnst alltaf spes að setja svona miklar sérþarfir beint á móðurborðin.
Ætli það sé samt ekki ágætt að þetta muni standa til boða.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 09. Jan 2013 20:33
af Stuffz
beggi90 skrifaði:Mér finnst alltaf spes að setja svona miklar sérþarfir beint á móðurborðin.
Ætli það sé samt ekki ágætt að þetta muni standa til boða.


Intel er að fikra sig í átt að hafa allt innbyggt, þ.e.a.s maður getur ekki lengur keypt stakan örgjörva frá þeim eitthverntímann í náinni framtíð dótið kemur sambyggt og þá væntanlega öruggara og meira samhæft eða hvað :-k

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 09. Jan 2013 20:44
af rango
Stuffz skrifaði: væntanlega öruggara og meira samhæft eða hvað :-k


*Hóst Hóst* Apple *Hóst Hóst*

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 09. Jan 2013 21:20
af Stuffz
rango skrifaði:
Stuffz skrifaði: væntanlega öruggara og meira samhæft eða hvað :-k


*Hóst Hóst* Apple *Hóst Hóst*


amm proven concept.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Fim 10. Jan 2013 00:04
af Stuffz
það sem ég væri að gera með svona væri að skoða goggle earth, skoða ljósmyndir sem eru í mjög hárri upplausn, spila 4K video, og multitask, en þetta kemur onboard skjáafl kemur náttúrulega ekki í staðinn fyrir öflugt skjákort fyrir þunga nýja 3D leiki sem ég er ekkert að spila svo þarf ekki.

bara verst að það eru ekki mikið framboð af rammalausum skjám, 4K skjáir í alvöru stærðum eiga eftir að kosta of mikið í of langann tíma 4sure, eitthvað svona gæti virkað í millitíðinni.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Fim 10. Jan 2013 00:33
af vesley
Stuffz skrifaði:það sem ég væri að gera með svona væri að skoða goggle earth, skoða ljósmyndir sem eru í mjög hárri upplausn, spila 4K video, og multitask, en þetta kemur onboard skjáafl kemur náttúrulega ekki í staðinn fyrir öflugt skjákort fyrir þunga nýja 3D leiki sem ég er ekkert að spila svo þarf ekki.

bara verst að það eru ekki mikið framboð af rammalausum skjám, 4K skjáir í alvöru stærðum eiga eftir að kosta of mikið í of langann tíma 4sure, eitthvað svona gæti virkað í millitíðinni.



4K og "rammalausir" skjáir er bæði mjög nýtt á markaðnum þannig ekki furða að framboð og verð sé dýrt.
Það á eftir að fjölga mjög af þessu í sumar/haust og ekki langt í að þetta verði aðalupplausnin fyrir tölvurnar og þá vonandi drullast GPU framleiðendur til þess að láta meira en 2GB á allra mestu high-end kortin sín.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Fim 10. Jan 2013 07:54
af littli-Jake
Stuffz skrifaði:
beggi90 skrifaði:Mér finnst alltaf spes að setja svona miklar sérþarfir beint á móðurborðin.
Ætli það sé samt ekki ágætt að þetta muni standa til boða.


Intel er að fikra sig í átt að hafa allt innbyggt, þ.e.a.s maður getur ekki lengur keypt stakan örgjörva frá þeim eitthverntímann í náinni framtíð dótið kemur sambyggt og þá væntanlega öruggara og meira samhæft eða hvað :-k



Ef ég man þetta rétt ert þú aðeins að misskilja málið. Intel eru að hugsa um að bjóða ákveðinn móðurborð þannig að það sé bar ákveðinn örri í borðinu. Held að það hafi aldrei staðið til að hætta alfarið með það að fólk geti valið sér móðurborð og annan bunað sér.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Fim 10. Jan 2013 08:36
af svanur08
Þetta 4K er komið út í vitleysu, gagnast lítið nema í bíó.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Fim 10. Jan 2013 08:51
af bAZik
svanur08 skrifaði:Þetta 4K er komið út í vitleysu, gagnast lítið nema í bíó.

Þetta hentar einmitt mjög vel í heimabíó, flott í HTPC + 70-80" 4K sjónvarp sem er að koma á markaðinn.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Fim 10. Jan 2013 09:05
af svanur08
bAZik skrifaði:
svanur08 skrifaði:Þetta 4K er komið út í vitleysu, gagnast lítið nema í bíó.

Þetta hentar einmitt mjög vel í heimabíó, flott í HTPC + 70-80" 4K sjónvarp sem er að koma á markaðinn.


----> http://reviews.cnet.com/8301-33199_7-57 ... re-stupid/

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Þri 15. Jan 2013 09:05
af snjokaggl
Ekki eigum við eftir að vera í 1080 endalaust. Persónulega finnst mér framför aldrei vera "stupid".
Það er ekki eins og það sé einhver að neyða fólk að fá sér 4k sjónvarp, eða að fara úr túbuskjá í flatskjá.

Það er líka fullt af fólki sem finnst stupid að hafa Hobbitann í 48 römmum, ég er allavega tilbúinn í fleiri pixla og fleiri ramma...

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Þri 15. Jan 2013 21:44
af Gislinn
svanur08 skrifaði:
bAZik skrifaði:
svanur08 skrifaði:Þetta 4K er komið út í vitleysu, gagnast lítið nema í bíó.

Þetta hentar einmitt mjög vel í heimabíó, flott í HTPC + 70-80" 4K sjónvarp sem er að koma á markaðinn.


----> http://reviews.cnet.com/8301-33199_7-57 ... re-stupid/


Það er bara svo margt annað sem getur farið að skipta máli með að vera með svona marga pixla. Sem dæmi þá dettur mér í hug að þú getur farið að fá miklu betri litadýpt í skjá sem væri með fjórfalt fleiri pixla til að túlka liti (þ.e.a.s. fjórir pixlar sem eru notaðir á sama tíma til að túlka lit sem áður var á einum pixl), ég gæti allavega ímyndað mér að það myndi fara að skipta miklu máli þó ég hafi ekki hugmynd um það.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Þri 15. Jan 2013 22:28
af mercury
hvað ætli ein 4k mynd sé mörg GB ?

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Þri 15. Jan 2013 22:31
af Xovius
mercury skrifaði:hvað ætli ein 4k mynd sé mörg GB ?

Fjórum sinnum stærri en venjuleg :D

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Þri 15. Jan 2013 23:05
af svanur08
Þeir ættu að kalla þetta 2160p eins og 1080p, ef þeir kalla þetta 4K þá eigum við bara kalla 1080p frekær 2K ;)

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 16. Jan 2013 08:21
af olafurfo
Þar sem margir hérna hafa gaman að því að gera tölvustaðinn sinn flottan og hafa ýmist aðgang að eldri tölvuskjám sem eru samt HD (17 tommu t.d.) þá er allveg hægt með smá dundi að rífa hliðar af og mixa saman 2 skjái þannig þeir líti út fyrir að vera með lítinn ramma ^^, finnst þessir 2-4 cm sem myndast milli skjáa allt of mikið :/

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Mið 16. Jan 2013 08:48
af Gislinn
svanur08 skrifaði:Þeir ættu að kalla þetta 2160p eins og 1080p, ef þeir kalla þetta 4K þá eigum við bara kalla 1080p frekær 2K ;)


Það er samt svo asnalegt að skilgreina bara eftir hæðinni (eða bara eftir breiddinni eins og 2K og 4K gera), þetta ætti frekar að vera eitthvað kerfi sem myndi líka segja til um aspect ratio. Þar er að segja að heildar fjöldi pixla myndi skipta máli í staðinn fyrir fjöldi pixla í X, Y eða Z stefnu.

Re: 4K Desktop á móðurborð grafík.

Sent: Fim 17. Jan 2013 18:34
af Stuffz
littli-Jake skrifaði:
Stuffz skrifaði:
beggi90 skrifaði:Mér finnst alltaf spes að setja svona miklar sérþarfir beint á móðurborðin.
Ætli það sé samt ekki ágætt að þetta muni standa til boða.


Intel er að fikra sig í átt að hafa allt innbyggt, þ.e.a.s maður getur ekki lengur keypt stakan örgjörva frá þeim eitthverntímann í náinni framtíð dótið kemur sambyggt og þá væntanlega öruggara og meira samhæft eða hvað :-k



Ef ég man þetta rétt ert þú aðeins að misskilja málið. Intel eru að hugsa um að bjóða ákveðinn móðurborð þannig að það sé bar ákveðinn örri í borðinu. Held að það hafi aldrei staðið til að hætta alfarið með það að fólk geti valið sér móðurborð og annan bunað sér.



ég las þetta

http://www.extremetech.com/computing/14 ... radable-pc