Síða 1 af 1

Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 00:22
af Yawnk
Sælir, fékk Samsung Galaxy SII í jólagjöf, og vantar því hulstur utan um hann, ég hef heyrt mjög góða hluti um ''CaseMate'' hulstrin en fást þau hér?

Notar einhver þetta hér, hefur einhver reynslu af þessu?

http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... ry_id=4595

Vantar eitthvað stílhreint, helst svart hulstur því síminn er líka svartur, og sem ver símann fyrir höggi á hliðum og afturhlið, er ekki að leita að skjáfilmu eða slíkt.

Einhverjar hugmyndir?

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 00:27
af Skari
Athugaðu með símabæ, áttu margt til seinast þegar ég fór til þeirra

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 00:34
af Yawnk
Skari skrifaði:Athugaðu með símabæ, áttu margt til seinast þegar ég fór til þeirra

Sæll, takk skoða þetta.

Með fljótu bragði fann ég þetta hér : http://simabaer.is/?option=com_ahsshop& ... &Itemid=26

Þarna eru þeir bara með 'harðar bakhliðar', er ekki betra að vera með sílikon eins og ég linkaði í hjá Elko, eða 'þægilegra'?

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 02:00
af AciD_RaiN
Ég er með svona (og nokkur önnur) og þetta ver hann frá öllum hliðum ef þú ert mikið að missa hann ;) Hræbillegt og komið til landssins eftir viku og beint inn um lúguna hjá þér
http://www.ebay.co.uk/itm/180957242350? ... 1497.l2648

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 02:21
af Viktor
Þetta er eina netta hulstrið sem ég hef séð utan um þennan síma:

http://www.ebay.co.uk/itm/GENUINE-SAMSU ... 2c61672492

En þetta er rusl, hef átt 2 svona, bæði byrja að skemmast mjög fljótt og brotnar svo :(

Frekar læt ég símann rispast smá en að kaupa mér flottan rándýran síma og eyðileggja svo lúkkið með einhverju viðbj. coveri. Frekar fengi ég mér ódýrari síma.

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 02:31
af vesley
ég á cover fyrir þig. hafðu samband í pm.

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 03:57
af mercury
ég er með "barely there" lang "nettasta og flottasta" cover sem ég hef átt.
Mynd

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 03:58
af Yawnk
mercury skrifaði:ég er með "barely there" lang "nettasta og flottasta" cover sem ég hef átt.
Mynd

Langar í!! Hvar fæ ég?

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 07:27
af jonsig
Sælir , ég hef átt galaxy 2 síðan daginn sem hann kom út , ég keypti puro hulstur sem er til í tal og elko, og það sér ekki á símanum. Ég hef séð fólk með svona hörð hlustur og það er eins og síminn poppi bara úr þeim við að detta á eitthvað hart hehe

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 09:34
af KermitTheFrog
Fyrir mitt leyti þá eru svona hulstur algert flopp. Þau verja símann þinn frá því að rispast og dældast en þegar hann dettur og skjárinn brotnar þá er ekkert sem svona hulstur gerir til að bjarga honum. Ég hef misst minn oftar en ég get talið og það er í fínu lagi með hann. Þessi hulstur gera símann bara stærri og fyrirferðarmeiri.

ég skil ekki alveg lógíkina í því að Hanna alltaf þynnri og flottari síma en það sé svo nauðsyn að kaupa extra hulstur utan um hann.

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 11:27
af audiophile
Símar lenda oft á hornum þegar þeir falla. Sílikon dregur úr högginu sem síminn fær á hornið vegna sveigjanleika þess og minnkar líkur á að brot komi í skjáinn eða harða skel símans. Hlífar úr hörðu plasti virka ekki eins vel.

Skiljanlega gera þau ekkert til að verja símann ef hann lendir beint á skjánum á útstæðan hlut, en það er ekkert sem vera síma gegn svoleiðis nema gegnheill gúmmívasi og hver nennir að nota símann þannig?

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 12:42
af jonsig
true

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Mið 26. Des 2012 13:35
af addi32
Ég er með svona http://www.amazon.co.uk/S-Line-Silicone-Samsung-Galaxy-Protector/dp/B004Z1JKM4/ref=sr_1_69?s=electronics&ie=UTF8&qid=1356528815&sr=1-69

Mjög sáttur með það. Þægilegt að halda á honum og hann rennur ekki jafn auðveldlega úr vasanum mínum. Keypti svo bara filmur á amazon.

Síminn hefur þó nokkuð oft dottið í gólfið og það sér ekki á honum.

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Fim 27. Des 2012 17:00
af Yawnk
Sé að flestir linkarnir hjá ykkur er annaðhvort Amazon eða Ebay, vil helst bara kaupa innanlands.

Fór í Símann og Elko í dag og það var bara ekkert nema rusl, hefur einhver keypt hulstur hérna innanlands og líkað við það?

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Fös 28. Des 2012 21:08
af braudrist
Úrvalið og verðin á Íslandi eru bara rusl, því miður eins og flest annað.

Re: Samsung Galaxy SII - Höggvarið hulstur

Sent: Fös 28. Des 2012 21:42
af mercury
Yawnk skrifaði:
mercury skrifaði:ég er með "barely there" lang "nettasta og flottasta" cover sem ég hef átt.
Mynd

Langar í!! Hvar fæ ég?

keypt erlendis því miður :(