Síða 1 af 1

Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Þri 08. Jan 2013 23:33
af Xovius
Mér tókst að gera þau hræðilegu mistök að hella engifergosdrykk yfir aðallhluta G510 lyklaborðsins míns og var að pæla hvort einhver væri með einhver góð ráð til að hreinsa klístrið.
Takkarnir eiga það núna til að festast niðri eða eru lengi upp. Ég er búinn að taka alla takkana úr og þvo þá sér og þurrka vel undan með rökum pappír.
Einhver önnur ráð?

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Þri 08. Jan 2013 23:34
af vesley
Tekur alla takka af og skrúfar svo efstu plötuna af og fleygir þessu öllu saman í uppþvottavélina.

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Þri 08. Jan 2013 23:36
af Xovius
vesley skrifaði:Tekur alla takka af og skrúfar svo efstu plötuna af og fleygir þessu öllu saman í uppþvottavélina.

Miiiikið vesen að losa þetta í sundur, var aðeins byrjaður á því og hætti við (og sleit skjáinn úr sambandi í leiðinni og næ ekki að tengja hann aftur :/). Er enginn með einhverja lausn sem felur það ekki í sér? :(

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Þri 08. Jan 2013 23:39
af vesley
Xovius skrifaði:

Hef rifið svona lyklaborð endalaust oft í sundur, hefur bara hníf eða eitthvað álíka til að kippa tökkunum af.

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 16:41
af Xovius
vesley skrifaði:

Ég er búinn að kippa tökkunum af og þrífa þá, það var ekkert mál. Það bara gerði ekkert gagn :(

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 16:45
af Moquai
Ólst upp með Pepsi Max og hef aldrei fílað mjög sykraða drykki t.d. Coca Cola, en var að lana með félaga mínum og með þeim fáu skiptum sem ég drekk Coke tókst mér að sulla því yfir lyklaborðið og þar sem það er fuckload af sykri í þessu klístraðist ALLT saman, neyddist til að skrúfa lyklaborðið allt í sundur og þrífa þetta from top to bottom ._.

Sucks to be me.

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 18:37
af corflame
Var einmitt að leysa nákvæmlega sama vandamál um helgina (skvettist ávaxtasafi):

  • Kippa lyklaborðinu úr sambandi
  • Fara með það inn á bað
  • Skola vandlega upp úr köldu vatni
  • Setja á ofn í 2-3 daga

Er að nota lyklaborðið í dag og virkar fínt

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 20:24
af upg8
Það virkar líklega best að þrífa með þessu, hægt að fá í næsta apóteki.

http://mindmachine.co.uk/products/118_Chem_Isopropyl_01.html

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 20:34
af sakaxxx
ég set lyklaborðið mitt bara í sturtu það er reyndar ekki með skjá en það hefur farið í sturtu allavega 5 sinnum án vandræða
í hvert skipti lítur það út sem nýtt

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 21:08
af vesley
Xovius skrifaði:
vesley skrifaði:
Xovius skrifaði:
vesley skrifaði:Tekur alla takka af og skrúfar svo efstu plötuna af og fleygir þessu öllu saman í uppþvottavélina.

Miiiikið vesen að losa þetta í sundur, var aðeins byrjaður á því og hætti við (og sleit skjáinn úr sambandi í leiðinni og næ ekki að tengja hann aftur :/). Er enginn með einhverja lausn sem felur það ekki í sér? :(

Hef rifið svona lyklaborð endalaust oft í sundur, hefur bara hníf eða eitthvað álíka til að kippa tökkunum af.

Ég er búinn að kippa tökkunum af og þrífa þá, það var ekkert mál. Það bara gerði ekkert gagn :(

Þess vegna áttu að taka efstu plötuna af, eiga að vera nokkrar skrúfur undir þar sem takkarnir voru og gæti verið undir lyklaborðinu líka.

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 21:11
af playman
Það sem þú þarft án efa að gera er að taka borðið í sundur, og komast að rafrása mottuni sjálfri og þrífa hana.
Tekur svo toppin og skellir honum í heitt vatn með uppþvottalegi og hristir það til og frá til þess á fá hreyfingu á vatnið
í svona 5-10 min ekki skemmir fyrir að hamast aðeins á tökkunum til þess að losa betur um drulluna, eftir það ferðu með toppin
í sturtu og skolar hann vel með heitu vatni. Passar auðvitað að taka skjáin úr og allt rafmagns teingt
Lætur svo toppin þorna á ofni yfir nótt.

þarftu nokkuð að taka takkana af til þess að taka það í sundur?

Þó svo að aðrir hafi sloppið með að setja sitt borð beint í sturtuna þíðir ekki að þú munir sleppa með það,
það er ekki vatnið sjálft sem að veldur skammhlaupi heldur er það drullan í vatninu sem veldur því.

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 21:52
af Xovius
playman skrifaði:Það sem þú þarft án efa að gera er að taka borðið í sundur, og komast að rafrása mottuni sjálfri og þrífa hana.

Ætti þá ekki að vera fínt að skola þetta bara vel uppúr afjónuðu vatni (á svona 2.5 lítra fyrir vatnskælinguna mína) ? Nenni eiginlega ekki að skrúfa þessar 30-40 skrúfur úr til að taka þetta allt í sundur...

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fim 10. Jan 2013 22:10
af urban

drullan í vatninu er alltaf minni en drullan í því sem að þú ert að skola í burtu.

ef ekki þá allavega myndi ég ekki fara í sturtu þar.

En já,
ég hef lennt í því að hella niður á lyklaborð.

hef bara skolað þau uppúr volgu vatni í sturtunni vel og lengi (myndi samt sleppa því að bleyta skjáinn)
volgt vatn til að losa drulluna í burtu.
skella því síðan einfaldlega á ofn eftir það og leyfa því að vera það lengi, snúa því nokkrum sinnum líka uppá að það sé ekki bleyta í einhverjum skúmaskotum sem að lekur síðan niður í það.

en já, ég bý svo sem við upphitað vatn
ekki hveraógeðið sem að er á höfuðborgarsvæðinu, það getu vel verið að það sé ekki gott.

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fös 11. Jan 2013 10:32
af corflame
urban skrifaði:
playman skrifaði:það er ekki vatnið sjálft sem að veldur skammhlaupi heldur er það drullan í vatninu sem veldur því.

drullan í vatninu er alltaf minni en drullan í því sem að þú ert að skola í burtu.

urban skrifaði:en já, ég bý svo sem við upphitað vatn
ekki hveraógeðið sem að er á höfuðborgarsvæðinu, það getu vel verið að það sé ekki gott.

Akkúrat, þess vegna nota kalt vatn úr krananum til að skola.
Eftir því sem ég best veit, þá er það yfirleitt vel tært og hreint án nokkurra þeirra efna sem geta valdið vandræðum.

Re: Engiferdrykkur+lykaborð=klístur Hjálp!

Sent: Fös 11. Jan 2013 10:58
af playman
Xovius skrifaði:
playman skrifaði:Það sem þú þarft án efa að gera er að taka borðið í sundur, og komast að rafrása mottuni sjálfri og þrífa hana.
Tekur svo toppin og skellir honum í heitt vatn með uppþvottalegi og hristir það til og frá til þess á fá hreyfingu á vatnið
í svona 5-10 min ekki skemmir fyrir að hamast aðeins á tökkunum til þess að losa betur um drulluna, eftir það ferðu með toppin
í sturtu og skolar hann vel með heitu vatni. Passar auðvitað að taka skjáin úr og allt rafmagns teingt
Lætur svo toppin þorna á ofni yfir nótt.

þarftu nokkuð að taka takkana af til þess að taka það í sundur?

Þó svo að aðrir hafi sloppið með að setja sitt borð beint í sturtuna þíðir ekki að þú munir sleppa með það,
það er ekki vatnið sjálft sem að veldur skammhlaupi heldur er það drullan í vatninu sem veldur því.

Ætti þá ekki að vera fínt að skola þetta bara vel uppúr afjónuðu vatni (á svona 2.5 lítra fyrir vatnskælinguna mína) ? Nenni eiginlega ekki að skrúfa þessar 30-40 skrúfur úr til að taka þetta allt í sundur...

Til lengdar væri öruggara og betra að taka það í sundur, þú getur sossum reynt að skola þetta með afjónuðu vatni, þó myndi ég ekki gera
það persónulega, sérstaklega þar sem að drullan sem að þú ert að reyna að skola í burtu getur farið leingra inní lyklaborðið og valdið frekari usla.

corflame skrifaði:
urban skrifaði:
playman skrifaði:það er ekki vatnið sjálft sem að veldur skammhlaupi heldur er það drullan í vatninu sem veldur því.

drullan í vatninu er alltaf minni en drullan í því sem að þú ert að skola í burtu.

urban skrifaði:en já, ég bý svo sem við upphitað vatn
ekki hveraógeðið sem að er á höfuðborgarsvæðinu, það getu vel verið að það sé ekki gott.

Akkúrat, þess vegna nota kalt vatn úr krananum til að skola.
Eftir því sem ég best veit, þá er það yfirleitt vel tært og hreint án nokkurra þeirra efna sem geta valdið vandræðum.

Tjah það er kanski hreint og tært fyrir augum okkar, en þegar að þú skoðar það í smásjá þá ferðu að sjá allskonar steinefni/málmagnir/sölt/örverur og margt fleyra.
Þegar að borðið þornar geta þessar agnir sameinast saman t.d. á milli lappa á IC chip og valdið því að það leiði á milli og brenni yfir chippin.

Auðvitað gerist þetta ekki í hvert skipti sem eithvað blotnar, en þetta gerist samt sem áður, og ég er bara þannig gerður að ég vil frekar
vera 101% öruggari og eiga meyri möguleika á að hluturin virki.

Ég þekki einn og hef verið vitni af því þegar að hann tekur móðurborðið sitt og setur það í sturtuna og skrúbbar léttilega yfir með uppþvottar
bursta, lætur svo þorna á ofninum í 2-3 daga, það hefur alltaf virkað hjá honum, en óþarfa áhætta að gera þetta.

Ef þú værir staddur hérna á Ak þá hefði ég getað tekið það og þrifið það fyrir einhvern smá aur.