Síða 1 af 1

AMD socket 754, 939 og 940

Sent: Þri 17. Ágú 2004 23:46
af cue
AMD er virkilega að skipta úr 754 í 939, og þeir ætla ekki koma með örgjörva fyrir 754. Eða allavega lítur út fyrir það í dag.
Það er þá formfactor no 2 á sama árinu sem ég myndi kalla mjög leiðinlega stefnu gagnvart notendum, eða hvað?

Þar af leiðandi lítur út fyrir að fjárfesting sem ég geri núna í 64bita 754 örgjörva verði ekki hægt að uppfæra meira en í 3.8+ örgjafan. Sem verður frekar lélegt eftir ár eða tvö.

Þá er önnur spurning, þegar Intel ræflast yfir í 64bita núna á 3-4 hluta 2004, breyta þeir um socket líka? (og kannski 2 sinnum) eða er ég að gera betri kaup á socket 478 moðurborði þegar lítið er til uppfærslu möguleika?

Sent: Mið 18. Ágú 2004 08:19
af gnarr
AMD var búið að láta vita að 754 yrði ekki til frambúðar.

Re: AMD socket 754, 939 og 940

Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:06
af MezzUp
cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........

Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.

Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:15
af Drulli
Sempron verða líka á s754.

Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:47
af cue
gnarr skrifaði:AMD var búið að láta vita að 754 yrði ekki til frambúðar.

Mannstu nokkuð hvar þeir létu vita, mig langar að fylgjast vel með þeirri síðu. Hún gæti sparað mér hellings pening.

Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:53
af tms
Drulli skrifaði:Sempron verða líka á s754.

Já ég hélt það líka, amk segir á msi síðunni fyrir móðurborðið mitt "Sempron compatible"

Re: AMD socket 754, 939 og 940

Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:55
af cue
MezzUp skrifaði:
cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........

Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.

Ég er ekki sammála þér, form factor er alment orð yfir hvernig tenging er á milli örgjafans og móðurborðsins, nánari lysing er t.d socket eða slott.

Sent: Mið 18. Ágú 2004 10:05
af cue
Ég var að lesa á chipgeek um Sempron og þar segir að hann verði ekki 64bita?

http://www.geek.com/news/geeknews/2004J ... 026223.htm

Sent: Mið 18. Ágú 2004 11:29
af Drulli
Það er rétt, hann verður ekki 64bita en Sempron 3100+ og ofar verða í s754. Minnir líka að ég hafi lesið einhverstaðar að það kæmu fleiri A64 s754 örgjafar, gæti þó verið burl.

Re: AMD socket 754, 939 og 940

Sent: Mið 18. Ágú 2004 12:31
af Daz
cue skrifaði:
MezzUp skrifaði:
cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........

Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.

Ég er ekki sammála þér, form factor er alment orð yfir hvernig tenging er á milli örgjafans og móðurborðsins, nánari lysing er t.d socket eða slott.

Líklega einhver misskilningur hér á ferðinni, "form factor" virðist lítið eiga við samband milli örgjörva og móðurborðs sjá http://www.formfactors.org/

Sent: Mið 18. Ágú 2004 13:38
af gnarr
ATX, Micro-ATX, AT, BTX og fleiri eru formfactorar. tildæmis eru socket 478 og socket A fyrir alla þess formfactora, og svo eru til slot 1 og 2. socket 370, 478, A, 754 og mun fleiri sem nota ATX formfactor

Re: AMD socket 754, 939 og 940

Sent: Mið 18. Ágú 2004 17:29
af MezzUp
cue skrifaði:
MezzUp skrifaði:
cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........

Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.

Ég er ekki sammála þér, form factor er alment orð yfir hvernig tenging er á milli örgjafans og móðurborðsins, nánari lysing er t.d socket eða slott.

einsog gnarr sagði þá eru form factors AT, ATX o.s.frv.
en ég fór hinsvegar að pæla í hvaða sameiginlega orð væri notað yfir það sem þú lýsir, sá að á Tomshardware nota þeir "socket" bara yfir dálkinn, en taka fram ef að það er "slot" örri.
Í A+ bókinni minni er þetta hinsvegar kallaði "CPU packages" og er þá verið að meina hvernig örrinn er(PGA eða SEC, eða nákvæmara), sem að í leið segir manni hvernig tengingin á milli móðurborðs og örgjörva er.............

Sent: Mið 18. Ágú 2004 18:20
af gnarr
það er munur á socket og slot. slot eru eins og margir Pentium 2 og 3 örgjörfar og og fyrstu K7 örgjörfarnir komu í (sumir vilja kalla þetta slocket).

Mynd

Mynd

Mynd

hinsvegar er socket eins og allir "eðlilegir" örgjörfar fara í. eins og Socket A, socket 370, Socket 478, socket 754 og socket 939.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Sent: Mið 18. Ágú 2004 18:48
af MezzUp
gnarr skrifaði:það er munur á socket og slot. slot eru eins og margir Pentium 2 og 3 örgjörfar og og fyrstu K7 örgjörfarnir komu í (sumir vilja kalla þetta slocket).

varst vonandi ekki að segja mér þetta? :shock: ég var bara að pæla í hvaða sameiginlega orð væri notað yfir PGA og SEC örgjörva og hvernig þeir tengjast í móðurborðið.

annars er slocket spjald sem að ákveðnir PGA(socket) örgjörvar fara í, sem að tengir þá svo í slot á móðurborðum, einskonar millistykki milli socket og slot, hence "slocket"

Fyrstu Celeron(P2 gen.) komu líka sem slot, en voru víst kallaðir SEP frekar en SEC afþví að það var ekkert cover á þeim einsog venjulegum SEC örgjörvum.

Köllum við ekki K7 örrana, Athlon(pre-thunderbird) í venjulegu tali? :)

Sent: Mið 18. Ágú 2004 21:12
af gnarr
nei, K7 eru nefnilega ekki næstum allir athlon.

Sent: Mið 18. Ágú 2004 22:54
af MezzUp
gnarr skrifaði:nei, K7 eru nefnilega ekki næstum allir athlon.

Núnú, alltaf lærir maður eitthvað nýtt, endilega fræddu mig meira.
Samkvæmt mínum kokkabókum(og amd.com) komu Athlon (og Duron) út á eftir K6-III, enginn þar á milli

Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:11
af gnarr
já, duron er ekki athlon.. eða hvað?

Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:42
af MezzUp
gnarr skrifaði:já, duron er ekki athlon.. eða hvað?

ahh, aight, varst að tala um Duron bara, ég hélt að hefði kannske verið secret örri sem að fáir vissu um :P

en nei, Duron er (ekki beint a.m.k.) Athlon

Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:50
af cue
Svona fyrst við erum nú "nokkuð" komnir útfyrir upphaflegt efni þessa þráðar langaði mig að benda á að bensínverð hefur ekki hækað í frekar langan tíma og spái ég að það lækki niðurfyrir 90kr innan 3 mánaða :!:

Mig langar að bæta við þessari tilkynningu til allra sem málið varðar, hér eftir skrifa ég pulsa ekki pylsa!

Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:55
af MezzUp
cue skrifaði:Svona fyrst við erum nú "nokkuð" komnir útfyrir upphaflegt efni þessa þráðar langaði mig að benda á að bensínverð hefur ekki hækað í frekar langan tíma og spái ég að það lækki niðurfyrir 90kr innan 3 mánaða :!:

Mig langar að bæta við þessari tilkynningu til allra sem málið varðar, hér eftir skrifa ég pulsa ekki pylsa!

jamms, þessi spá gæti nú ræst hjá þér þar sem að olíu tunnan er að snarlækka vegna offramboðs á olíu, og þar sem að dollarinn er ekki hár.
en þetta bensínverð hérna heim er oftast skrítið.

Og ég styð þig í að skrifa pulsa, bæði eru jafn rétt, en ég hef alltaf sagt og skrifað pulsa þótt að mér þyki pylsa fallegra.

ps. þræðir fara oft(ast :P) útí eitthvað annað hérna, en það er ekki einsog þeir sem vilja svara upprunalega þráðnum geti það ekki :roll:

Sent: Fim 19. Ágú 2004 15:19

Satt :wink:

Sent: Fös 27. Ágú 2004 11:46
af Bendill
gnarr skrifaði:það er munur á socket og slot. slot eru eins og margir Pentium 2 og 3 örgjörfar og og fyrstu K7 örgjörfarnir komu í (sumir vilja kalla þetta slocket).

"Slotket" er ekki gælunafn yfir slot örgjörva, heldur er það nafn á breytistykkjum til þess að setja "socket" örgjörva í "slot" móðurborð :D
Til dæmis var mikið um þetta hjá yfirklukkurum fyrir langa löngu þegar þeir sáu að slot 1 PIII örgjörvar voru ekki að standa sig nærri því eins vel eins og socket 370 Coppermine PIII örgjörvarnir. Þá var bara hlaupið út í búð og keypt eitt stykki "slotket"! :8)
Eftir það fór fólk að kalla öll sökkla-breytistykki "slotkets". jafnvel þótt það væri frá "socket" í "socket" sem notuð voru til að breyta "PPGA" yfir í "FCPGA".

Sjá hér

Ég vildi einungis benda á þennan misskilning á hugtakinu "slotket" :wink:

Sent: Fös 27. Ágú 2004 12:19
af gnarr
takk takk ;) ég var samt reydnar búinn að fá leiðrétingu frá öðrum.

Sent: Þri 31. Ágú 2004 12:29
af wICE_man
Ég sé að pulsuæturnar eru komnar upp úr skotgröfunum og er það vel því að þá má hefst víst veiðitímabilið :)

Getum við ekki komið okkur saman um að fleygja út þessari ljótu dönskuslettu (þar er þó pulsan mun verri en pylsan sem sker sig þó pínu frá dönskunni) og notað eitthvað skemmtilegt íslenskt orð eins og smábjúgu, sperlingar, langhunda eða annað eins? :P

Pulsa, mig langar bara að æla þegar ég segi þetta orð :x

Sent: Þri 31. Ágú 2004 15:04
af Bendill
cue skrifaði:Svona fyrst við erum nú "nokkuð" komnir útfyrir upphaflegt efni þessa þráðar langaði mig að benda á að bensínverð hefur ekki hækað í frekar langan tíma og spái ég að það lækki niðurfyrir 90kr innan 3 mánaða :!:

Ja hérna, mér þykir þú nú vera nokkuð vongóður! :lol: