Síða 1 af 1

Upplýsingar um Emachines 220 sem er seld í Elko

Sent: Lau 21. Ágú 2004 10:08
af Valerian
Ég var að skoða auglýsingu á Emachines 220 sem er seld í Elko. Speccið er:
Intel Celeron 2,5 GHz
128 MB DDR
40 GB HD
DVD/CD-RW skrifari combo
6 Usb 2,0 tengi
56kb Cnet módem
10/100 netkort
Stero hljóðkort
Mús, lyklaborð og hátalarar

Þetta er selt á 39.900 kr sem er það lægsta sem ég hef séð. Veit einhver um hvernig þessi vél reynist og er eitthvað varið í hana?

Sent: Lau 21. Ágú 2004 10:42
af Andri Fannar
Í hvað ætlaru að nota hana ?

Sent: Lau 21. Ágú 2004 11:28
af Valerian
Þessi vél er hugsuð handa 12 ára gutta sem mun nota hana tengslum við skólann.
Ég er nú samt viss um að hann vill líka nota hana til að leika sér :wink: en ég held að þessi vél dugi ekki langt til þess.
Persónulega myndi ég fá einhvern sem þekkir þessi mál, og ég treysti, til að setja saman vél úr íhlutum þar sem ég er hræddur við svona low budget tilboð þar sem ég óttast að notaðir séu lélegir hlutir til að setja þær saman úr. Ég notaði Google til finna upplýsingar og fann 2 þræði þar sem sýndist að báðir aðilar hefðu lent í veseni með vélarnar.

Sent: Lau 21. Ágú 2004 11:38
af Andri Fannar
humm :P hún væri góð í skólann en leikirnir væru held ég ekki að meika það

Sent: Lau 21. Ágú 2004 16:03
af ErectuZ
Ef hann ætlar að leika sér í henni eitthvað, ekki taka Celeron örgjörva. Taktu frekar AMD XP örgjörva. Svipað verð, en mikill performance munur.

Svo líka ættir þú kannski að láta smá meira RAM í hana. Með 128mb RAM, þá á þessi tölva varla eftir að geta runnað Windows XP :wink:

Ef hann ætlar eitthvað að fara að setja fullt af leikjum í hana, þá mæli ég með stærri hörðum disk. En ef ekki, þá er 40GB alveg nóg :wink:

Edit: Hvernig skjákorti ertu að pæla í?

Sent: Lau 21. Ágú 2004 18:52
af OverClocker
Þetta er alls ekki leikjavél ! og pottþétt ekki hægt að uppfæra neitt.

Sent: Sun 22. Ágú 2004 00:28
af Valerian
Ég fór í Elko og reyndi að fá upplýsingar um vélina og það sem ég veit er að skjákort, módem og hljóðkort eru á móðurborðinu. Það er talað um að skjákortið (eða örgjörvinn fyrir það) sé Intel Extreme. Það eru engin AGP slot á móðurborðinu og ekki er hægt að biðja þá um að stækka minnið, þú verður að fara annað og biðja um það. Það sem mér fannst skrítið var að í þessari verslun þá voru nokkrar vélar sem voru í gangi og hægt var að sjá á skjá en ekki á þessari (skyldi vera að það henti ekki að sýna "performancið" á þessari vél?)
Það sem mér sýnist er að þetta sé nánast einnota vél þ.e.a.s. það verður mjög erfitt að uppfæra hana því ég trúi ekki öðru en að guttinn muni vilja uppfæra hana seinna mér. Þess vegna finnst mér þarna nánast vera að henda peningunum því að þessi vél verður gjörsamlega verðlaus eftir 1,5 ár og ekkert hægt að nota úr henni. Þess vegna er ég sammála hugmyndinni um að láta setja saman vél sem byggir á AMD örgjörva og nota amk. 256 MB ram því það eru meiri líkur á að hægt verði að uppfæra hana amk. 1 sinni áður en farið verður í vél sem byggir á annarri tækni en þessari.
Ég á reyndar hjá mér Geforce Ti200 skjákort sem ég fékk með vélinni minni fyrir 2,5 ári, en búinn að skipta því út núna, og myndi vilja gefa honum í vélina hans ef það væri til að bæta grafíkina.

Sent: Sun 22. Ágú 2004 00:47
af SolidFeather
Noh, byrjað að selja eMachines hér
:roll:

Sent: Mán 23. Ágú 2004 13:57
af Steini
amd 2500xp 8650 kr
Abit an7 11391 kr
512mb ddr400 minni 8450 kr
Samsung S-ata 120gb hdd 10600kr

= 39091 kr og svo vantar auðvitað kassa og skjákort en það er bara spurning um hvað hann tímir í það....


Þessi ætti að vera fínn með 300w psu á 7000kr

Annars er Powercolor Radeon 9600xt 128mb fínt kort fyrir 16391 kr

Með þessum 2 hlutum í viðbót er verðið komið í 62472kr

Sent: Mið 25. Ágú 2004 16:16
af arnarj
task var að selja fínar samsettar xp1600 vélar á 29.900 um daginn, virðist ekki finna þær á síðunni lengur.

Ekki topp of the line vélar en án efa þrælfínar fyrir þennan pening.